Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 30
Íslenskar konur fá kosningarétt
„Ef maður hlýðir öllum regl-
unum missir maður af öllu
fjörinu.“
Helga Möller söngkona á afmæli í dag.
Þessi ástsæla söngkona sem hefur fyrir
löngu sungið sig inn í hug og hjörtu
þjóðarinnar stendur nú á fimmtugu.
Hún hefur þó engu tapað af lífsgleði
með árunum, nema síður sé, enda sí-
syngjandi.
Það stendur ekki til að halda neina
veislu í tilefni dagsins, enda óvanalega
mikið að gerast í dag. „Ég ætla að kjósa
og gera eitthvað skemmtilegt tengt því
og horfa síðan á Eurovision. Í kvöld
ætla ég svo að syngja eina lagið sem
ég kann, Gleðibankann, í Eurovision-
partíinu hans Páls Óskars á Nasa,“
segir hún og hlær.
Helga segir að sér líði afskaplega vel,
hún sé í góðu jafnvægi, við fína heilsu
og sé afskaplega heppin með fjölskyldu
og vini.
„Það er reyndar svolítið blendin til-
finning að verða fimmtug,“ segir Helga
„Ég man þegar ég varð fertug, þá fannst
mér það bara vera flott tala og hugs-
aði lítið um þetta en núna þegar ég er
orðin fimmtug er þetta svolítið öðru-
vísi. Maður fer að finna allar leiðir til
að segja að þetta sé besti aldurinn, nú
sé besti tíminn fram undan og maður
ákveði sjálfur hvort lífið verði skemmti-
legt eða ekki. Ef maður ákveður það ekki
sjálfur verður allt bara hundleiðinlegt.“
Trú orðum sínum er Helga farin að
stunda golf og hlakkar til að gera það
ævina á enda. Hún notar hvert tæki-
færi til að spila og er nýkomin úr af-
mælisgolfferð í útlöndum. Helga segir
hlæjandi að það væri nú ekki leiðinleg-
ur dauðdagi að deyja bara hundrað ára
á golfvellinum.
Golfið er ekki það eina nýja í lífi henn-
ar heldur er hún orðin amma, þó hún sé
raunar mjög upptekin amma. „Ég kalla
mig Ömmu diskó. Ég er enn að spila og
syngja diskólögin alveg á fullu og svo
er ég líka að fljúga.“
Helga er ánægð með lífið og ætlar
sér að fara inn í sextugsaldurinn með
opnum huga. Hún hefur jafnvel hug á
að mennta sig meira. Hún segir að það
sé ekkert sem maður geti ekki gert og
maður geti alltaf bætt einhverju við sig
og orðið að betri manneskju.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
Jóhönnu Aðalsteinsdóttur
frá Vaðbrekku.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki FSA og
Kristnesspítala fyrir einstaka aðhlynningu í veikindum
Jóhönnu. Sú hlýja og umönnun sem henni var sýnd
verður aldrei fullþökkuð. Einnig þökkum við öllu því
góða fólki sem gerði útför hennar einstaklega fallega
með tónlistarflutningi, blómum og hlýjum kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalsteinn Helgason Ágústa Þorsteinsdóttir
Kristjana Helgadóttir Arnar Björnsson
Bjarni Hafþór Helgason Margrét Þóroddsdóttir
Helgi Helgason Anna Guðrún Garðarsdóttir
Ingibjörg Helgadóttir Halldór Benediktsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Guðrún
Bjarnadóttir
lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 25. apríl. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Jóhanna Gústafsdóttir Ragnar Hinrik Ragnarsson
Árni Gústafsson Bára Ásgeirsdóttir
Áslaug Kristín Pálsdóttir
Sigurður Arnar Ólafsson Heiða Guðrún Einarsdóttir
Ágústa Guðrún Ólafsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og tengdamóðir,
Svava Kristín Björnsdóttir
fornbókasali, Sóltúni 28, Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. maí síðastliðinn.
Hrafnkell Guðjónsson
Soffía Hrafnkelsdóttir Einar Gunnar Einarsson
H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir
Heimir Hrafnkelsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför sonar míns, bróður, mágs
og frænda,
Halldórs Gunnars
Hringssonar
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
Sigrún Halldórsdóttir
Gunnjóna Sigrún Hringsdóttir Jónas Sigurðsson
Guðbjörg Hringsdóttir Páll Guðmundsson
Hjörleifur Hringsson Elín Baldursdóttir
Sigrún Edda Hringsdóttir Hafsteinn Jónsson
Hinrik Hringsson Ingibjörg Þráinsdóttir
frændsystkin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Sævaldsson
tannlæknir, Sefgörðum 10, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju, þriðjudag-
inn 15. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast Harðar er bent á reikning
0372-13-110667, kt. 080657-5959, sem stofnaður hefur
verið í minningu hans. Það fé sem safnast verður sett
í minningarsjóð og notað til að efla þekkingu á sviði
tannverndar og tannlækninga á Íslandi.
Ragnheiður Marteinsdóttir
Helga Harðardóttir Sturla Jónsson
Hildur Harðardóttir Óskar Einarsson
Friðrika Þóra Harðardóttir Friðbjörn Sigurðsson
Hjördís Edda Harðardóttir Arnór Halldórsson
Ragnheiður Harðar Harðardóttir Lýður Þorgeirsson
Sævaldur Hörður Harðarson Dagný Lind Jakobsdóttir
Hörður Harðarson
Sigríður Marta Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
FÆDDUST ÞENNAN DAG