Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 42
T yrklandsþing sam- þykkti á fimmtudag í annarri atlögu til- lögu stjórnarinn- ar að stjórnarskrár- breytingum, þar sem kveðið er á um að forseti lýðveld- isins verði þjóð- í stað þingkjör- inn. Þar með náðist mikilvæg- ur áfangi í sáttaátt, eftir harð- an slag á milli stjórnarflokksins, sem á rætur í íslamskri hreyf- ingu, og hinnar veraldlega sinn- uðu stjórnarandstöðu og gömlu stjórnmálaelítunnar. Stjórnar- andstaðan áleit arfleifð Kemals Atatürk, stofnanda lýðveldisins, ógnað með áformum Receps Tay- yip Erdogan forsætisráðherra um að láta þingið kjósa Abdullah Gül utanríkisráðherra í emb- ætti forseta. Gül er trúaður mús- limi og eiginkona hans ber jafnan höfuðklút að hætti sanntrúaðra, þótt slíkur klæðnaður sé bann- aður samkvæmt lögum í opin- berum byggingum landsins. Gül dró framboð sitt til baka á sunnu- dag eftir að þingmenn sniðgengu kosninguna í annað sinn. Stjórnarskrárbreytingin um þjóðkjör forseta var liður í til- raun Erdogans til að leysa deil- una. Stjórnin lagði annars líka til að kjörtímabil forseta yrði stytt úr sjö árum í fimm, að forseta skyldi heimilt að sækjast eftir endurkjöri, kjörtímabil þingsins yrði stytt úr fimm árum í fjögur og þingmönn- um sem þarf til samþykktar frum- vörpum yrði fækkað. Samkomulag sem áður hafði náðst um að flýta þingkosningum og halda þær 22. júlí í stað nóvember, þegar kjörtímabilið hefði annars runnið út, slær á spennuna í átök- unum milli fylkinganna tveggja í tyrknesku samfélagi. Grund- vallardeilan um það hvernig beri að umgangast íslamsk-blönduð stjórnmál í tyrknesku lýðræði er þó langt frá því að vera leyst. Tyrkneskt samfélag er alvarlega klofið. Veraldlega sinnaðir Tyrkir, sem telja sig standa vörð um þau gildi sem Mustafa Kemal Atatürk innleiddi á sínum tíma um strang- an aðskilnað trúar og stjórnmála, hafa gripið til umdeilanlegra að- ferða. Atkvæðagreiðslur á þingi eru sniðgengnar, fjöldamótmæli eru á götum úti og hótanir um af- skipti hersins. Þetta er gert í til- raun til að grafa undan valdi Er- dogans forsætisráðherra og flokks hans, Réttlætis- og þróunarflokks- ins (AKP), sem þeir óttast að stefni að því að draga stjórnkerfi lands- ins í átt að íslömsku kerfi. Þar til fyrir skemmstu leit út fyrir að Erdogan hygðist beita þeim drjúga meirihluta sem flokkur hans ræður yfir á þingi til að treysta tök sín á öllu fram- kvæmdavaldinu með því að tefla nánum bandamanni sínum, utanríkisráðherranum Gül, fram í embætti forseta. En sú öfluga bylgja andstöðu við þessi áform hans virðist hafa komið honum að óvörum og gæti þess í stað leitt til róttækrar uppstokkunar í stjórninni. Hún hefur líka hleypt nýjum krafti í umræðu um um- bætur á fulltrúalýðræðiskerfi landsins. Fylgjendur íslamsk-blandaðra stjórnmála í Tyrklandi hafa á liðn- um áratugum í glímu þeirra við hið veraldlega ríkiskerfi landsins fjar- lægzt æ meir þá herskáu grunn- stefnu sem hreyfing þeirra var upprunalega sprottin úr. Á hinn bóginn hafa „kemalistar“, fylgjend- ur hins stranga aðskilnaðar trúar og stjórnmála, lítið þróað hug- myndafræði sína síðan Atatürk dó árið 1938. „Þeir sem voru áður aft- ast á merinni eru nú mestu fram- farasinnarnir, og framfarasinnar fortíðarinnar eru núna afturhald,“ hefur þýzka vikuritið Der Spiegel eftir Zülfü Livaneli, rithöfundi og söngvaskáldi í Istanbúl. Og stjórn- málafræðingurinn Cemal Karakas segir skilning kemalista á aðskiln- aði trúar og stjórnmála vera „vald- stjórnarsinnaðan og ólýðræðisleg- an; það ætti að endurskoða hann“. Baskin Oran, stjórnmálaskýr- andi í Ankara, er sama sinnis. „Ke- malismi umbreytti Tyrklandi á sínum tíma, en honum hefur láðzt að umbreyta sjálfum sér,“ er haft eftir Oran í nýjasta hefti The Economist. Þótt tyrkneski herinn, „varð- hundur“ hinna veraldlegu gilda í stjórnmálum landsins allt frá dögum Atatürks, hafi fjórum sinn- um steypt lýðkjörnum ríkisstjórn- um frá árinu 1960 beindist aðeins eitt þeirra inngripa beint gegn íslamsk-sinnuðum valdhöfum, en það var þegar stjórn Necmettin Erbakans var bolað frá árið 1997. „Það má ekki gleyma því að tyrkneski herinn er aðili að þessari umræðu og stendur af einurð vörð um hin veraldlegu gildi ríkisins,“ segir í yfirlýsingu frá herstjórn- inni, sem birt var fyrir viku, eftir fyrri umferð forsetakosninga á þingi sem stjórnarandstaðan snið- gekk og fékk síðan stjórnlagadóm- stól landsins til að lýsa ógilda. „Ef nauðsyn krefur mun hann sýna af- stöðu sína og hegðun á ótvíræðan og opinskáan hátt. Enginn ætti að efast um þetta,“ segir enn fremur í yfirlýsingu hersins. Þessi orð voru skilin sem hótun um að herinn kynni að grípa fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni og kölluðu á fordæmingu frá ráða- mönnum í Evrópusambandinu, sem Tyrkir vilja ganga í. En marg- ir Tyrkir segja að hlutverk hersins sé gjarnan misskilið í útlöndum og með því að grafa undan því grafi Vesturlandabúar í raun undan tyrknesku lýðræði. Erbakan, sem hraktist frá völdum fyrir tilstilli hersins fyrir tíu árum, var pólitískur lærifaðir Erdogans, og báðir eru þeir innilega hatað- ir í röðum herforingjanna. Her- inn lét sér það bara rétt svo lynda að Erdogan tæki við völdum eftir kosningasigur flokks hans árið 2002. Sá sigur byggðist ekki sízt á þreytu kjósenda á spillingu og sundrungu gömlu flokkanna og því að mörgum kjósendum þótti andspillingarstefna Réttlætis- og þróunarflokksins trúverðug. Stjórnmálaflokkur þarf að fá minnst tíu prósent atkvæða til að fá úthlutað þingsætum á Tyrk- margir Tyrkir segja að hlutverk hers- ins sé gjarnan misskilið í útlöndum og með því að grafa undan því grafi Vesturlandabúar í raun undan tyrknesku lýðræði. Átök um grunn tyrknesk Mikið hefur gengið á í tyrkneskum stjórnmálum undanfarnar vikur. Tekizt er á um sjálfan grund- völl tyrknesks lýðræðis, hefðbundna túlkun hans og að hvaða marki heimilt skuli að blanda trúnni í stjórnmálin. Auðunn Arnórsson rekur hér helztu átakalínurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.