Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 54
12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR6 fréttablaðið eurovision
1969: AUSTURRÍKIS-
MENN VILDU ENGAN
FASISMA
1969 var 14. Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva haldin í
Madríd
á Spáni.
Austurríkis-
menn kusu
að taka ekki
þátt í keppni
sem haldin
var í fasísku
einræðisríki. Franco var alveg
sama og mætti í sínum fínasta
einkennisbúning í sjónvarps-
sal. Sigurvegarar voru fjórir.
Holland, Bretland, Frakkland
og Spánverjar. Ekki var gert ráð
fyrir jafntefli í reglum keppn-
innar, hvað þá fjórtefli, svo allir
voru krýndir sigurvegarar.
Til voru fjórar verðlauna-
medalíur en þær voru ætlaðar
einum flytjanda og þremur
lagahöfundum. Útkoman varð
sú að hver sigurflytjandi fékk
medalíu en eftir sátu lagahöf-
undar hnípnir.
Franco mætti á
Eurovision.
1974: BESTA
EUROVISION-LAG
ALLRA TÍMA
Á 50 ára afmælisári Euro-
vision-keppninnar var besta
lag í sögu keppninnar valið.
Sigurvegarinn var Waterloo
með diskódrottningunum og
glamúrkóngunum í ABBA.
Það fer vel að á hátindi disk-
ósins hafi Svíþjóð, hin óbilandi
verksmiðja pólitískt réttrar
dægurlagatónlistar, sigrað
með einskonar popp-diskólagi
sem allir gátu sveiflað sér við í
ómótstæðilegu algleymi.
Þetta árið var söngvakeppn-
in haldin í Brighton í Englandi.
Ekki það að Bretar hafi unnið
árið áður með glysrokki sem
tröllreið Bretlandseyjunum.
Ástæðan var að sigurvegarar
keppninnar 1973, Lúxemborg,
höfðu ekki fjárhagsleg tök á að
halda keppnina.
Nú hafa keppendur í Euro-
vision verið í Helsinki í nokkra
daga við æfingar og á blaða-
mannafundum. Eins og áður
eru ákveðnar þjóðir sem vekja
mesta athygli fyrir keppnina,
ýmist fyrir falleg lög, fallegt
fólk eða fyrir að skera sig úr
fyrir undarlegheit. Af þeim
þjóðum sem fóru beint í
úrslitakeppnina má segja að
úkraínska draggdrottningin,
Verka Serduchka, hafi vakið
hvað mesta eftirtekt en einnig
hafa aðrar þjóðir fengið mikla
athygli.
DRAGGDROTTNINGIN VINSÆL
Úkraínska draggdrottningin hefur
vakið gríðarlega athygli í Helsinki
og að margra mati mun hún stela
senunni á úrslitakvöldinu. Hing-
að til hefur hún fengið mesta at-
hygli allra keppendanna og feng-
ið flesta blaðamenn á blaðamanna-
fundi sína.
Á sviðinu klæðist drottningin
silfurdressi frá toppi til táar líkt og
dansarar hennar og bakraddasöng-
konurnar. Atriðið þykir fyndið og
skemmtilegt auk þess sem lagið er
það grípandi að salurinn er fljótur
að taka undir á æfingum.
Verka Serduchka heitir í raun
Andrii Danylko og er mjög þekkt-
ur í Úkraínu og nágrannalöndun-
um en einnig í Kanada og Banda-
ríkjunum. Nýjasta plata Danylko
hefur selst í yfir milljón eintökum.
FÆKKA FÖTUM Á SVIÐINU
Gríska atriðið í ár er rokkað og
hressilegt lag með kynþokkafullri
sviðsframkomu. Söngvarinn Sarbel
er í forgrunni en í kringum hann
dansa fjórar eggjandi dansmeyj-
ar sem fækka fötum í síðari hluta
lagsins og dansa til enda á korsel-
etti og sokkaböndum.
Eurovision-spekingarnir segja
Grikki nota öll trixin í bókinni
þegar kemur að atriði þeirra og
þykir það vænlegt til árangurs og
fangi athygli áhorfenda.
IDOLSTJARNA HEIMAMANNA
Finnska söngkonan Hanna Pakar-
inen kemur fram fyrir hönd heima-
manna í Eurovision-keppninni og
hefur vakið mikla hrifningu jafnt
meðal heimamanna sem gesta fyrir
keppnina. Hún er sögð standa fylli-
lega undir væntingum Finna með
rokk-popplagi sínu sem hún þykir
flytja af miklum krafti og er talin
líkleg til að hala inn fjölda stiga
fyrir heimamenn í keppninni.
Hanna vann finnsku Idol-keppn-
ina árið 2004 með miklum yfir-
burðum og hefur slegið verulega í
gegn síðan. Síðar sama ár gaf hún
út plötuna Heaven sem fór í platínu
á örfáum dögum frá útgáfu og að
lokinni keppni í Eurovision stefn-
ir útgefandi hennar að því að koma
henni á markað víðar í álfunni.
FAGMANNLEGIR SVÍAR
Sænska hljómsveitin The Ark flyt-
ur lagið The Worrying Kind í keppn-
inni í ár og eru sagðir afar fagmann-
legir í vinnubrögðum og huga vel að
öllum smáatriðum á sviðinu.
Hljómsveitin hefur notið mikilla
vinsælda í heimalandi sínu allt frá
árinu 2000 og stefnir á að ná inn á
stærri markað í Evrópu að lokinni
keppni.
UNDIRBÚNINGUR Í HEILT ÁR
Rússland sendir kynþokkafulla
stúlknabandið Serebro sem full-
trúa sína í Eurovision þetta árið
en bandið mun flytja lagið Song
number One.
Bandið samanstendur af hinum
ungu söngkonum Elenu, Marinu og
Olgu sem voru sérstaklega vald-
ar af rússneska framleiðandanum
Max Fadeev til að vera fulltrúar
Rússa. Allar hafa þær áður skap-
að sér nafn í Rússlandi, hver í sínu
lagi, og munu í fyrsta sinn koma
fram saman opinberlega í Helsinki
í kvöld.
Rússar hafa lagt gríðarlega
mikið í að gera lagið og alla um-
gjörð sem best úr garði enda hefur
undirbúningur staðið í ár.
Í ANDA SJÖTTA ÁRATUGARINS
Hinn þýski Roger Cicero kemur
til með að flytja djasslag ásamt
big bandi á sviðinu í Helsinki í
kvöld fyrir hönd heimalands síns.
Lagið tileinkar hann öllum konum
heimsins en lagið ber einmitt nafn-
ið Frauen Regier‘n Die Welt, eða
Konur stjórna heiminum.
Cicero er sjarmerandi á svið-
inu í sinni einföldu sviðsframkomu
en þykir einkar góður og lagviss
söngvari sem heillar áhorfendur
auðveldlega á sviðinu án þess að
vera með neinn íburð.
Söngvarinn náði gríðarlegum
vinsældum í Þýskalandi, Austur-
ríki og Sviss á síðasta ári þegar
hann sendi frá sér plötuna Manner-
sachen. Hann er rómantískur í tón-
og textasmíði og fékk verðlaun á
dögunum fyrir að vera besti karl-
kyns söngvari Þýskalands.
sigridurh@frettabladid.is
Sex þjóðir sem ættu að ná langt
Verka Serduchka frá Úkraínu hefur
vakið mikla athygli í Helsinki og er talin
geta gert góða hluti með lagið Dancing
Lasha Tumbai.
Grikkirnir gera að miklu leyti út á
kynþokkann í atriði sínu þar sem fjórar
fáklæddar dansmeyjar snúast í kringum
söngvarann Sarbel.
Hanna Pakarinen frá Finnlandi skaust hratt upp á stjörnuhimininn í heimalandi sínu
þegar hún sigraði í finnska Idolinu árið 2004. Hún er með kraftmikið atriði í keppn-
inni og heimamenn telja hana frábæran fulltrúa þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
Sænska hljómsveitin The Ark flytur lag
sitt The Worrying Kind í Helsinki í kvöld.
Hún stefnir á frekari frægð að keppni
lokinni en hefur notið vinsælda heima
fyrir í nokkur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
Kynþokkafulla og kraftmikla stúlkna-
bandið Serebro frá Rússlandi er vel
undirbúið fyrir keppnina en stöllurnar
flytja lagið Song Number One.
Roger Cicero er með lag í anda sjötta
áratugarins fyrir hönd Þjóðverja.
Íburðarlaust atriði hans hefur fallið vel í
kramið hjá aðdáendum keppninnar.
Gefðu þér 15 mínútur og sæktu
matinn til okkar þá færðu
2 lítra kók og spáköku frítt með!