Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 82

Fréttablaðið - 12.05.2007, Page 82
Hefur þú fylgst með kosningabar- áttunni? Nei. Ég hef ekki séð neitt svoleiðis. Hvaða flokk myndir þú kjósa ef þú fengir að kjósa í alþingiskosning- unum á laugardaginn? Hvað heitir flokkurinn aftur? Já, Samfylkinguna. Það er besti flokk- urinn og þeir ætla að gera margt fyrir fólkið. Ég held að mamma og pabbi fylgist svolítið með í sjónvarpinu, kosningunum. En ég myndi ekki kjósa X-D. Mér finnst þeir montnir. Hvað finnst þér að sá flokkur sem tekur við landinu eigi að gera fyrir fólkið í landinu? Mér finnst að það ætti að vera ókeypis í allar búðir í heila viku. Og svo mætti búa til tívolí. Í garð- inum heima hjá mér. Þeir ættu líka að leyfa fullorðna fólkinu að borga enga skatta í heilt ár. Já, ég veit líka um eitt sem ég vil að sé breytt! Að skólinn sé styttri. Búinn á hádegi. Veistu hvað stjórnmálamennirnir heita? Forsetinn heitir annaðhvort Geir Haarde eða Ólafur Ragnar. Annað hvort, man það ekki alveg. Horfðirðu á Eurovison? Já. Mér fannst lagið alveg ágætt. Silvía Nótt var með leið- inlegra lag, mér finnst leiðinlegt að Eiríkur Hauksson komst ekki áfram. En lagið var ekkert rosa- lega skemmtilegt. Bara alveg ágætt. En ég ætla að borða nammi á laugardagskvöldið og vaka lengi. Örugglega til átta um morguninn. Hvað ef börnin fengju að kjósa? Þau eru klædd í sparifötin, dregin á kjörstað og látin hálf afskiptalaus allan kjördaginn. En hvað myndu þau setja x-ið við ef þau fengju að fara inn í kjörklefana og skildu mömmu og pabba eftir fyrir utan, bíðandi með sleiki- pinna og gosflösku? Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við framtíðarkjós- endur landsins. Hefurðu fylgst með kosningabar- áttunni? Já, mjög mikið. Hvaða flokk myndir þú kjósa ef þú fengir að kjósa í alþingiskosn- ingunum á laugardaginn? Íslandshreyfingin er mjög góð. Þeir héldu frábært boð fyrir lúðra- sveitina sem ég er í. En ég myndi ekki kjósa Framsóknarflokkinn. Þeir fengu fá atkvæði en enduðu samt í sjálfri ríkisstjórninni. Hvað finnst þér að stjórnmála- menn eigi að gera fyrir fólkið í landinu? Gera skemmtilegri námsskrá í skólana. Ég myndi taka út bækur sem kenna alltaf það sama. Bæta inn betri bókum, ef þær eru þá til einhvers staðar. Fullorðna fólkið mætti hafa frjálslegri vinnutíma. Þannig að það gæti sinnt börnunum og unnið þegar því sýnist. Þannig að það gæti bara laðað vinnutímann að sínu lífi. Það þarf líka að bæta kjör gamla fólksins, ekki spurning. Hver er eftirlætisstjórnmálamað- urinn þinn? Ómar Ragnarsson er í miklu uppáhaldi, var hann ekki grínisti fyrir nokkrum árum? Hvaða stjórnmálamenn þekkirðu í sjón? Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson. Ég þekki svipinn og krullurnar. Hefurðu fylgst með kosningabaráttunni? Já, svolítið mikið. Hvaða flokk myndir þú kjósa ef þú fengir að kjósa í alþingiskosningun- um á laugardaginn? Ég myndi kjósa Sjálfstæðisflokinn. Enginn vafi á því. Hann vill styrkja háskólanám og ég ætla einhvern tímann í háskóla. Hvað finnst þér að stjórnmálamenn eigi að gera fyrir fólkið í landinu? Þeir eiga að gera það sama og Sjálfstæðisflokkurinn vill gera. Ég er sjálfur bara mjög ánægður og glaður og vil að sama ríkisstjórnin sé við völd. Er ekkert sem má betur fara? Jú, auka störf í landinu. Mér finnst fullorðna fólkið alls ekki vinna nógu mikið og það er aldrei nóg af vinnu að hafa. Áttu þér eftirlætisstjórnmálamann? Geir H. Haarde er í miklu uppáhaldi hjá mér. Bæði flottur og svona valdsmannslegur. Ég hef oft séð hann í sjónvarpinu en ég held að ég þekki ekki aðra stjórnmálamenn í sjón. En Vinstri grænir eru ekki í uppáhaldi. Þeir eru aðeins of mikið á móti. Ertu búinn að fylgjast með kosningabaráttunni? Nei. Ég hef bara horft á það pínu. Séð það í sjónvarpinu. En mér finnst það svo leiðinlegt að ég hef ekki nennt að horfa á það. Þetta er of mikið í sjónvarpinu. Hvaða flokk myndir þú kjósa ef þú fengir að kjósa í alþingiskosningunum á laugardaginn? Ég hef aldrei heyrt um þessa flokka. Eiga þeir að ráða landinu? Ég vil ekki hafa einhvern mann sem ræður öllu á Íslandi. Ég veit ekki um neinn mann sem er nógu góður til að stjórna landinu. Ef ég yrði að velja einhvern myndi ég horfa á alla DVD-diskana mína og velja einn leikara sem þar er, ég man ekki hvað hann heitir. En ég þekki röddina hans. Hvað finnst þér að stjórnmálamenn eigi að gera fyrir fólkið í landinu? Ég vil ekkert láta fullt af fólki gera eitthvað fyrir mig. Ég þarf ekkert svoleiðis. En það vantar rólur hjá Melaskóla. Þar er kastali og klifurgrind og eitthvað dót sem snýst. Mér finnst líka mjög pirrandi að það er búið að byggja þrjá ljóta kofa á Melaskóla. Mér og Jóni finnst það skemma Mela- skólann. Þeir geta tekið kófana og sett rólur í staðinn. Hvernig fannst þér Eurovision? Mér finnst rauður fáránlegur litur á hári. En ég kaus Lordi í fyrra, þeir voru mjög flottir en Silvía Nótt var pirrandi. Í mjög pirrandi búningi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.