Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 12
Rúmlega fimmtugur maður hefur
verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í sex
mánaða fangelsi fyrir að hafa haft mikið magn
af barnaklámi í tölvum sínum. Meðal þess sem
maðurinn hafði viðað að sér voru myndir af
mjög ungum börnum, nánast niður í reifabörn,
sem svívirt eru á ruddalegan og klámfenginn
hátt, að því er fram kemur í gögnum dómsins.
Í turntölvu, fartölvu og á útværum hörðum
diski sem fundust hjá manninum reyndust
vera samtals 6.548 ljósmyndir og 179 hreyfi-
myndir sem sýna börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt.
Maðurinn játaði greiðlega sök við þingfest-
ingu málsins.
Í gögnum málsins kemur fram að hann
kvaðst hafa „einhverja söfnunarþörf“ á svona
klámefni og hafði safnað því undanfarin tvö ár
þegar lögreglan lagði hald á tölvur hans.
Dómurinn taldi brotið stórfellt. Ekkert hefði
komið fram í málinu um að maðurinn, sem er
fjölskyldumaður, hefði leitað sér aðstoðar til að
vinna bug á áhuga sínum á klámefni þar sem
börn eru fórnarlömb. Helmingur refsingarinn-
ar var skilorðsbundinn, en manninum var gert
að greiða allan málskostnað.
Lýðræðissinnaflokkar
Serbíu náðu í gær loks samkomu-
lagi um að mynda saman ríkis-
stjórn, fjórum mánuðum eftir að
þingkosningar fóru fram í land-
inu. Frá þessu greindi þingfor-
setinn Tomislav Nikolic, sem
sjálfur er leiðtogi öfgaþjóðernis-
sinna. Með stjórnarmyndunar-
samkomulaginu var því afstýrt
að flokkur hans, Róttæki flokkur-
inn, kæmist til valda.
Nikolic tjáði AP-fréttastofunni
að Boris Tadic forseti og Vojislav
Kostunica, starfandi forsætisráð-
herra, hefðu náð saman um
stjórnarmyndunina. Samkvæmt
fréttum serbneskra fjölmiðla
felst meðal annars í samkomu-
laginu að Nikolic haldi ekki þing-
forsetaembættinu sem hann var
kjörinn í fyrr í vikunni.
„Mér var tilkynnt að samkomu-
lag um myndun nýju ríkisstjórnar-
innar hefði náðst,“ sagði Nikolic.
„Ég mun kalla saman þing, senni-
lega á morgun, til að kjósa nýju
stjórnina.“
Nikolic sagðist frekar myndu
segja sjálfur af sér en láta skipta
sér út fyrir annan. Hann sagðist
ennfremur vænta þess að
Kostunica myndi halda forsætis-
ráðherraembættinu.
Hefði ekki tekist að mynda
stjórn fyrir næsta þriðjudag
hefði þurft að boða til kosninga á
ný, en ljóst þykir að eingöngu
Róttæki flokkurinn hefði grætt á
því, en hann er nú þegar stærsti
flokkurinn á þingi.
Ráðamenn á Vesturlöndum og
grannríki Serbíu fylltust að gefnu
tilefni áhyggjum af því hvert
Serbía stefndi þegar Nikolic náði
í vikunni kjöri til embættis þing-
forseta. Róttæki flokkurinn átti
aðild að stjórn Slobodans
Milosevic á tíunda áratugnum,
þegar Serbar háðu stríð við
fyrrum bræðraþjóðir sínar í
gömlu Júgóslavíu.
Serbía tók í gær við for-
mennsku í Evrópuráðinu og mun
gegna henni næsta hálfa árið.
Vissir fyrirvarar voru þó á því að
hin væntanlega nýja Serbíustjórn
væri fær um að fara fyrir stofn-
uninni, sem beitir sér einkum og
sér í lagi í mannréttindamálum
álfunnar, þar sem serbnesk
stjórnvöld hafa ekki reynst fær
um að verða við þeim kröfum
sem Evrópuráðið hefur beint til
þeirra, fyrst og fremst varðandi
handtöku og framsal eftirlýstra
stríðsglæpamanna.
Serbíustjórn
loks mynduð
Lýðræðissinnaflokkum Serbíu tókst loks í gær, fjórum
mánuðum eftir kosningar, að ná sátt um myndun
nýrrar ríkisstjórnar. Frestur til þess var að renna út.
Til hamingju
með daginn!
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu þakka alþingismönnum og stjórnvöldum
samstarfið á kjörtímabilinu sem nú er að líða og hvetja þingmenn á nýju Alþingi
til að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem fyrir hendi eru til að búa fyrirtækjunum
og fólkinu í landinu betri skilyrði.
Það verður meðal annars gert með því:
SVÞ óska landsmönnum til hamingju með daginn og hvetja fólk til að nýta kosningaréttinn
og að hafa þannig áhrif á hverjir fara með stjórn landsins næstu 4 árin.
SVÞ- Samtök verslunar og þjónustu eru málsvari verslunar- og þjónustugreina á Íslandi. Samtökin ryðja
nýjum hugmyndum braut og koma á framfæri röksemdum fyrir jákvæðu starfsumhverfi atvinnulífsins.
Að stuðla að frekari flutningi þjónustuverkefna frá hinu opinbera til einkarekinna
fyrirtækja sem annast þau með hagkvæmum hætti og gæta þess að öll fyrirtæki
hafi jafna möguleika á að hljóta slík verkefni.
Að halda áfram að lækka skatta og tolla á matvæli og fella niður vörugjöld sem
lögð eru á raftæki, byggingavörur og húsbúnað.
Að endurbyggja stofnbrautir vegakerfisins með auknum fjárveitingum á næstu
10 árum þannig að vegakerfið þjóni þörfum allra landsmanna.
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
62
.0
19
Hópur íbúa á Njálsgötu veltir
nú fyrir sér þeim möguleika að
krefjast lögbanns á rekstur heimilis
fyrir heimilislausa á Njálsgötu 74.
Telja íbúarnir Reykjavíkurborg
brjóta á rétti þeirra með því að
velja heimilinu stað á Njálsgötu að
íbúunum forspurðum. Þá segjast
íbúarnir vantrúaðir á fullyrðingar
fulltrúa velferðarsviðs og velferð-
arráðs borgarinnar um að ekkert
ónæði verði af rekstri heimilisins.
Eins og fram hefur komið í Frétta-
blaðinu hefur borgarstjóri sam-
þykkt að hitta íbúana að máli 22.
maí næstkomandi.
Íhuga lögbann
Sveitarstjórn
Mýrdalshrepps undrast að ábú-
endur í Dyrhólaey hafi fengið
vottorð til staðfestingar á sjálf-
bærum nytjum með söfnun á
villtum heilsuplöntum og nytj-
um á æðarvarpi. Sveitarstjórnin
er óánægð með að vottunarstof-
an skuli ekki hafa haft samband
við hreppinn sem eigi hluta í
jörðinni. Vafamál sé hvort
plöntusöfnunin sé í samræmi við
friðlýsingu Dyrhólaeyjar og
sveitarstjórnin kannast ekki við
„dúnbýlið Dyrhólaey“.
Þá segir sveitarstjórnin með
öllu viðunandi að Umhverfis-
stofnun hafi lokað Dyrhólaey
fyrir almenningi frá 1. maí til
25. júní.
Deilt um lokun