Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 10
„Mér finnst allt benda
til þess að Sjálfstæðisflokkurinn
muni standa með pálmann í hönd-
unum eftir þessar kosningar og
geti valið sér bólfélaga,“ segir
Birgir Guðmundsson, lektor við
félagsvísinda- og lagadeild
Háskólans á Akureyri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
mælst með töluvert meira fylgi í
könnunum að undanförnu en hann
fékk í kosningunum 2003. Birgir
telur áframhaldandi ríkisstjórnar-
samstarf Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins vera háð því
að Framsóknarflokkurinn fái yfir
fjórtán prósenta fylgi. „Ef Fram-
sóknarflokkurinn fær yfir fjórtán
prósenta fylgi og ríkisstjórnin
heldur velli, þá finnst mér líklegt
að samstarf flokkanna haldi
áfram. En það getur vitanlega líka
skipt máli hvort Jón [Sigurðsson]
nær þingsæti. Það styrkir ekki
samningsstöðuna að loknum kosn-
ingum ef formaður flokksins
kemst ekki á þing.“
Einar Mar Þórðarson, stjórn-
málafræðingur hjá Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, segir allt
stefna í gríðarlega spennandi
kosningar. „Það er alveg ljóst í
mínum huga að þetta verða
gríðarlega spennandi kosningar
eins og kannanir hafa verið að
gefa til kynna. Spennupunkturinn
verður líklega sá hvort ríkisstjórn-
in heldur velli eða ekki. Í ljósi þess
held ég að kjósendur muni velta
málunum fyrir sér út frá þessum
punkti öðrum fremur.“
Þrátt fyrir að kosningabaráttan
hafi verið átakalítil segir Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, hana hafa verið málefna-
lega. „Kannanirnar hafa aðallega
verið svolítið misvísandi hvað
varðar Sjálfstæðisflokkinn en ég
hef trú á því að hann muni mælast
með 36 til 38 prósenta fylgi. Kosn-
ingabaráttan hefur einkennst af
færri álitamálum en árið 2003. Þá
var mikil harka og tekist harka-
lega á um ýmis atriði, til dæmis
um innrásina í Írak og stuðning
stjórnvalda við hana. Núna hefur
baráttan verið rólegri en um leið á
margan hátt málefnalegri. Það
hefur verið tekist á um hvernig
skuli bæta hag ýmissa hópa, til
dæmis aldraðra, og það skýrir
stöðuna fyrir kjósendum.“
Gríðarlega
spennandi
kosningar
Stjórnmálafræðingar segja kosningarnar í kvöld
gríðarlega spennandi. Styrkir ekki samningsstöð-
una fyrir Framsóknarflokkinn ef Jón Sigurðsson
kemst ekki inn á þing, segir Birgir Guðmundsson.
Í kosningunum á morgun eru fjölmargir
frambjóðendur í þeirri stöðu að geta ekki kosið
sjálfa sig. Það gerist þar sem þeir hafa ekki
lögheimili í kjördæminu sem þeir bjóða sig fram í.
Sé litið til fimm efstu sæta allra 36 listanna sem
boðnir eru fram kemur í ljós að 40 af 180 frambjóð-
enda eru í þessari stöðu.
Og sé litið til oddvita listanna má sjá að átta af 36
hafa lögheimili í öðru kjördæmi.
Þetta á við um þrjá frambjóðendur Íslands-
hreyfingarinnar; þau Ástu Þorleifsdóttur, sem er í
framboði í Suðurkjördæmi en býr í Reykjavík, og
Ómar Ragnarsson og Margréti Sverrisdóttur, sem
eru bæði í framboði í Reykjavík suður en búa í
Reykjavík norður. Þetta á einnig við um hin Vinstri
grænu Atla Gíslason, sem er í framboði í Suðurkjör-
dæmi en býr í Reykjavík, Ögmund Jónasson, sem er
í framboði í Suðvesturkjördæmi en býr í Reykjavík
og Katrínu Jakobsdóttur, sem býr í Reykjavík suður
en er í framboði í Reykjavík norður.
Sömu sögu er að segja af Magnúsi Þór Haf-
steinssyni, Frjálslynda flokknum, sem býr á
Akranesi en er í framboði í Suðurkjördæmi, og
Jóni Sigurðssyni, Framsóknarflokki, sem er í
framboði í Reykjavík norður en býr í Kópavogi.
Kosningakaffi
6. sæti
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
1. sæti
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
2. sæti
Bjarni
Benediktsson
7. sæti
Rósa
Guðbjartsdóttir
5. sæti
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
3. sæti
Ármann Kr.
Ólafsson
4. sæti
Jón Gunnarsson
Verið er að ljúka
yfirheyrslum og taka saman
lausa enda í rannsókn á fjár-
svikamálinu sem kom upp hjá
Tryggingastofnun í fyrrasumar.
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota, segir
hilla undir lok rannsóknar.
„Við þurfum að gefa okkur
mánuð í viðbót. Það á eftir að
fara yfir rannsóknargögn og
meta hvort við ákærum og
skrifa þá ákæruna. Rannsóknin
sjálf er langt komin, yfir-
heyrslur, samantekt og gagnaöfl-
un, þetta er allt langt komið,“
segir hann.
Mánuður eftir í
lok rannsóknar