Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 84
Ómar hefur sömu lífstölu og Guð- jón Arnar og þeir deila því mörg- um einkennum. Ómar hefur hins vegar líka töluna 16, sem tákn- ar rökhyggju, og það vinnur með honum. En þegar á öllu er á botn- inn hvolft er þristurinn uppistand- ari og grínisti. Það er líka mikil bar- átta í honum og hann er dálítið pól- itískur, vill fá niðurstöður, en eins og aðrir þristar á hann það til að ýkja. Það er hins vegar ekki mikill samhljómur milli 3 og 8 og dagur- inn er því ekki ávísun á velgengni hjá þeim Guðjóni og Ómari. Þ versumma dagsetn- ingarinnar 12. maí er átta, sem Sigríð- ur Klingenberg spá- kona segir tákna mikinn hraða og skiptingu. „Daginn ber líka upp hinn 12. maí en talan tólf er heil- ög og kemur víða við.“ Í talna- spekinni er talan átta líka tákn óendanleikans, dauða og fæðing- ar. „Þessum degi fylgir mikið afl, það er gott að trúlofa sig á þess- um degi, gott að búa til börn sem og að koma undir í þessari orku,“ segir Sigríður. Hermundur Rósinkranz talna- spekingur tekur undir að degin- um fylgi miklir kraftar efnislega heimsins en margir þættir hafi áhrif á hin kosmísku áhrif á fólk. „Þetta er velgengnistala en líka tala sjálfseyðingar,“ segir hann með þunga. „En það er að ýmsu að huga. Nafn viðkomandi og fæð- ingardagur skipta líka máli.“ Lífstala fólks skiptir ekki síst máli þegar meta á hvort við- komandi eigi góðan eða slæman dag fyrir höndum. Hefði Eiríkur Hauksson til dæmis komist áfram í Eurovison væri hann á grænni grein í dag, því lífstala hans er líka átta. „Það er ávísun á velgengni þegar lífstala manns er sú sama og tala dagsins. Eiríkur hefði því komist langt í kvöld, enda plumar hann sig líka vel á sviði. Þótt hann sé hógvær og lítillátur nýtur hann þess að vera í sviðsljósinu. Hann þarf bara að læra að sleppa fylli- lega fram af sér beislinu,“ segir Hermundur en bætir við að dag- urinn sem forkeppnina bar upp á hafi verið slæmur fyrir Eirík. „Hann hefði þurft að vera heima og sinna heimilinu þennan dag,“ segir hann. Um gengi stjórnmálaflokk- anna í kosningunum í dag er erf- iðara að rýna enda koma margir þættir við sögu. „Þetta er góður dagur til að gera viðskipti,“ segir Sigríður. „Kannski mun það nýt- ast flokkum sem eru viðskipta- sinnaðri og í blárri kantinum.“ Lífstala formannanna skiptir líka máli eins og Hermundur bendir á. „Tökum Davíð Oddsson og Hall- dór Ásgrímsson sem dæmi. Talan 22 kom við sögu hjá Davíð, sem er tala stórmenna; manna sem hugsa stórt, verkfræðinga sem reisa stórhýsi og svo framvegis. Hall- dór var hins vegar með töluna ell- efu, sem er afskaplega viðkvæm og má ekki við miklu mótlæti enda var Davíð alltaf með hann í vasanum.“ Hermundur Rósinkranz rýnir í lífstölur formannanna: Hvað segja tölurnar okkur? Það leggst allt á eitt laugardaginn 12. maí. Landsmenn ganga að kjörborðinu í alþingiskosningum, Eurovision-keppnin verður haldin í Finnlandi og þá hefst Íslandsmeistaramótið í knattspyrnu, svo dæmi séu tekin. Fréttablaðið fékk talnaspekinga til að rýna í tölur dagsins og spá hvaða úrslit þær kunna að hafa í för með sér. „Geir er ás, sem þýðir að hann er sterkur karakter sem er illa við að láta stjórna sér. Hann er leiðtogi með rökhyggju en heldur aftur af sér. Yfirleitt segir ásinn hlut- ina hreint út en G-ið í nafni Geirs veldur því að hann heldur aftur af sér. Þetta verður hins vegar lík- lega ágætur dagur fyrir hann. Talan fimm einkennir þá sem eru dálítið fljótfærir og eiga jafnvel til að vera tækifærissinnaðir. Talan fimm táknar líka nýjungagirni og þenslu og þess vegna er Stein- grímur dálítið einkennilegur, þar sem hann er jafnan á móti álverum og öðru sem veldur þenslu. Stein- grímur hefur hins vegar fjarkann sér til fulltingis, sem táknar stað- festu og að hann er traustur vinur. Þeir sem hafa lífstöluna 5 þola ekki langvarandi skuldbindingar, til dæmis gagnvart ríkisstjórnar- samstarfi eða einhverju slíku. Ingibjörg er í góðum málum því lífstala hennar rímar við daginn. Framkvæmdir, félagsleg staða, valdasókn og efnisleg markmið eru meðal þess sem einkennir þá sem bera töluna átta en hættir til að vera miskunnarlausir, ef ekki er að gáð. Út frá talnaspekinni er þessi dagur ávísun á velgengni fyrir Ingibjörgu og mér sýnist á öllu að Samfylkingin og Sjálf- stæðisflokkurinn séu að undirbúa hjónasængina. Guðjón er þristur, sem þýðir að hann er gleðibolti, en út af fimm- unni er líka einhver óstöðugleiki í honum. Þristarnir eru hins vegar jákvæðir að því leyti að þær sækj- ast eftir nýjungum. Þeir eru barn- góðir og draga að sér börn, að hluta skýrist það af því að þristur- inn er litli strákurinn sem vill ekki vaxa úr grasi. Eiginleikar sem tengjast þess- ari tölu eru meðal annars ábyrgð, vernd, samfélag og samúð. Hann er tilfinningavera og fjölskyldu- bönd skipta hann miklu. Talan fimm er hins vegar undirliggj- andi og veldur að þetta er sveiflu- kenndur karakter, oftar en ekki eru þessar tölur undirliggjandi hjá listafólki. Þetta er hins vegar ekki góður dagur fyrir hann á bakvið tölurnar eru sterkar kenndir, til dæmis í átt að taugaveiklun sem aukast undir þrýstingi og laugar- dagurinn er dagur mikilla krafta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.