Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 32

Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 32
J æja Jón, nú færð þú loksins að vera viðtalsefnið sjálfur, eftir að hafa rætt við flesta poppara landsins í sjónvarp- inu. Hvernig finnst þér að vera hérna megin borðsins? ,,Þetta er voða svipað, bara tveir menn að tala saman. Ég þarf reyndar að segja meira en þú svo sennilega er það erfiðara.“ Ertu hættur með sjónvarpsþættina? ,,Ég á frekar von á því enda er meira en að segja það að finna nýjan flöt fyrir hvern einasta þátt. Íslenski tónlistar- markaðurinn er auðvitað ekki mjög stór. Ég hugsa að þetta sé bara komið hvað þennan síðasta þátt varðar. Ég er reyndar með ákveðna hugmynd um nýjan þátt, en það kemur bara í ljós hvort af verður. Mér finnst gaman að vinna í sjónvarpi.” Færðu ekki alltaf aðalfúttið upp úr poppurunum þegar búið er að slökkva á upptökuvélunum? ,,Jú, það er oft þannig og mér finnst það alltaf jafn sorglegt þegar menn koma með frábærar sögur um leið og búið er að slökkva. Það er eins og menn setji sig í einhverjar stellingar þegar viðtölin byrja.“ Ókei, við skulum þá reyna að fara ekki í neinar stellingar. Nýja platan, Hagamelur, kemur í næstu viku. Þú fórst í svaka tónleikatúr vegna fyrstu plötunnar, á að endurtaka þann leik núna? ,,Já, og fyrstu tónleikarnir í lands- reisunni verða 13. maí á Eskifirði. Ég verð álíka iðinn núna. Mér fannst þetta virka vel. Þetta hélt manni í um- ræðunni og er mjög þakklátt. Ég upp- götvaði það í síðustu landsreisu að fólk út á landi er endalaust búið að fá ein- hverja kassagítarleikara með a-moll- ana sína svo það hlýtur að vera ákveð- in tilbreyting fyrir það að fá píanóleik- ara til að spila a-moll.“ Hvernig er nýja platan samanborið við hina? ,,Maður heldur oft sjálfur að mikl- ar breytingar hafi átt sér stað en hinn almenni hlustandi heyrir bara sömu röddina með aðeins öðruvísi hljóðum undir. Síðasta plata var aðeins meira í moll en þessi. Ég held að ég sé að- eins poppaðri núna, aðeins glaðlegri. Ég leyfði mér líka eilítið meira að út- setja.“ Heyrðirðu einhverja tónlist á þess- um þremur árum sem kveikti verulega í þér? ,,Ég hef heyrt margt skemmtilegt, en hef sennilega hlustað mest á ,,I Am a Bird Now“ með Antony & The John- sons á þessum tíma. Ég er ákaflega hrifinn af henni og hugsaði að þetta væri eitthvað sem væri gaman að gera þótt maður eigi náttúrlega ekki glætu í gaurinn sönglega því hann er svo ótrú- legur. En þegar ég fór að gera plötuna nennti ég ekki þessu selló- og fiðlu- dóti sem allir eru með. Mér finnst allir í dag svo uppteknir við að blanda sin- fónískum hljóðum inn í poppið hjá sér. Mér finnst það orðin gríðarlega marg- tuggin hugmynd. Eins og þetta eru nú falleg hljóð samt. Ég féll því frá þeirri pælingu og ákvað að nota frekar gam- aldags syntasánd og gera þetta sjálfur í staðinn fyrir að vera að hringja í ein- hverja fiðluleikara úti í bæ.” Saknarðu þess ekkert að vera í sam- starfi við hljómsveit? ,,Stundum. Þegar maður er búinn með svona plötu er maður mjög upp- lagður í að gera plötu með bandi. Það glittir í hópvinnu því Ný dönsk verður 20 ára á þessu ári og við munum senni- lega senda ný lög frá okkur. Það eru kostir og gallar að vera sóló, gaman að standa og falla með eigin ákvörðun- um og taka sénsinn. Þegar maður er í hljómsveit getur maður prófað efni á félögunum og þeir kannski sagt: Nei, þetta er ekki nógu gott. Smám saman er komist að sameiginlegri niðurstöðu. En maður hefur miklu minni þörf fyrir hljómsveitarsamvinnu núna en þegar maður var yngri. Þá hékk maður með strákunum kannski daginn út og inn og nennti að vera í bílskúrnum lon og don. Núna er maður miklu meira fyrir að dunda sér sjálfur. Sumir fara í sum- arbústaðinn og bæsa pallinn en ég fer út í skúr og geri lög.“ Það hafa átt sér gífurlegar breytingar í lífi þínu síðan síðasta plata kom út og þú syngur um þær á nýju plötunni, til dæmis í laginu ,,Merkilegt“ þar sem þessar línur er að finna: Merkilegt hvað lífið mitt er skrítið / og merki- legt hvað tíminn líður hratt / Á tveim- ur árum gerist meira en lítið / ég trúi varla að allt þetta sé satt. / Að rekast á þig eftir þessa keppni / og kynnast þér var meiriháttar lán / sem einnig flokk- ast undir ótrúlega heppni / og ég vil engan veginn þurfa að vera án… ,,Kunningja mínum fannst þessi lína ,,að rekast á þig eftir þessa keppni“ eitthvað mikið persónuleg og spurði: ætlarðu virkilega að hafa þetta svona? Auðvitað, sagði ég, þetta er bara gott rím, keppni og heppni, og svo er þetta ekkert merkilegt. Þetta var í blöðun- um í marga mánuði.“ Já, en þetta er svaka persónulegt og einlægt og allir textarnir eftir þig í þetta skiptið. Var það hár þröskuldur til að komast yfir? ,,Mér fannst bara að fyrst ég væri búinn að stíga þetta skref að vera sóló að þá ætti ég að ganga alla leið og gera textana líka. Þar sem mikið var búið að ganga á fannst mér svo bara eðli- legast að skrifa um það sem mér lægi á hjarta og ég var búinn að vera að hugsa um. Ég vona að einhver kunni að meta það að ég tali hreint út. Ég get ekki séð að ég hafi neinu að tapa.“ Í einum textanum á nýju plötunni segir að það séu forréttindi miðaldra manns að vera væminn. Hvað áttu við með því? ,,Í dag eru margir yngri listamenn svo uppteknir af því að vera kúl að þeir segja aldrei nákvæmlega það sem þeim finnst. Allt er sagt í frösum og undir rós. Það er eins og það sé hallærislegt að segja það sem manni finnst. En ef við förum aftur til Bítlaáranna þá þótti það nú ekkert hallærislegt. Þá sögðu menn bara ,,Ég elska þig“ og skömm- uðust sín ekkert fyrir það. Hjá mörg- um er það ávísun á listræna aflífun að segja þetta í dag. Þegar maður er kom- inn á miðjan aldur þá hefur maður engu að tapa. Mér finnst að núna geti ég gert það sem ég vil og sagt það sem ég vil. Og það eru forréttindi. Ég þarf ekki að vera kúl lengur. Ekki það að ég hafi nokkurn tímann verið kúl, en ég þarf þá allavega ekki að reyna að vera kúl lengur.“ En þú varst nú aldrei þessi reiða unga týpa, grunar mig – hefur þú annars einhvern tímann verið reiður? ,,Ég var nú frekar óhress með þetta Íraksdæmi og ég var ósáttur við það þegar menn voru að bruðla með Sím- ann í gamla daga. Ég var svo reiður að ég færði mig yfir til Tal.“ Ertu orðinn samdauna ástandinu aftur? ,,Nei, ég er eiginlega kominn aftur í lopapeysuna. Ég er frekar farinn að fjarlægjast efnishyggjuna öfugt við marga jafnaldra mína sem eru á hundrað kílómetra hraða á Mammons- brettinu.“ Eru þetta áhrif frá Hildi Völu? ,,Að hluta til get ég trúað. Hún hefur haft mjög góð áhrif á mig.“ Hún er nú dálítil hippastelpa í sér, er það ekki? ,,Það mætti kannski segja það jú.“ Er íslenskt samfélag að sigla í vit- lausa átt? ,,Já kannski og það mætti snúa að- eins við. Maður vill að einstaklingur- inn fái að njóta sín en maður vill líka að börnin manns komist á spítala ef þau verða veik. Ég held að það sé engin spurning að bilið er að stækka, þeir ríkari að verða ríkari og þeir fátækari að verða fátækari. Mér er alveg sama um þá sem eiga svívirðilega mikið af peningum, það truflar mig voða lítið, en það er verra með fólkið sem á enga peninga.“ Kominn aftur í lopapeysuna Hagamelur, önnur sólóplata Jóns Ólafssonar, kemur út í næstu viku. Margt hefur drifið á daga hans síðan fyrsta sólóplatan kom út sumarið 2004. Þá var hann að skilja eftir tuttugu ára sambúð en nú er hann með nítján árum yngri konu og á með henni tæplega sjö mánaða son. Jón er óhræddur við að syngja um þessa atburði á plötunni í einlægum og persónulegum textum. Mér finnst að núna geti ég gert það sem ég vil og sagt það sem ég vil. Og það eru forrétt- indi. Ég þarf ekki að vera kúl lengur. Ekki það að ég hafi nokkurn tímann verið kúl, en ég þarf þá allavega ekki að reyna að vera kúl lengur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.