Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 76
N
okkuð langt er
síðan svo virtur
sjálfstæður leik-
hópur hefur komið
hingað og er þá
næst að minnast
Theatre de Complicite. Cheek er
þó nokkru eldri og hefur verið
að frá 1981 þegar þeir félag-
ar og sambýlingar Nick Orme-
rod hönnuður og Declan Donn-
ellan leikstjóri settu þennan far-
andleikflokk á stofn. Orðspor
þeirra félaganna óx hratt: þeir
unnu markvisst út frá reynslu
eldri leikflokka af svipaðri
stærð, leikhús skyldi færa stað
úr stað. Því varð einfaldleikinn
ráðandi í leikmynd, áhersla lögð
á búninga og leikstíl sem málaði
verkin og lýsti sér í einstaklega
skýrri textatúlkun og hreyfingu.
Þeir lögðu sig líka strax í upphafi
eftir sígildum textum og kunnu
þá list fljótt að láta verkin ríma
við samtíðina.
Þeir félagar litu hér við í vikunni:
að baki var dvöl í Bandarikjunum
og á móti þeim tók fjallahringur,
svali og sól. Þetta var fyrsta heim-
sókn þeirra til Íslands og þeir áttu
ekki orð til að lýsa undrun sinni.
Það var svolítið erfitt að vakna og
jetlaggið var enn í skrokknum.
Með vaxandi frægð þeirra og
viðurkenningu hafa opnast dyr.
Nú sækja þeir verkefni sín út fyrir
flokkinn og kynni þeirra af rúss-
nesku leikhúsi hafa leitt il þess að
þeir standa nú að sviðsetningum í
Rússlandi og fara rússneski flokk-
urinn og sá enski víða um lönd.
Starfsemi sem þessi kallar á jarð-
bundna menn. Ferðalög stóran
hluta úr ári eru lýjandi og verk-
legur þáttur heimtar þrek af öllum
þátttakendum, stundum vikum og
mánuðum saman. Leikferðin vest-
anhafs hefur staðið í þrjá mán-
uði og á ferli flokksins hefur hann
leikið í 305 borgum í fimm heims-
álfum og 40 þjóðlöndum.
Nick segir þessi löngu ferða-
lög hafa sína kosti. Lengsta ferð
þeirra hafi staðið í 18 mánuði en
verkefnavalið, áherslan á klassísk
eldri verk, leiði til þess að sýning-
arnar batni: „Meistaraverkin búa
yfir svo mörgum lögum af merk-
ingu að það er stöðugt að koma eitt-
hvað nýtt í ljós í svo löngum ferð-
um. Ný verk búa ekki yfir slíkum
eiginleikum, þeim gæðum. Kerfið
í Bretlandi er þannig núna að það
eru stóru leikhúsin sem panta ný
verk. Fyrir yngri flokka er sjald-
gæft að fá ný verk í hendur nema
þeir hafi höfund innan sinna raða.“
Hann segir einfaldleikann sem
stafi af sýningum þeirra koma til
af þörf farandflokksins og ekki
síður vegna smekks þeirra. Þeir
kjósa einfaldan stíl og flest verkin
sem þeir sýna voru skrifuð fyrir
einfalda, jafnvel enga sviðsmynd.
Ferðalögin hafi marga kosti: eitt
sinn hafi þeir á þriggja vikna
tímabili leikið átján sinnum á ólík-
um stöðum fyrir ólíka áhorfendur.
Það sé spennandi.
Cheek by Jawl hefur lengst af
verið heimilislaus flokkur þótt
þau hafi jafnan sýnt í Donmar-
leikhúsinu í London og raunar litið
á það litla og fallega leikhús sem
sitt helsta skjól. Nú er að hefjast
önnur sýningartíð þeirra í Barbi-
can-leikhúsinu í City þar sem Kon-
unglegi Shakespeare-flokkurinn
hafði aðsetur um árabil. Þar sýndi
Vesturport Woyzeck í fyrra. Cheek
var boðið þar aðsetur um þriggja
ára skeið. Þeir leika á hinu firna-
stóra sviði og byggja þar áhorf-
endasvæði, líkt og stundum hefur
verið gert hér á stóra sviði Borg-
arleikhússins.
Flokkurinn var til skamms tíma
í þeim hópi sjálfstæðra leikhúsa
sem hafði langtíma styrktarsamn-
inga, líkt og t.d. Hafnarfjarðar-
leikhúsið og Leikfélag Akureyr-
ar hafa hér á landi. Þess utan voru
hópar sem fengu aðeins styrki til
einstakra verkefna, rétt eins og
hér. Nú fær Cheek rúmlega 300
þúsund pund í árlegan styrk eða
38 milljónir. Það dugar í ár segir
Nick til þess að sýna Cymbeline
og fá systurflokkinn rússneska til
Bretlands í sýningarferðalag með
Þrjár systur eftir Tjekov. Íslensk-
um leikhúsmönnum væri hollt
að líta til þess hvað Cheek fær í
styrk.
Declan og Nick hafa um árabil
átt samstarf við rússneska leik-
ara. Þeir voru að sýna í Finnlandi
og var þá bent á sýningar Maly-
leikhússins í St. Pétursborg sem
Annað og meira en bara orðin
Leikhúsmenn Evrópu myndu lýsa heimsókn breska leikhópsins Cheek by Jawl sem einum af hápunktum Listahátíðar í Reykja-
vík væri þeim kunnugt um að leið hans liggur hingað í vikunni. Flokkurinn sýnir Simbelínu eftir Shakespeare fjórum sinnum í
Þjóðleikhúsinu frá þriðjudagskvöldi fram á föstudag. Páll Baldvin Baldvinsson hitti stofnendur og listræna stjórnendur hópsins
einn morgun yfir kaffi, þá Declan Donnellan og Nick Ormerod.