Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 112
Sumarið
er tíminn...
Morgunmatur
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
195,- 490,-
SOMMAR íspinnamót
H10 cm ýmsir litir
195,-
BROMMÖ fellistóll 48x89 cm
gegnheill akasíuviður 4.995,- SOMMAR strandpoki
45x45 cm marglitur
SOMMAR diskamotta 4 stk.
37x37 cm ýmsir litir 250,-
SOMMAR kökuhjálmur
Ø35 cm ýmsir litir 395,-
FÄLLÖN kollur
35x35x83 cm
gegnheilt beyki 695,-
SOMMAR
drykkjarhræra
4 stk. L24 cm 195,-
SOMMAR flugnaspaði 2 stk.
L47 cm ýmsir litir
SOMMAR pappadiskar
50 stk. ýmsir litir 395,-
SOMMAR servíettur 50 stk.
33x33 cm ýmsar tegundir 195,-
SOLKATT ísskeið
L17 cm
SOMMAR borðdúkur
m/6 servíettum 145x240/40x40 cm
ýmsir litir 1.695,-/settið
SOMMAR plastpokar 10 stk.
24x20 cm ýmsir litir 150,-
SOMMAR einnota glös 50 stk.
H9 cm ýmsir litir 295,-
SOMMAR bakki
33x33 cm ýmsir litir 495,-
GRENÖ púði
40x60 cm marglitur 895,-
95,-
95,-
95,-/stk
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Ídag er komið að því að almenn-ingur taki umsóknir nokk-
urra einstaklinga um störf í hans
þágu til umfjöllunar. Margur um-
sækjandinn hefur verið á þönum
um borg og bý undanfarið í sínu
fínasta pússi og freistað þess að
segja vinnuveitandanum í stuttu
máli fyrir hvað hann standi og
hvers vegna honum sé best treyst-
andi fyrir starfinu. Í þessari kosn-
ingabaráttu steig undirritaður sín
fyrstu skref í þessum viðsjárverða
heimi og lét reyna á sannfæring-
arkraft sinn í þágu málstaðarins.
Í kvöld kemur í ljós hvort árang-
ur hafi náðst. Þumall upp eða þum-
all niður.
get vitaskuld ekki neitað því
– og kannski óhætt að segja það
svona í lokin á baráttunni – að í hita
leiksins, þegar dýpstu öldudalirnir
gengu yfir, hvarflaði að hinum
unga frambjóðanda að grípa til
óhefðbundinna aðferða í atkvæða-
öflun. Einni aðferð velti ég til
dæmis talsvert fyrir mér, en hún
snýst um að ná ákveðnu návígi við
kjósendur. Þannig er nefnilega mál
með vexti að afi minn heitinn, sem
einnig var stjórnmálamaður, átti
það til að fara um kjördæmið sitt
norður á Ströndum og glíma þar
við bændur, í bókstaflegri merk-
ingu, og hafði þá jafnan undir.
vakti lukku. Á tímabili,
þegar fylgið virtist vera sam-
kvæmt könnunum í ákveðnu lág-
marki, velti ég því vissulega fyrir
mér hvort ég ætti að reyna svip-
aðar aðferðir. Hefði verið tilhlýði-
legt að ganga í hús í Suðvesturkjör-
dæmi og glíma við fólk? Ég hætti
hins vegar við þetta þegar mér
varð ljóst –í kjölfar sjálfsskoðun-
ar—að ég myndi líklega óþægilega
oft, sökum vankunnáttu á þessu
sviði, verða lagður undir. Einn
kraftajötunn – búsettur í kjördæm-
inu – benti mér á það glottandi út í
annað að ef ég vildi endilega gera
þetta gæti ég jú kannski farið í
grunnskólana og glímt við börnin.
annarra aðferða sem ég
íhugaði voru aðferðir af því tagi
sem henta vel til þess að ná upp svo-
kölluðu samúðarfylgi – eins og t.d.
að falla í yfirlið á almannafæri eða
detta í læk – en þær hugrenningar
mínar strönduðu á því að ég vissi
aldrei almennilega hvar og hvernig
ég ætti að koma slíku í framkvæmd.
Myndi fólk taka eftir því ef eitthvað
svona kæmi fyrir mig? Þyrfti ég
ekki að kalla til sérstaklega blaða-
menn og ljósmyndara, áður en við-
burðurinn ætti sér stað?
hljómaði of flókið. Í lokin
komst ég auðvitað að því að vita-
skuld er alltaf best að reyna að
segja einfaldlega á skýru manna-
máli hvað maður sjálfur og flokkur-
inn manns vill gera ef hann fengi
að ráða. Það er alltaf klassískt. Í
öllu falli hefur þessi kosningabar-
átta verið skemmtileg og spennan
sjaldan verið meiri. Skoðanakann-
anir sýna fylgi allra upp og niður
eins og í jójói. Enginn veit hvað
hver og einn gerir í kjörklefanum.
Þar eru allir frjálsir og jafnir til
þess að taka þá ákvörðun sem sam-
viska þeirra og hjarta býður þeim.
Njótum þess vel, því það eru for-
réttindi. Gleðilegan kjördag!
Gleðidagur