Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 1

Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 1
58% 36% 32% Fr é tt a b la ð ið Fr é tt a b la ð ið M b l. M b l. *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007. LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA allt landið Laugardagur B la ð ið B la ð ið 30 10 20 40 0 50 60 Íslandsmótið í knatt- spyrnu hefst í dag með leik ÍA og Íslandsmeistara FH á Akranesi. FH-ingar hafa unnið titilinn síðustu þrjú sumur og ekkert annað lið hefur setið í toppsæti deildarinnar síðan í júlí 2004. Þetta verður enn fremur fyrsti deildarleikur íslensks liðs undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar frá árinu 1996, þegar hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum fimmta árið í röð. FH í toppsæt- inu síðan 2004 framsokn.is Árangur áfram - ekkert stopp www.xf.is ORÐ SKULU STANDA „Yngri menn kalla þetta stofulist og finnst lítið í þessi málverk varið,“ segir Per Hovdenakk, sem setti saman CoBrA-sýninguna í Listasafni Íslands. Hann segir verk CoBrA-hópsins því miður ekki njóta sanngirni í listaheiminum og það séu helst „sýningarstjórar og galleríistar“ sem haldi nöfnum listamannanna í hópnum á lífi. Svavar Guðnason var einn þeirra. „Þetta fólk var svo fátækt, það leit enginn við myndunum þess, sem var ein ástæða þess að hópurinn klofnaði og það fór hver í sína átt,“ segir Per, en hann er fyrr- verandi safnstjóri Onstadt-safnsins í Osló. Per telur úrvalið gott á sýningunni í Listasafninu, sérstaklega fyrir áhugamenn um list Svavars. Alls hafa 7.300 fleiri Íslendingar flutt frá landinu en til þess á síðustu tuttugu árum. Þetta kemur fram í samantekt fjár- málaráðuneytisins á búferlaflutn- ingum íslenskra ríkisborgara. Á sama tíma hafa rúmlega tuttugu þúsund fleiri útlendingar flutt til landsins en frá því. Í samantekt fjármálaráðuneytis- ins kemur fram að frá árinu 1987 til 2007 hafa 55 þúsund Íslending- ar flutt af landi brott og á sama tíma sneru um 47 þúsund til baka. Um áttatíu prósent brottfluttra Íslendinga fara til Norðurland- anna og mikill meirihluti þeirra til Danmerkur. Almennt er hlutfall brottfluttra Íslendinga hærra en hlutfall þeirra er snúa til baka. Aðeins árið 2005 var hlutfall aðfluttra hærra, en þá ríkti mikil uppsveifla í atvinnu- og efnhagslífinu. Sjö þúsund fleiri flutt brott Allir eru að blogga. Fréttablaðið smalaði kaffihúsaspekingum inn í kjörklefa og stóð fyrir kosningu á bestu og verstu blogg- urum landsins. Stjórnmálaskýrendur telja að alþingiskosningarnar verði þær mest spennandi í ára- tugi og allar skoðanakannanir síðustu daga benda til þess sama. Mun fleiri hafa kosið utan kjör- fundar en fyrir kosningarnar árið 2003. Lögregla hefur jafnt og veitingahúsaeigendur mikinn viðbúnað vegna kosninganna. Fjórar nýjar skoðanakannanir um fylgi flokkanna voru birtar í gær, en engar þeirra voru sam- hljóma um hvernig kosningarnar gætu farið. Stjórnmálaskýrendur segja allt stefna í gríðarlega spennandi kosningar og að aðalatriðið verði líklega hvort ríkisstjórnin heldur velli eða ekki. Þeir telja kosninga- baráttuna einkennast af færri álitamálum en fyrir kosningarn- ar árið 2003. Mjög góð kjörsókn var utan kjörfundar víða um land. Rúm- lega ellefu þúsund manns höfðu kosið í Reykjavík síðdegis í gær og á Akureyri höfðu rúmlega 1.300 kosið. Óvenju margir höfðu kosið í Kópavogi og í Hafnarfirði. Mikill viðbúnaður er hjá lög- reglu um land allt vegna kosning- anna. Lögreglan fylgist með því að öllum reglum sé fylgt á kjör- stað og tekur þátt í flutningi kjör- gagna. Íslendingar munu ef að líkum lætur lyfta sér upp, enda líta margir á kosningarnar sem hátíð. Í Vínbúðinni í Kringlunni er búið að panta tvöfalt meira magn af áfengi fyrir þessa helgi en fyrir venjulega helgi. „Við höfum tekið eftir því að bjórinn er vinsæll fyrir kosningarnar. En ef það er sól selj- ast hvítvín og rósavín líka vel,“ segir starfsmaður verslunarinnar. Eigendur skyndibitastaða búast við miklu annríki og það sama má segja um eigendur öldurhúsa og skemmtistaða um land allt. Spennan snýst um hvort stjórnin lifir Stjórnmálaskýrendur telja allt stefna í mest spennandi alþingiskosningar í langan tíma. Lögregla og veitingahúsaeigendur búast við líflegri kosninganótt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.