Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 1
58%
36%
32%
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007.
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
Laugardagur
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
10
20
40
0
50
60
Íslandsmótið í knatt-
spyrnu hefst í dag með leik ÍA og
Íslandsmeistara FH á Akranesi.
FH-ingar hafa unnið titilinn
síðustu þrjú sumur og ekkert
annað lið hefur setið í toppsæti
deildarinnar síðan í júlí 2004.
Þetta verður enn fremur fyrsti
deildarleikur íslensks liðs undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar frá
árinu 1996, þegar hann gerði
Skagamenn að Íslandsmeisturum
fimmta árið í röð.
FH í toppsæt-
inu síðan 2004
framsokn.is
Árangur áfram
- ekkert stopp
www.xf.is
ORÐ SKULU STANDA
„Yngri menn kalla þetta stofulist og
finnst lítið í þessi málverk varið,“ segir Per
Hovdenakk, sem setti saman CoBrA-sýninguna í
Listasafni Íslands.
Hann segir verk CoBrA-hópsins því miður ekki
njóta sanngirni í listaheiminum og það séu helst
„sýningarstjórar og galleríistar“ sem haldi
nöfnum listamannanna í hópnum á lífi. Svavar
Guðnason var einn þeirra. „Þetta fólk var svo
fátækt, það leit enginn við myndunum þess, sem
var ein ástæða þess að hópurinn klofnaði og það
fór hver í sína átt,“ segir Per, en hann er fyrr-
verandi safnstjóri Onstadt-safnsins í Osló. Per
telur úrvalið gott á sýningunni í Listasafninu,
sérstaklega fyrir áhugamenn um list Svavars.
Alls hafa 7.300 fleiri
Íslendingar flutt frá landinu en til
þess á síðustu tuttugu árum. Þetta
kemur fram í samantekt fjár-
málaráðuneytisins á búferlaflutn-
ingum íslenskra ríkisborgara. Á
sama tíma hafa rúmlega tuttugu
þúsund fleiri útlendingar flutt til
landsins en frá því.
Í samantekt fjármálaráðuneytis-
ins kemur fram að frá árinu 1987
til 2007 hafa 55 þúsund Íslending-
ar flutt af landi brott og á sama
tíma sneru um 47 þúsund til baka.
Um áttatíu prósent brottfluttra
Íslendinga fara til Norðurland-
anna og mikill meirihluti þeirra
til Danmerkur. Almennt er
hlutfall brottfluttra Íslendinga
hærra en hlutfall þeirra er snúa
til baka. Aðeins árið 2005 var
hlutfall aðfluttra hærra, en þá
ríkti mikil uppsveifla í atvinnu-
og efnhagslífinu.
Sjö þúsund
fleiri flutt brott
Allir eru að blogga. Fréttablaðið smalaði kaffihúsaspekingum
inn í kjörklefa og stóð fyrir kosningu á bestu og verstu blogg-
urum landsins.
Stjórnmálaskýrendur
telja að alþingiskosningarnar
verði þær mest spennandi í ára-
tugi og allar skoðanakannanir
síðustu daga benda til þess sama.
Mun fleiri hafa kosið utan kjör-
fundar en fyrir kosningarnar árið
2003. Lögregla hefur jafnt og
veitingahúsaeigendur mikinn
viðbúnað vegna kosninganna.
Fjórar nýjar skoðanakannanir
um fylgi flokkanna voru birtar í
gær, en engar þeirra voru sam-
hljóma um hvernig kosningarnar
gætu farið.
Stjórnmálaskýrendur segja allt
stefna í gríðarlega spennandi
kosningar og að aðalatriðið verði
líklega hvort ríkisstjórnin heldur
velli eða ekki. Þeir telja kosninga-
baráttuna einkennast af færri
álitamálum en fyrir kosningarn-
ar árið 2003.
Mjög góð kjörsókn var utan
kjörfundar víða um land. Rúm-
lega ellefu þúsund manns höfðu
kosið í Reykjavík síðdegis í gær
og á Akureyri höfðu rúmlega
1.300 kosið. Óvenju margir höfðu
kosið í Kópavogi og í Hafnarfirði.
Mikill viðbúnaður er hjá lög-
reglu um land allt vegna kosning-
anna. Lögreglan fylgist með því
að öllum reglum sé fylgt á kjör-
stað og tekur þátt í flutningi kjör-
gagna.
Íslendingar munu ef að líkum
lætur lyfta sér upp, enda líta
margir á kosningarnar sem hátíð.
Í Vínbúðinni í Kringlunni er búið
að panta tvöfalt meira magn af
áfengi fyrir þessa helgi en fyrir
venjulega helgi. „Við höfum tekið
eftir því að bjórinn er vinsæll fyrir
kosningarnar. En ef það er sól selj-
ast hvítvín og rósavín líka vel,“
segir starfsmaður verslunarinnar.
Eigendur skyndibitastaða búast
við miklu annríki og það sama má
segja um eigendur öldurhúsa og
skemmtistaða um land allt.
Spennan snýst um
hvort stjórnin lifir
Stjórnmálaskýrendur telja allt stefna í mest spennandi alþingiskosningar í
langan tíma. Lögregla og veitingahúsaeigendur búast við líflegri kosninganótt.