Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 95

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 95
Óvenjuleg myndlistarsýning á vegum hátíðarinnar List án landa- mæra verður opnuð í Norræna húsinu í dag. Þetta er sannköll- uð parasýning þar sem fimmtán ólíkir listamenn sameina krafta sína en meðal þátttakenda eru meðal annars pörin Gauti Ás- geirsson og Finnbogi Pétursson, Halldór Dungal og Hulda Hákon og Guðrún Bergsdóttir og stúlk- urnar í Gjörningaklúbbnum. Myndlistarfólkið Davíð Örn Halldórsson og Sigrún Huld Hrafnsdóttir, sem einnig er kunn fyrir afrek sín á íþróttasviðinu, unnu saman að verkinu „Kofa- köttur“. „Þetta er stórt málverk á viðarplötu, unnið með bland- aðri tækni,“ útskýrir Davíð. „Við erum bæði úthverfabörn og alin upp í Breiðholti svo það mætti segja að viðfangsefnið væri sam- spil úthverfanna og náttúrunn- ar.“ Davíð segir að samstarfið hafi gengið vel og þau séu bæði við stjórnvölinn en hlutverk hans hafi meðal annars verið að stækka sýn samstarfskonu sinn- ar. „Ég sá strax að Margrét [M. Norðdahl, framkvæmdastjóri Listahátíðar án landamæra] hafði haft rétt fyrir sér að para okkur saman. Við erum bæði mjög litrík og alveg smellpössum saman.“ Davíð er mjög ánægður með þetta framtak. „Þetta er ótrúlegt fyrirbæri, það eru frjóir hugar sem standa að baki þessu og myndlist þátttakendanna er það líka. Ég hef sjálfur verið að vinna svolítið með utangarðsmyndlist og gat því ekki afþakkað svona tækifæri. Svo er auðvitað dásam- legt að kynnast Sigrúnu og henn- ar myndum.“ Samstarfsverkefninu eru margskonar. Til dæmis sýnir myndlistarkonan Hulda Hákon verk sem blindir geta skoðað með höndunum. Hennar samstarfs- maður Halldór Dungal er aftur blindur málari sem sýnir verk fyrir sjáandi. Tolli og Gígja Thor- oddsen sýna málverk af fólki, þar af eitt sem þau unnu í samein- ingu, og Guðrún Bergsdóttir og Gjörningaklúbburinn sýna innri mynstur, textíl og vídeóverk sem þessar fjórar listakonur hafa unnið saman. Sýningin verður opnuð kl. 15 í dag en hún stendur til 3. júní. Hún er opin alla daga nema mánudaga milli 12 og 17. Óvenjuleg listapör Þuríður Sigurðardóttir, Þura, kynnir myndbandsverk og sína nýjustu málverkaröð á sýningunni „STÓГ í galleríi Suðsuðvestur í Reykjanesbæ. Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag. Viðfangsefni á sýningunni er ís- lenski hesturinn og býður lista- maðurinn áhorfandanum að taka þátt í rannsókn sinni á tengslum manns og dýrs í gegnum upplifun lita og áferðar feldsins. Með því að höfða til löngunarinnar til að klappa mjúkum dýrum verða mál- verkin nánast ómótstæðileg og um leið koma fram spurningar um málverkið sem miðil. Þaulunnin og tímafrek kallast þau á við lista- söguna og vega salt milli hins fíg- úratífa og abstrakt. Um leið og Þura vinnur með upp- lifun áhorfenda í sýningarrýminu skoðar hún líka eigin upplifun úti í náttúrunni í hestamennsku. Hún reynir ekki að endurgera reiðtúr heldur, líkt og í málverk- unum, einangrar takmarkaðan hluta þeirrar upplifunar og þaul- skoðar í formi myndbands. Tengsl hests og manns Dans-leikhúsið Pars pro toto er vaknað enn á ný eins og það gerir reglulega: tilefnið er boð um að sýna tvö verk á hátíð í Stuttgart í Þýskalandi hinn 18. og 19. maí næstkomandi. Þar hefur flokkn- um verið boðið að sýna verkin Von og G.Duo á Íslandshátíð þar í bæ. Og meðan járnið er heitt verða tvær sýningar hér á landi í sam- starfi við Íslensku óperuna, sú fyrri í dag kl. 17 og á morgun kl. 20. Pars pro toto (PPT) er sjálf- stæður danshópur undir forystu Láru Stefánsdóttur, en hópurinn setur að jafnaði upp eina til tvær nýjar sýningar á ári, með marg- víslegum dönsurum og lista- mönnum. Að þessu sinni frum- flytur PPT verkið G.Duo og eru höfundar þau Lára Stefánsdóttir og Vicente Sancho. Vinnuaðferð- ir Láru og Vicente Sancho eiga sérlega vel saman, Sancho kemur úr heimi látbragðsins með rætur í Decroux-tækni og bókmenntum en hefur einnig unnið mikið sem dansari og leikari. Lára Stefánsdóttir hefur langa reynslu að baki sem dansari og danshöfundur og unnið til marg- víslegra verðlauna og viðurkenn- inga fyrir verk sín. Þau dansa í G.Duo ásamt þeim Kamil War- chulski frá Póllandi, Sögu Sig- urðardóttur og Sverri Guðjóns- syni. Leikræn útfærsla er í um- sjón Vicente Sancho, tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson og Guðna Franzson en um lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson. G.Duo er styrkt af Reykjavíkur- borg. Dansverkið Von var sýnt í Íslensku óperunni í nóv 2005 og fékk fádæma góðar viðtökur. Von er byggt í kringum nokkur ljóða Árna Ibsen rithöfundar og er nú endursýnt með nýjum karldans- ara, Kamil Warchulski, sem leysir Hannes Egilsson af hólmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.