Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 102
Væri að ljúga ef ég segði leikinn ekki sérstakan Íslandsmótið í knatt- spyrnu hefst í dag þegar Íslands- meistarar FH fara í heimsókn til ÍA á Skipaskaga. Þessa opnunar- leiks hefur verið beðið með mik- illi eftirvæntingu, ekki síst vegna þeirrar staðreyndar að Guðjón Þórðarson er að stýra sínum fyrsta deildarleik með ÍA í tæp ellefu ár. „Ég hlakka til, þetta verð- ur spennandi,“ sagði Guðjón við Fréttablaðið í gær. „Það vilja allir byrja vel og FH hefur alltaf byrj- að vel undanfarin ár.“ Eins og flestir vita hafa FH- ingar unnið deildina síðastlið- in þrjú ár, þar af síðustu tvö með miklum yfirburðum. Og öll þessi þrjú ár hefur FH byrjað á tveimur útileikjum, rétt eins og nú. „Mér er í sjálfu sér sama hvort við byrjum á útivelli eða ekki. Það þarf að spila alla þessa leiki hvort eð er,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH. „Akranes er einn mesti fótboltabær landsins og ekki auðvelt að fara þangað og spila. Svo er gamli þjálfari liðsins að koma aftur og eftirvæntingin eftir árangri er mikil þó þeir séu að reyna að tala hana niður. Við erum að fara í hörkuleik og ætlum ekki að vanmeta Akranesliðið.“ Eins og gefur að skilja ríkir mikil tilhlökkun í herbúðum beggja liða fyrir leikinn. En Ól- afur segir að mikilvægi leiks- ins sé ekki meira en fyrir hvaða leik sem er. „Þetta er bara einn af átján leikjum. Allir leikir skipta máli þegar upp er staðið en úrslit þessa leiks munu ekki hafa nein afgerandi áhrif upp á framhaldið að gera,“ sagði Ólafur. Guðjón segir að sínir menn hafi verið afskrifaðir fyrir þennan leik. „Ég hef heyrt að menn spái FH 6- 0 sigri í þessum leik. Svo er stuð- ullinn á heimasigur á Lengjunni fjórir þannig að það er greinilegt að menn hafa ekki trú á okkur,“ sagði Guðjón. „Svo má ekki horfa framhjá því að FH-ingar eru með þrjá frábæra Skagamenn í sínu liði þannig að þeir eins og mörg önnur lið njóta góðs af uppeldisstarfi ÍA,“ sagði hann og átti þar við tvíbura- bræðurna Arnar og Bjarka Gunn- laugssyni sem og Frey Bjarnason. Báðir þjálfarar geta valið flesta sína sterkustu menn í leikinn. Hjá FH eru þeir Auðun Helgason og Atli Viðar Björnsson fjarver- andi vegna meiðsla. „Ég er að von- ast til þess að ég geti nú í fyrsta skipti síðan ég tók við liðinu valið úr öllum hópnum. Það eru góðar fréttir,“ sagði Guðjón. Sem fyrr eru FH-ingar með stór- an og breiðan hóp leikmanna en Ólafur ætti að vera orðinn vanur því að taka erfiðar ákvarðanir. „Í FH verða alltaf góðir menn fyrir utan byrjunarliðið og leikmanna- hópinn. Þannig er þetta í þjálfara- starfinu, stundum þarf maður að taka óvinsælar ákvarðanir og er ég ekki feiminn við það.“ Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, segir að búið sé að afskrifa sína menn fyrir opnunarleik Íslandsmótsins í dag en þá mæta Skagamenn Íslandsmeisturum FH á heimavelli. Mikillar tilhlökkunar gætir fyrir leikinn. Landsbankadeild karla hefst í dag með leik ÍA og FH uppi á Akranesi. Þetta verður sautj- ánda sinn sem deildin opnar með sérstökum leik síðan hún innihélt fyrst tíu lið sumarið 1977. Mótið hefur byrjað á fleirum en einum leik í fjögur af síðustu fimm skipt- um en á árunum 1991 til 2001 var sérstakur opunarleikur á níu af ellefu tímabilum. Það má ekki búast við neinni markaveislu ef marka má úrslit síðustu fjögurra opnunarleikja en í þeim litu aðeins þrjú mörk dags- ins ljós á 360 mínútum, sem gerir mark á aðeins 120 mínútna fresti. FH vann KR á KR-vellinum 