Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 78
Tónlistarspekingurinn var örugg-
ur í þriðja sætinu og virðast marg-
ir vera forvitnir hvað sé að ger-
ast á bakvið þennan nakta, þekkta
haus. „Dr. Gunni liggur ekki á
skoðunum sínum og fátt er honum
óviðkomandi. Jafnvel þó maður
sé ekkert endilega alltaf sammála
honum er alltaf gaman að lesa það
sem hann hefur að segja,“ sagði
einn álitsgjafi „Vangaveltur Dr.
Gunna eru oft skemmtilegar og
tenglar yfir á sérviskuleg rokklög
svínvirka,“ bætti annar við.
F
yrir utan þessar
tvær stóru blokk-
ir, mbl.is og visir.is
stendur hópur manna
sem hefur megnustu
óbeit á þessum „sölu-
varningi“. Og telja sig vera hina
sönnu bloggara. Margir hverjir
hafa bloggað lengi en ekki á vef-
svæðum dagblaða heldur þar sem
meira þarf að hafa fyrir því að
afla sér vinsælda.
En það virðist lítið bíta á þá
blog.is- og blogg.visir.is-menn.
Þótt einhverjir gefist upp og nenni
ekki lengur eru alltaf nýir og nýir
að bætast í hópinn. Og menn hafa
misháleitar hugmyndir um sín
skrif. Á meðan sumir segja frá
tanntöku barnanna sinna, henda
inn nokkrum uppskriftum og ræða
vinnustaðarómans eru aðrir sem
telja sig vera alvöru fréttastofu
eða greina frá kynlífi og græn-
meti í sömu línu.
Fréttablaðið ákvað því að leita
til nokkurra nafntogaðra einstakl-
inga; bloggara og þeirra sem hafa
gaman af bloggi, og reyndi að finna
út með lýðræðislegum hætti hverj-
ir væru bestu bloggararnir og
hverjir þeir verstu. Að gefnu til-
efni skal þó taka fram að mat þetta
endurspeglar á engan hátt skoðun
Fréttablaðsins heldur eru þetta
niðurstöður úr atkvæðagreiðslu.
Af góðum, vondum
og verri bloggum
Ný della er mætt á svæðið. Það er ekki nýr tjaldvagn. Ekki ný tegund af ilmkertajóga. Heldur
blogg. Hvort sem þú heitir Gunnar eða Páll, ert rafvirki eða alþingismaður − allir skulu blogga.
Moggabloggið sló rækilega í gegn og Vísir.is fylgdi í kjölfarið. Júlía Margrét Alexandersdóttir tók að sér
embætti kjörstjóra, smalaði kaffihúsaspekingunum inn í kjörklefa og stóð fyrir kosningu á bestu og
verstu bloggurum landsins.
Egill Helgason hlýtur þessa nafn-
gift og er vel að henni kominn.
Fólk úr öllum áttum útnefndi Egil
besta bloggarann og sagðist koma
reglulega við hjá honum á Vísi
á netrúnti sínum. „Egill Helga-
son er skemmtilegasti bloggar-
inn þótt hann telji sig ekki slík-
an. Hann er iðinn við kolann og
alltaf með puttann á púlsinum,“
sagði einn álitsgjafa Fréttablaðs-
ins. „Egill er alltaf skemtilegur þó
hann sé orðinn dálítið fyrirsjáan-
legur með aldrinum. Egill skrif-
ar mjög skýran og lipran texta.
Virkilega gaman þegar honum
er mikið niðri fyrir, sem er ein-
att,“ bætti annar við. „Egill er enn
bestur, eftir öll þessi ár. Nær enn
að vera ferskur og ófyrirsjáanleg-
ur. Við getum ekki annað en verið
þakklát fyrir að þessi víðlesni
heimsborgari skuli hafa áhuga á
íslenskri flokkapólítík,“ lét einn
hafa eftir sér.
Egill er einn elsti „bloggari“
landsins þótt flestir af þeim kjós-
endum sem settu hann í þennan
flokk nefndu að sjónvarpsmaður-
inn sjálfur liti ekki á sig sem blogg-
ara. „Þetta var nú hálfgert grin að
þetta væri ekki blogg því ég byrj-
aði að skrifa á vefinn snemma árs
árið 2000 og orðið blogg var ekki
til þá,“ svarar Egill.
Egill segist engar haldbærar
skýringar hafa á vinsældum sínum.
„En ég held að það sé erfitt að sjá
hvers taum ég dreg í lífinu. Það er
erfitt að flokka mig og ekki auðvelt
að sjá hvar ég stend í stjórnmálum.
Svo hef ég líka leyft mér að skipta
um skoðun, geri það óhikað og
myndi aldrei monta mig af því að
hafa staðið á sömu skoðun í gegn-
um allt. Það er engum til hróss.“
Þótt ótrúlegt megi virðast þá er
sá sem fékk næst flestu atkvæðin
hinn nafnlausi bloggari hnakkus.
blogspot.com en nafnleysi hefur
löngum verið eitur í beinum blogg-
ara. „Hnakkus skrifar undir dul-
nefni og gerir það smekklega ólíkt
sumum. Hann er drepfyndinn og
kvikmyndagagnrýni hans á mynd-
bönd Guðmundar í Byrginu var
óborganleg. Mæli með Hnakkusi
fyrir stjórnleysingja og temmi-
lega illa innrætt folk,“ sagði einn
viðmælandi blaðsins. „Hnakkus
fylgist vel með og skýtur föstum
skotum á þá sem eiga það skilið,“
sagði annar.
Hnakkus vildi ekki koma fram
undir nafni þegar honum var til-
kynnt að hann væri næstskemmti-
legasti bloggari þjóðarinnar. Hann
byrjaði að blogga haustið 2002
þegar vinur hans stakk upp á
því og sá hinn sami bjó til blogg.
Síðan þá hefur boltinn bara feng-
ið að rúlla, hægt og rólega. „Það
eru reyndar nokkrir sem vita hver
ég er og ég get upplýst að ég er
þrítugur Reykvíkingur úr mið-
bænum,“ segir Hnakkus og bætir
því að hulunni verði ekki svipt af
núna. „Enda yrði ég bara grýttur,“
útskýrir hann. Bloggarinn segist
líkt og Egill enga skýringu hafa á
vinsældum sínum. „Nema bara af
því að ég er snillingur og ég reyni
að blanda sama húmornum við
meinfýsni,“ segir hann. „Og nú er
það bara að koma Agli Helga fyrir
kattrarnef.“