Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 8
Gildu r seð ill Gildur seðill 1 1 Ógild ur se ðill Áskorun Jóhannesar Jónssonar í gær til kjósenda Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík suður um að þeir striki yfir nafn Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra vakti athygli enda fátítt að fólk utan stjórnmála blandi sér í kosn- ingabaráttu með jafn beinum hætti. Alltaf er eitthvað um að kjós- endur striki yfir frambjóðendur en eftir því sem næst verður kom- ist hefur útstrikun einu sinni haft áhrif á röð þeirra. Var það hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík í þingkosningunum 1946. Eftir harð- vítugar deilur meðal flokksmanna um skipan listans var afráðið að Björn Ólafsson stórkaupmaður skipaði fimmta sætið og Bjarni Benediktsson, alþingismaður og borgarstjóri, hið sjötta. Stuðnings- menn Bjarna undu þeirri niður- stöðu illa og strikuðu yfir nafn Björns unnvörpum; með þeim árangri að Björn og Bjarni höfðu sætaskipti. En þótt útstrikun breyti ekki röð frambjóðenda getur hún dregið úr atkvæðamagni að baki þeim. Þannig hlaut Davíð Oddsson fleiri persónuleg atkvæði en Össur Skarphéðinsson í Reykja- vík norður í síðustu þingkosning- um eftir að útstrikanir höfðu verið taldar. Engu að síður varð Össur fyrsti þingmaður kjördæmisins enda hafa útstrikanir ekki áhrif á heildaratkvæðafjölda lista. Ekki er með einföldu móti hægt að segja til um hve marga þarf til að útstrikun hafi áhrif; það ræðst af fylgi listans og sæti viðkomandi frambjóðanda. Þó má nefna sem dæmi að vilji kjósendur lista sem hlýtur tvö þingsæti hafna fram- bjóðandanum í öðru sæti þarf fjórðungur þeirra að strika yfir nafn hans. Hlutfallið eykst eftir því sem þingsætunum fjölgar og því ofar sem frambjóðandinn situr. Það sem kemst næst því að vera hliðstæða við auglýsingu Jóhann- esar Jónssonar er auglýsingar sem birtust í Morgunblaðinu síðustu tvo daga fyrir forsetakosningarn- ar 1996. Að þeim stóðu Björgólfur Guðmundsson, áður framkvæmda- stjóri Hafskips, Ómar Kristjáns- son, kenndur við Þýsk-íslenska, og Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóra Flugleiða. Beindu þeir því til kjósenda að fara með atkvæði sitt af ábyrgðartilfinn- ingu og á grundvelli réttra upplýs- inga um frambjóðendur. Um leið voru rifjuð upp verk úr stjórnmálatíð Ólafs Ragnars Grímssonar, sem naut mest fylgis í skoðanakönnunum. Meðal annars var bent á orð hans og gjörðir gegn fyrirtækjum sem þremenningarnir veittu forstöðu og vakin athygli á misvísandi yfirlýsingum hans um trúmál. Mikinn fjölda þarf til að útstrikun hafi áhrif Fara þarf aftur til ársins 1946 til að finna dæmi um að útstrikanir hafi haft áhrif á röð frambjóðenda í alþingiskosningum. Þá höfðu útstrikanir mun meira vægi en nú. Það hvort útstrikun hefur áhrif ræðst af fylgi lista og sæti frambjóðanda. Laugardagurinn 12. maí er líklega aðeins fyrirferðarmeiri en venjulegur laugardagur hjá flestum landsmönnum. Arthúr Gunnarsson, aðstoðar- verslunarstjóri Vínbúðarinnar í Kringlunni, segir bjórinn vinsælan fyrir kosningavökur. „Við pöntum inn í það minnsta helmingi meira af áfengi fyrir þessa helgi en fyrir venjulega helgi. Veðrið skiptir líka máli. Ef það er sól selst mikið af hvítvíni og rósavíni,“ segir Arthúr. „Eurovision-kvöldin eru okkar kvöld,“ segir Hrafn Stefánsson, rekstrarstjóri Domino‘s á Íslandi, og bætir við að allur gangur sé á því hvort mikið sé að gera á kosningakvöldum. „Við vorum búnir að manna vaktirnar vel fyrir kvöldið í kvöld hefði Eiríkur komist áfram. Því miður komst hann ekki í úrslit og þess vegna á ég ekki von á því að þetta verði mikið pítsukvöld hjá landsmönnum.“ Kormákur Geirharðsson, eigandi Ölstofunnar, segir allt vera við það sama á Ölstofunni. „Þetta verður líklega gott laugardagskvöld. Við gerum engar sérstakar ráðstafanir þótt það séu kosningar enda eigum við alltaf nóg af víni og erum tilbúnir í hvað sem er,“ segir Kormákur og er sannfærður um að fjör verði í bænum í kvöld og mikið um bros og tár. Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir rán og er fimmtán ára piltur í þeim hópi. Pilturinn ungi er annars vegar ákærður ásamt tveimur mönnum, 18 og 25 ára, fyrir að hafa ráðist inn í verslun 10-11 við Setberg í Hafnarfirði í lok mars, allir með andlitin hulin og vopnaðir dúka- hnífum. Þeir hótuðu manni sem var við störf í versluninni að þeir myndu skera hann á háls, neyddu starfsmenn til að opna tvo peninga- kassa og höfðu 41 þúsund krónur, fimm sígarettupakka og þrjá DVD- mynddiska á brott með sér. Þeim yngsta er í annarri ákæru gefið að sök að hafa ásamt tveim- ur mönnum um tvítugt ráðist á og rænt tvo menn, og er annar með- ákærðu, Ívar Aron Hill, einn mannanna úr hinu alræmda Árnes- gengi sem hefur verið sakfellt og ákært fyrir fjölmörg afbrot upp á síðkastið. Í sameiningu réðust þeir þrír í október að manni um þrí- tugt, slógu hann í höfuðið og rændu af honum farsíma. Sama kvöld réðust þeir að öðrum manni á þrítugsaldri, slógu hann í andlit- ið og spörkuðu í bak hans og rændu einnig af honum farsíma. Þá er Ívari Aroni og þriðja mann- inum gefið að sök að hafa ráðist að manni um þrítugt, skallað hann og slegið í andlitið með krepptum hnefa, krafið hann um að fara í hraðbanka og taka út fyrir þá pen- inga, en síðan rænt af honum far- síma. Ákærunar voru þingfestar í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.