1-0 2004, Fylkir vann KR 1-0 á Fylk- isvellinum 2001, Stjarnan og Grindavík gerðu markalaust jafn- tefli í Garðabæ 2000 og þá vann KR 1-0 sigur á KR-vellinum 1999 þar sem eina mark leiksins kom eftir aðeins 17 sekúndna leik. Áhorfendur á Akranesvelli von- ast örugglega eftir að leikmenn verði ekki allt of varkárir og bjóði upp á fleiri mörk í dag. Það hafa reyndar verið opnunar- leikir fullir af mörkum, Þrótt- ur og ÍBV gerðu 3-3 jafntefli á Laugardalsvellinum 1998, Víking- ur vann FH 4-2 í Kaplakrika 1991 og KR vann Þrótt 4-3 á KR-vellin- um 1985. Mörkin eru alls 47 í leikjunum 16, sem gerir 2,9 mörk að meðal- tali, heimaliðin hafa aðeins unnið 7 af leikjunum 16 og Íslands- meistarar eiga enn eftir að vinna opunarleik í titilvörn en KR tap- aði 1-0 2001 og ÍBV gerði 3-3 jafn- tefli þremur árum áður. Fá mörk í síðustu opnunarleikjum Guðjón Þórðarson stjórnar í dag sínum fyrsta leik í íslensku deildinni í tæp ellefu ár þegar Skagamenn fá Íslands- meistara FH-inga í heimsókn upp á Akranes. Guðjón ætti að þekkja það vel að mæta FH-ingum í fyrsta leik því þetta verður í sjötta sinn á tíu tímabilum hans sem þjálfari í efstu deild sem lið hans hefur mótið á leik við FH. ÍA vann FH 1-0 í hans fyrsta leik sem þjálfari 21. maí 1987 og hann hefur góðar minningar sem þjálfari Skagamanna af að opna mótið á móti FH. ÍA vann nefni- lega FH 5-0 í Kaplakrika í fyrstu umferð sumarið 1993. Það gekk ekki eins vel í hinum leikjunum á móti FH í fyrstu umferð. KA gerði 0-0 jafntefli 1989 og tapaði 0-1 árið eftir og KR tapaði 0-1 fyrir FH á heima- velli árið 1995. Skagamenn hafa aftur á móti ekki tapað opnunar- leik undir stjórn Guðjóns og þeir unnu Stjörnuna 3-1 árið 1996 þar sem Bjarni Guðjónsson skoraði tvö mörk. Byrjar sjötta sum- arið á leik við FH Ragna Ingólfsdóttir er komin upp í 43. sæti á heims- listanum í einliðaleik kvenna og hefur hækkað sig um þrjú sæti frá því að hún meiddist á opna hollenska meistaramótinu. Ragna hefur ekkert spilað síðan að hún varð fyrir hnémeiðslunum og verður frá keppni næsta mán- uðinn að minnsta kosti og getur því glaðst yfir því að meiðsl- in hafi ekki slæm áhrif á stöðu hennar á listanum. Hækkar sig í meiðslunum Spænska pressan gekk af göflunum í gær eftir neyðarlegt 4-0 tap Barcelona fyrir Getafe í undanúrslitum spænsku bikar- keppninnar. Börsungar voru með 5-2 forystu eftir fyrri viðureign liðanna en eru nú úr leik. „Maður á von á öðru en slíkri frammistöðu af stórliði eins og Barcelona. Ég get ekki útskýrt þetta,“ sagði Samuel Eto‘o, leik- maður Barca í gær. „Ég skamm- aðist mín. Ég óskaði þess að jörð- in gæti opnast og gleypt mig. Ég grét eftir leikinn í gær og gat ekkert sofið um nóttina.“ Pressan slátraði Börsungum Lawrie Sanchez verður áfram stjóri enska úrvalsdeildar- liðsins Fulham og hættir því sem þjálfari norður-írska landsliðsins. Þetta tilkynnti hann í gær. Sanchez hafði tekið tímabund- ið við Fulham eftir að félagið rak Chris Coleman í apríl. Sanchez hættir með norður- írska landsliðið þegar það er í toppsæti síns riðils í undankeppni EM 2008 en Norður-Írland hefur ekki komist á stórmót síðan á HM í Mexíkó 1986. Liðið er með Ís- landi í riðli og eina tap þess var gegn Íslandi í fyrsta leiknum. „Ég fann það eftir að hafa verið hjá Fulham síðasta mánuðinn að ég er miklu áhugasamari um að geta unnið með mínum leik- mönnum á hverjum degi,“ sagði Sanchez, sem bjargaði Fulham frá falli í vetur. Hættur með Norður-Írland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.