Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 52
 12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR4 fréttablaðið eurovision 1956: VAFASAMAR KOSNINGAREGLUR Fyrsta Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var hald- in í Lugano í Sviss árið 1956. Keppnin var fyrst og fremst útvarpskeppni enda sjónvarpstæki ekki mörg í Evrópu á þessum tíma. Sjö lönd tóku þátt og sendi hver þjóð tvö lög til keppni, auk tveggja dómara sem tóku þátt í leynilegri atkvæðagreiðslu sem skar úr um úrslitin. Löndin sjö voru Frakkland, Sviss, Lúxemborg, Holland, Belgía, Þýskaland og Ítalía. Sviss sigraði á heimavelli, en það þarf ekki að koma á óvart þar sem kosningareglurnar voru vægast sagt vafa- samar. Engar hömlur voru á því hvaða lag mátti kjósa og gat dómari því gefið eigin þjóð stig. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva hafði einnig atkvæðisrétt en samtökin leyfðu Svisslendingum að kjósa fyrir sína hönd. Hvern skyldu þeir hafa kosið...? Þar með er ekki öll sagan sögð því dómararnir frá Lúxemborg mættu of seint og kusu ekki. Þar með hurfu möguleikar Lúxemborgara. Hverju sem því líður sigraði Lys Assia með laginu Refrain. Kannski er óþarfi að taka það fram en kosninga- kerfinu var breytt fyrir næstu keppni. Lys Assia er jafn glæsileg í dag og hún var árið 1956. Miklar vangaveltur eru í Finnlandi um hvort stokka þurfi Eurovision upp á nýtt. Ástæðan er sú að þjóðirnar í Austur-Evrópu þykja hafa of mikil áhrif á úrslitin. „Ég held að við ættum að gefa skít í þessa keppni og leyfa austrinu að eiga þetta,” segir Eiríkur Hauks- son. Þótt hann hafi ekki komist áfram í forkeppni Eurovision segist hann ekki tapsár. „Ég er glaður yfir því að Austur-Evrópulöndin hafi komið svona vel upp um sig. Það sjá allir sem líta á listann yfir þjóðirn- ar sem komust áfram að það er eitt- hvað að,” segir Eiríkur og bætir við að eitthvað þurfi að gera ef ætlun Íslendinga er að halda áfram þátt- töku. Í sama streng tóku fulltrúar fjölda annarra þjóða sem ekki kom- ust áfram í keppninni. Hollenska liðið er mjög undrandi að lagið On Top of the World hafi ekki skilað sér í gegn, Ísraelar eru einnig furðu slegnir og íhuga að hætta. Sýnu reiðastir virðast þó Svisslendingar sem buðu áhorfendum upp á lagið Vampires are Alive með plötusnúð- inn DJ Bobo í farabroddi. Á blaðamannafundi tók Sviss- lendingurinn Bobo í sama streng og Eiríkur. Samlandar hans á fund- inum spurðu hann fullir samúðar hvað Sviss gæti eiginlega gert. „Við höfum aldrei eytt jafn miklum pen- ingi í kynningu á lagi og nú. Þetta var gott lag sem átti skilið sigur, heldur þú að við ættum að hætta þessu?“ spurði einn blaðamaður- inn, augljóslega forviða yfir úrslit- unum. Bobo svaraði því til að slíkt gæti vel komið til greina. Lífið virðist þó ekki leika við alla þá sem komust áfram. Koldun, sæti strákurinn frá Hvíta-Rússlandi, hefur verið lasinn og blaðamenn skopast að því að þarna sé um sann- an Hvít-Rússa að ræða en drengur- inn þykir ákaflega fölur og tekinn. Fyrir forkeppni tóku snyrtifræð- ingar hann og mökuðu sólbrúnku á hann en læknar eru sagðir hafa gefið honum stera til að hressa hann við. Eftir keppnina virtist hann ör- þreyttur og leit út fyrir að vera allt annað en glaður með árangurinn. Sögusagnir eru um að álagið sé búið að leika hann grátt. Hvíta-Rússland taki keppninni mjög alvarlega og sætti sig við ekki við neitt annað en sigur. Kröfurnar hafi reynt mikið á unga manninn. Keppnin í Finnlandi er því langt frá því að vera eitthvert gaman- mál og telja Eurovision-spekingar að róttækar breytingar verði gerð- ar á fyrirkomulaginu eftir þessa keppni. „Það er alveg greinlegt að þessi keppni er hætt að snúast um tón- list heldur það hver eigi flesta ná- granna,“ segir Eiríkur og hvetur Ís- lendinga til að kjósa aðeins Svía eða Finna í aðalkeppninni á laugardag- inn. „Austur-Evrópa hefur lýst yfir stríði og mér finnst að við eigum að svara í sömu mynt,“ sagði Eiríkur. DJ Bobo og Eiríkur vilja gefa skít í Eurovision DJ Bobo segir Svisslendinga aldrei hafa eytt eins miklum peningum í Eurovision og nú. Hann er ósáttur við að góð lög eins og lagið hans eigi ekki séns í Austur-Evrópumafíuna. Eiríkur Hauksson tekur undir með Bobo og vill að Ísland hætti að taka þátt í Eurovision. HINIR SÍÐUSTU VERÐA FYRSTIR Ávallt er mikil spenna þegar dregið er um röð laganna í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Margir telja að miklu máli skipti að vera á réttum stað í röð- inni til að eiga séns á að vinna. „Hjátrú,“ segja sumir en tölurnar tala sínu málu. Best virðist vera að vera síðasta flytjandinn í keppninni en sex sinnum hefur sigurvegarinn verið valinn úr hópi þeirra. Ekki er heldur amalegt að stíga fyrstur á svið en þrisvar hefur vinningshaf- inn hafið raust sína í upp- hafi keppni. Fjórtán sigur- vegarar hafa verið meðal þriggja síðustu laga á svið. Í þau 51 ár sem keppnin hefur staðið yfir hafa þau lög sem komið hafa fram númer 2,7,16,21,23,25 og 26 aldrei unnið. Nú er bara að sjá hvern- ig Nataliu Barbu frá Mold- avíu reiðir af en hún verð- ur síðust á svið í kvöld. Natalia Barbu flytjandi lagsins Fight frá Moldavíu verður síðust á svið í kvöld. Spurning hvort að það og efnislitlu buxurnar verði nóg til að tryggja henni sigur. Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi Tjáðu þig! Viltu sýn’eikkað? Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg Stæsta bloggsamfélagið! Yfir 150.000 notendur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.