Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 58
12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR10 fréttablaðið eurovision
1999: ALL OUT OF LUCK
Selma, Selma, Selma. Eitt sinn voru Grétar og Sigga
Eurovision-stjörnurnar okkar en svo kom Selma og
ofvirku frakkaklæddu dansararnir sem dönsuðu eins
og þeir ættu lífið að leysa.
Í einni af mest spennandi stigagjöf síðari tíma
(fyrir þær tæplega 300.000 hræður sem Ísland
byggja) háðum við harða baráttu við frændur vora
Svía. Í hálftíma eða svo svitnuðu eigendur BT fyrir
framan sjónvarpið enda höfðu þeir lofað fjölda
manns endurgreiðslu á sjónvörpum ynni Ísland
keppnina. Þeim við hlið fengu forsvarsmenn RÚV
magasár og hugsuðu hvort hægt væri að halda
keppnina í Laugardalshöll.
Selma tapaði og munar þar mestu um stigin tólf
sem Íslendingar gáfu Svíum. Ekkert hefur gengið né
rekið hjá okkur síðan, en þar sem Svíagrýlan hefur
verið jörðuð með viðhöfn í Laugardalshöll er aldrei
að vita nema bjartari tíð sé fram undan. Eða ekki.
Þátttöku Íslendinga í söngva-
keppni íslenskra sjónvarps-
stöðva 2007 er lokið. Það er að
segja fyrir alla nema Sigmar
Guðmundsson sem áfram
mun standa vaktina og lýsa
úrslitunum í kvöld.
Eiríkur Hauksson stóð sig vel á
sviðinu í Helsinki en hann mátti
sín lítils gegn Austurblokkinni.
Flestir voru vonsviknir, sérstak-
lega þeir sem vonuðu að allt væri
þegar þrennt er og nú færi Eirík-
ur alla leið. „Fyrir mig persónu-
lega voru niðurstöður undanúr-
slitanna ekki mikil vonbrigði því
ég átti alveg eins von á þessu.
Ég var handviss að minnsta kosti
sjö lönd frá Austur-Evrópu færu
áfram og því væri lítið pláss eftir
fyrir okkur,“ segir Sigmar. „En jú,
þetta er vissulega fúlt því lagið
var gott og flutningurinn var frá-
bær og átti gæðalega séð fyllilega
skilið að komast áfram.“
Hægt er að taka undir orð Sig-
mars sérstaklega þegar horft er
til laganna sem áfram komust.
Flest þeirra eru mjög góð en sum
vægast sagt vafasöm. En fyrst
austurblokkin er búin að festa
sig svo kirfilega í sessi, eigum
við einhvern möguleika? „Auðvit-
að eigum við möguleika en þetta
er erfitt mál. Þetta á sér eðlileg-
ar skýringar því fólk frá Austur-
Evrópu er fjölmennt í Vestur-Evr-
ópu. Þeir fá eðlilegu nágranna-
stigin, rétt eins og við fáum stig
frá Dönum og Norðmönnum, og
líka rosalega mikið af stigum
frá Vestur-Evrópu þar sem Aust-
ur-Evrópubúar eru fjölmennir í
Vestur-Evrópu, á meðan Vestur-
Evrópulöndin fá nær engin stig að
austan,“ segir Sigmar og bendir á
Tyrkland máli sínu til stuðnings
en Tyrkir komast alltaf áfram
þrátt fyrir oft og tíðum furðuleg
lög. „En auðvitað eigum við séns.
Finnar unnu í fyrra þannig að það
er allt hægt.“
Nú heyrast háværar radd-
ir að breyta þurfi fyrirkomulagi
keppninnar til að jafna hlutfall
Vestur- og Austur-Evrópuþjóða í
úrslitum. „Nú þegar liggur fyrir
að fyrirkomulaginu verður breytt
eftir tvö ár en það er rosaleg reiði
í gangi hér núna vegna úrslitanna
á fimmtudag. Margir sem til
þekkja telja líklegt að brugðist
verði við strax á næsta ári því
annars er hætta á því að einhverj-
ar Vestur-Evrópuþjóðir dragi sig
úr keppni,“ segir Sigmar.
Meðal þeirra leiða sem ræddar
hafa verið er að hafa tvær undan-
úrslitakeppnir, eina fyrir Austur-
Evrópu og aðra fyrir okkur Vest-
ur-Evrópubúa. Þetta fyrirkomu-
lag minnir hins vegar óþægilega
mikið á járntjaldið gamla og er
líklegt til að valda deilum.
Hverju sem tautar og raul-
ar mun Sigmar lýsa úrslitunum í
kvöld og ef honum tekst jafn vel
til og í undanúrslitunum er von
á góðu. Jákvæðar háðsglósur og
nett skot á það sem fyndið og
furðulegt er, í bland við hrós þar
sem það á við, hitta vel í mark og
eru góð áminning fyrir aðeins of
áhugasama þjóð að Söngvakeppn-
in er fyrst og fremst skemmtun.
„Mér finnst engin ástæða til að
taka keppnina afskaplega hátíð-
lega eins og Íslendingar hafa oft
gert,“ segir Sigmar. „Keppnin er
orðin svo útlitsmiðuð að maður
verður að fá að gera grín að því
sem er fyndið, eins og svo hvítar
tennur að slíkt hefur aldrei sést
áður.“
Engin ástæða til að taka
keppnina of alvarlega
Sigmar segir 90 prósent blaðamanna á Eurovison vera karlmenn og 90 prósent
þeirra samkynhneigða. Hann segir keppnina annan heim sem sé svolítið spes og
alveg ótrúlega skemmtilegur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON