Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 62

Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 62
 12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR14 fréttablaðið eurovision 2000: DÖNSKU ELLISMELLIRNIR STÁLU SENUNNI Keppnin árið 2000 var merkileg fyrir margar sakir. Aldrei höfðu fleiri mætt að horfa á keppnina, en Svíar fylltu 16.000 manna Globen-íþróttahöllina. Aldrei hafði svo miklu verið til kostað og keppnin almennt talin hin glæsilegasta. Engin leið er að spá fyrir um hver vinnur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Það kom bersýnilega í ljós í þessari keppni en vinningslagið var fyrirfram ekki talið vænlegt til árangurs. Fæstir bjuggust við miklu frá dönsku Olsen-bræðrunum en þeir komu, sáu og sigruðu. Lag þeirra, Fly on the Wings of Love, eða Smuk som et stjerneskud í upprunalegu og mun betri útgáfunni, vann hug og hjörtu Evrópubúa og þá sérstaklega þeirra sem höfðu fengið nóg af endalausum fáklæddum yngis- meyjum og suður- og austur- evrópskum smjörpungum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Frakkinn Marcel Benzençon stakk upp á evrópskri söngvakeppni á fundi í Mónakó árið 1955. Á þeim rúmu fimmtíu árum sem liðin eru frá fyrstu keppninni hefur ýmislegt breyst og fjöldi þáttakenda sex- faldast, en aldrei hafa fleiri tekið þátt en í ár. Með hverju ári sem líður bætist því enn í staflana af tölfræði og staðreyndum sem spretta úr frjóum jarðvegi Eurovision. Hér eru nokkrar slíkar staðreyndir. Brotthvarf hljómsveitarinnar er líklega ein stærsta breytingin í augum áhorfenda heim í stofu, þar sem spariklæddir tónlistarmenn og misákafir stjórnendur settu mikinn svip á keppnina. Frá fyrsta ári keppninnar og allt til 1973 þurfti öll tónlist að vera flutt af hljómsveit, sem gestgjafarnir settu saman og veittu kepp- endum aðgang að. Reglunum var breytt 1973, þegar löndum var gert leyfilegt að taka með sér upptökur af tónlist. Árið 1999 var skrefið hins vegar tekið til fulls, og nú þurfa gestgjafa- þjóðirnar ekki lengur að útvega hljómsveit. Síðasta Eurovision-hljómsveitin sást á skján- um árið 1998, þegar BBC hélt keppnina í Birm- ingham. Á frægðartíma hljómsveitarstjórnendanna bar Noel Kelehan höfuð og herðar yfir aðra, því hann stjórnaði hljómsveitum fyrir fimm sigurvegara, á árunum 1980, 1987, 1992, 1993 and 1996. Hollenski hljómsveitarstjórnandinn Dolf van der Linde var hins vegar sá víðförlasti og stjórnaði fyrir sjö mismunandi lönd: Belgíu, Þýskaland, Írland, Lúxemborg, Holland, Sví- þjóð og Sviss. Aðeins þrjár konur stjórnuðu hljómsveitum í sögu söngvakeppninnar. Nurit Nirsch stjórnaði hljómsveitinni fyrir Ísraela árin 1973 og 1978. Monica Dominique stjórn- aði fyrir Svíþjóð árið 1973 og Anita Kerr fyrir Sviss árið 1985. Það vita það flestir sem hafa varið kvöld- stund í að fylgjast með Eurovision að Írland trónir á toppnum í tölfræðinni. Írski snillingur- inn Johnny Logan situr í hásætinu, en hann hefur unnið Eurovision þrisvar sinnum. Árin 1980 og 1987 söng hann fyrir Írland og árið 1992 skrifaði hann sigurlagið sem var sungið af Lindu Martin. Fleiri Írar virðast þó hafa eitt- hvað til brunns að bera, því Írland hefur hamp- að titlinum sjö sinnum. Fast á hæla landsins koma Lúxemborg, Frakkland og Bretar með fimm sigra, og Svíþjóð og Holland með fjóra. Noregur lúrir hins vegar á botninum í tölfræð- inni, því síðasta sætið hefur tíu sinnum fallið í skaut frænda okkar. Þeir hljóta þó einhverja sálarfró af þeirri staðreynd að þeir hafa líka unnið tvisvar: 1985 og 1995. Þýski lagasmiðurinn Ralph Siegel hefur það örugglega að markmiði að skáka Logan, því ekki gefst hann upp. Hann hefur tekið þátt í Eurovision alls átján sinnum. Honum tókst verkið einu sinni, þegar Nicole söng til sigurs með laginu Ein Bißchen Frieden. Það kemur væntanlega fáum á óvart að enska er vinningshafinn þegar tungumálin etja kappi í Eurovision. 22 vinningslög hafa verið flutt á því máli. Franskan er jafnframt vinsæl og státar af 14 vinningslögum. Lög á hollensku og hebresku hafa sigrað þrisvar. Eurovision- lagið sem oftast hefur verið flutt er hins vegar á tungumáli sem kemur hvergi fyrir á þessum lista, og er ekki heldur sigurlag. Lagið kallast Nel Blu Dipinto Di Blu á fögru máli Ítala. Oftar fær viðlagið þó að ráða nafninu sem laginu er gefið, og er það mun betur þekkt sem Volare. Eftir að Domenico Mudugno flutti lagið fyrir Ítalíu árið 1958 hafa ekki ómerkari menn en Frank Sinatra, Cliff Richard og David Bowie tekið það upp á arma sína. Á toppi tölfræðinnar Johnny Logan vann Eurovision þrisvar sinnum. Tvisvar söng hann og einu sinni samdi hann sigurlagið. E N N E M M / S ÍA / N M Hvaða land ætlar þú að kjósa í kvöld? 1. Austurríki 900 1001 2. Litháen 900 1002 3. Portúgal 900 1003 4. Moldovía 900 1004 5. Lettland 900 1005 6. Mónakó 900 1006 7. Ísrael 900 1007 8. Hvíta Rússland 900 1008 9. Holland 900 1009 10. Ísland 900 1010 11. Belgía 900 1011 12. Eistland 900 1012 Bo nía-Hersegóvína Spánn Hví a-Rússland Írland Finnland aked nía Slóvenía Ungverjaland Litháen Grikkland Georgía Svíþjóð 13. Austurríki 900 1013 14. Litháen 900 1014 15. Portúgal 900 1015 16. Moldovía 900 1016 17. Lettland 900 1017 18. Mónakó 900 1018 19. Ísrael 900 1019 20. Hvíta Rússland 900 1020 21. Holland 900 1021 22. Ísland 900 1022 23. Belgía 900 1023 42010094.2 Frakkland ettla d Rússland Þýskaland Serbía Úkraína B etland Rúmenía Bú garía Tyrkland Armenía Moldavía • Hægt er að senda SMS, hringja úr heimasímum eða GSM • Ekki er hægt að hringja úr númerum sem eru lokuð fyrir hringingar í símatorg • Heimilt er að hringja þrisvar úr sama númeri en gjaldfært er fyrir öll símtöl • Atkvæðagreiðsla stendur aðeins yfir í 15 mínútur og verður tilkynnt í útsendingunni hvenær hún hefst • Einungis þau atkvæði sem eru greidd innan tímarammans eru gild en gjaldfært er fyrir öll símtöl • Hvert atkvæði kostar 99,9 kr. Símakosning! Ekki missa af Evróvisjón í Sjónvarpinu í kvöld kl. 19.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.