Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 50
12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR2 fréttablaðið eurovision
Þótt keppnin í Eurovision þyki
fara hljóðlega fram í höfuð-
borg Finna er skemmtanalífið
samt sem áður afar margbrot-
ið. Á veitingastaðnum Zetor er
hvíslast á um samsæriskenn-
ingar um mafíu úr austri sem
hafi tangarhald á keppninni.
Eurovision-keppnin í Helsinki
þykir sú rólegasta sem hald-
in hefur verið. Finnar þykja afar
ljúfir gestgjafar en þeim er ekki í
mun að hafa bari opna lengi. Stað-
irnir sem lengst eru opnir hætta að
hleypa gestum inn eftir klukkan
þrjú, klukkutíma síðar eru fáir á
ferli í borginni. Þegar íslenski hóp-
urinn fylgdi Eiríki Haukssyni upp
á hótel eftir undankeppnina var
engan drykk að fá á hótelbarnum.
Íslendingarnir héldu þá út í nótt-
ina með Eirík í fararbroddi og leit-
uðu að góðum stað – eða bara stað
sem enn hleypti inn þótt klukkan
væri að ganga þrjú. Enginn stað-
ur sá sóma sinn í að hleypa gest-
unum inn, jafnvel þótt Valentine
Lost ómaði út um dyrnar. Förin
endaði því inn á McDonalds en það
er sá staður í Helsinki sem lengst
er opinn.
Austur-evrópska mafían, svo-
kallaða, er það sem helst er talað
um meðal þeirra þjóða sem ekki
komust í gegnum undankeppn-
ina. Svisslendingar eru æfir. Segj-
ast aldrei hafa eytt jafn miklu fé í
kynningu á framlagi til Eurovision
enda voru þeir nær fullvissir um
að DJ Bobo myndi hafa sigur með
lagi sínum Vampires Are Alive.
Bæði Eiríkur og DJ Bobo hafa sagt
að í raun sé orðið tilgangslaust að
halda þessari keppni áfram. „Aust-
ur-Evrópa hefur lýst yfir stríði og
við skulum berjast á móti. Ekkert
atkvæði frá Íslandi ætti að fara
annað en til Finna eða Svía,” sagði
Eiríkur skömmu eftir keppni. Á
veitingastaðnum Zetor var um fátt
annað rætt meðal þjóða sem voru
úr leik en að skýrari lög þyrfti
um símkosningarnar og samsær-
iskenningar voru ræddar í þaula.
Haukur Hauksson, framkvæmda-
stjóri íslenska föruneytisins, virð-
ist vera sá eini sem reynir að slá
á slíkar sögusagnir, meðal annars
með því að benda á að gestgjafarn-
ir í ár eru Norðurlandaþjóð.
Finnar og Svíar sem enn eiga
möguleika á sigri í aðalkeppninni
reyna að stappa stálinu í frænd-
ur sína Dani, Norðmenn og Íslend-
inga hvar sem þeir sjá þá.
Lagið frá Úkraínu sem hlotið
hefur hvað mesta hylli í Helsinki
þykir ekki jafn fyndið og skemmti-
legt og það var fyrir undan-
keppnina. Þrátt fyrir hremming-
arnar er sirkusinn í Helsinki afar
skemmtilegur og lætur Eirík-
ur Hauksson engan bilbug á sér
finna þegar kemur að skemmtana-
lífi. Norðurlandaþjóðirnar eru svo
samrýmdar þessa stundina að það
er ekki hægt annað en að halda
gleðinni áfram. „The show must go
on,“ eins og Eiríkur segir en vonar
innilega að sigurlagið í kvöld komi
ekki úr austri. karen@frettabladid.is
Rólegasta Eurovision frá upphafi
Þessir ágætu menn tengjast Eiríki og íslenska liðinu ekki á nokkurn hátt. Þeir vildu sýna honum virðingu sína með því að setja
upp rauðar hárkollur þegar hann mætti til samnorræns teitis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Eiríkur hitar upp með kassagítarinn.
Samnorræn vinátta er áberandi í Helsinki þó að norrænu þjóðunum hafi ekki gengið
sem skyldi í undankeppninni.
Starfsmenn Ríkisútvarpsins fylgjast grannt með gangi mála. Frá vinstri eru Jan Murt-
omaa hljóðmaður, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir.
Í Helsinki er allt vaðandi í draggdrottn-
ingum og þessari þótti mikið til Eiríks
koma.