Fréttablaðið - 02.06.2007, Síða 2
„Það er algerlega
glórulaust að gera tilraunir með
eiturefni á leiksvæði barna,” segir
Hákon Már Oddsson, einn íbúa við
götuna Bakkastaði í Grafarvogi
sem mótmæla harðlega fyrirhug-
aðri tilraun með að nota svefnlyf
til að fækka sílamávi í Leirvogs-
hólma.
Að sögn Hákons og nágranna
hans, Einars Arnar Benediktsson-
ar, er Leirvogshólmi leiksvæði
barna enda vætt þangað á fjöru.
„Þvert á vilja Náttúrufræði-
stofnunar og Fuglaverndar veitti
Umhverfisstofnun undanþágu til
að gera tilraunir með tvær teg-
undir af svefnlyfjum til að fækka
sílamávi. Þetta er snarbannað með
lögum en það er hægt að veita
undanþágu fyrir því að gera þetta
í vísindaskyni ef fuglar eru að
valda gífurlegum skaða. Það hefur
ekki verið sýnt fram á neinn skaða
af þessum fuglum nema að þeir éti
brauð af Reykjavíkurtjörn,“ segir
Hákon.
Í bréfi sem Hákon sendi meðal
annars borgarstjóra, umhverfis-
ráðherra og Umhverfisstofnun
segir hann lyfin sem nota eigi á
sílamávana vera hættuleg mönn-
um og geta leitt til dauða við inn-
töku. Efnin heita Alphachloralose
og Seconal. Auk Leirvogshólma
hefur verið veitt undanþága til að
nota efnin á Garðaholti og í Gálga-
hrauni og í Þerney nú í júní.
„Fljúgi fuglinn af stað eftir að
hafa borðað eitrið þá getur hann
bæði ælt eitrinu eða dottið niður
hvar sem er. Þannig má vera ljóst
að börnum, dýrum og fullorðnum
getur stafað hætta af þessari til-
raun,“ segir
Hákon og furðar
sig á að efnin séu
ekki prófuð á
öruggu svæði
áður en tilraunir
fari fram í
byggð.
Varðandi
aðstæður í Leir-
vogshólma segir
Hákon að þang-
að sé hægt að ganga á lágfjöru og
algengt sé að börn hjóli eða vaði í
hólmann. Aðeins séu um 100
metrar frá hólmanum að fjölförn-
um göngustíg og íbúðarbyggðin í
aðeins 300 metra frá hólmanum.
„Hin pólitíska stefna er að við
viljum fækka mávi í borgarlandi
og minnka ágang hans inn til fólks
svo hann hætti að stela mat af
grillum og gera mönnum lífið leitt
niðri við Tjörn. Þetta höfum við
falið meindýraeyðum okkar að
gera á sem bestan hátt, sem er
ekki skaðlegur fyrir umhverfið og
skaðar ekki aðra,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkur, og ítrekar að ekkert
eigi að gera sem ógni umhverf-
inu:
„Við hefðum að sjálfsögðu ekki
fengið leyfi til að nota þetta svefn-
lyf ef það væri hættulegt. Þetta er
algerlega viðurkennt lyf og er
notað víða um lönd með góðum
árangri.“
Mávaeitur á leiksvæði
vekur ugg í Grafarvogi
Íbúar í Grafarvogi óttast tilraunaverkefni um notkun svefnlyfja gegn sílamávi
á leiksvæði barna í Leirvogshólma. Formaður umhverfisráðs segir lyfin viður-
kennd. Pólitísk stefna sé að minnka ágang máva sem geri mönnum lífið leitt.
Páll, tekurðu vinnuna oft með
þér heim?
Sumarsýning fyrir alla fjölskylduna um helgina!
Jack Kevorkian
hefur heitið því að aðstoða aldrei
neinn framar við
að fremja
sjálfsvíg. Hins
vegar ætlar hann
að berjast fyrir
því að aðstoð við
sjálfsvíg verði
gerð lögleg í
Bandaríkjunum.
Kevorkian var
látinn laus úr
fangelsi í gær.
Hann er oft
kallaður „Dr.
Dauði“ vegna
þess að á
árunum 1990 til
1998 hjálpaði hann 130 manns við
að svipta sig lífi. Margir þeirra
sem leituðu eftir aðstoð hans voru
alvarlega veikir og dauðvona.
Hann hlaut dóm fyrir manndráp
og hefur afplánað átta ár en var
látinn laus vegna góðrar hegðunar
í fangelsinu.
Heldur áfram
baráttu sinni
Fimm ungmenni
voru flutt á slysadeild til
aðhlynningar eftir að bíll valt og
lenti utan vegar í Heiðmörk á
fjórða tímanum í fyrrinótt.
Enginn slasaðist alvarlega.
Ökumaðurinn var sautján ára,
eins og fjórir farþegar hans. Svo
virðist sem hann hafi misst
stjórn á bílnum með fyrrgreind-
um afleiðingum. Lögregla og
sjúkralið var kallað til og
ungmennin, sem öll voru í
bílbeltum og komust af sjálfs-
dáðum úr bílnum, flutt á
slysadeild til skoðunar og
aðhlynningar. Ekki er talið að
um ölvunarakstur hafi verið að
ræða.
Valt út af vegin-
um í Heiðmörk
Tilkynnt var um tilnefningar til
Grímuverðlaunanna í gær en alls komu áttatíu
frumflutt leikverk til álita við tilnefningar árs-
ins.
Veitt eru verðlaun í sextán flokkum sviðslistar
og dreifast þau nokkuð jafnt á fáar sýningar
þetta árið. Þær sýningar sem flestar tilnefningar
hljóta að þessu sinni eru söngleikurinn Leg í
leikstjórn Stefáns Jónssonar sem Þjóðleikhúsið
sýnir, leikrit Birgis Sigurðssonar Dagur vonar
sem Leikfélag Reykjavíkur setur upp í leik-
stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar og verkið
Killer Joe eftir Tracy Letts sem Leikhúsið Ská-
máni sýndi í leikstjórn Stefáns Baldurssonar í
Borgarleikhúsinu.
Þrjár barnasýningar Þjóðleikhússins eru til-
nefndar; Pétur og Úlfurinn, Sitji guðs englar og
sýningin um Skoppu og Skrítlu en í þeim til-
nefningaflokki er einnig að finna sýningu Leik-
félags Akureyrar á Karíusi og Baktusi og söng-
leikinn Abbababb! í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök
sviðslista á Íslandi, stendur að Grímunni, sem
er einnig uppskeruhátíð leiklistarinnar og hald-
in í lok hvers leikárs. Á hátíðinni eru sviðsverk
og útvarpsverk verðlaunuð og listamönnum
veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi
árangur á liðnu leikári.
Gríman verður afhent í fimmta sinn við hátíð-
lega athöfn föstudaginn 15. júní í Íslensku óper-
unni. Forseti Íslands afhendir þá jafnframt
heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands
þeim einstaklingi er þykir hafa skilað framúr-
skarandi ævistarfi í þágu leiklistar.
Leg, Dagur vonar og Killer Joe tilnefnd
Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Kaupáss, segir
nýjasta hefti Ísafoldar hafa verið
fjarlægt úr verslunum Kaupáss
vegna þess það seldist ekki nægi-
lega vel. Af og frá sé að Kaupás
vilji koma í veg fyrir umfjöllun um
mansal og aðkomu bæjarstjórans í
Kópavogi að slíkri starfsemi á
Íslandi eins og Jón Trausti Reynis-
son, ritstjóri Ísafoldar, telur að
ástæðan sé.
„Ég hef ekki séð blaðið, þetta
tengist efnistökum þess ekki neitt,“
segir Eysteinn. Hann segir Kaupás
ekki gefa upp sölutölur á blaðinu.
„En allavega þá stóð það ekki undir
væntingum,“ segir hann.
Forsvarsmenn Ísafoldar telja
þær röksemdir ekki standast. „Við
höfum sölutölur sem sýna að Ísa-
fold er eitt mest selda tímarit
verslana Kaupáss,“ segir Jón
Trausti. Brá hann á það ráð að selja
tímaritið í lausasölu fyrir utan
verslanir Kaupáss í gær, ásamt
ábyrgðarmanni blaðsins og fram-
kvæmdastjóra útgáfufélagsins
Birtings. Sögðu þeir það vera tákn-
rænan stað þar sem Kópavogur
væri vígvöllur baráttunnar gegn
mansali en í blaðinu er grein um
stúlkurnar á Goldfinger og tengsl
Gunnars I. Birgissonar, bæjar-
stjóra Kópavogs, við Ásgeir Davíðs-
son, eiganda staðarins.
Segir af og frá að Kaupás vilji
þagga umfjöllun um mansal
Veðurstofa Íslands
hefur tekið nýjan vef í notkun.
Var hann formlega opnaður á
Veðurstofu Íslands af Þórunni
Sveinbjarnardóttur umhverfis-
ráðherra á miðvikudaginn.
Helgi Borg verkefnastjóri segir
hönnun vefsins taka mið af
auknum kröfum um myndræna
framsetningu. „Mikilvægt er að
veðurupplýsingar séu nákvæmar
og sem aðgengilegastar fyrir
notendur. Við reiknum með að
vefurinn fái aðgengisvottun innan
skamms í samræmi við stefnu
stjórnvalda sem þýðir að blindir,
sjónskertir og hreyfihamlaðir
muni einnig njóta góðs vefnum,“
segir Helgi.
Nákvæmur og
aðgengilegur
„Þetta mál
varðar portúgalskan almenning
og því er það skylda ríkistjórnar-
innar að reyna að skoða þetta með
eigin augum,“ segir sendiherra
Portúgals, sem hélt til Kára-
hnjúka í gær til
að kanna
aðstæður landa
sinna.
Sendi-
herrann, João
António da
Silveira de
Lima Pimentel,
kom til landsins
í fyrradag og
ræddi við
félagsmálaráð-
herra. Hann vildi ekki tjá sig um
niðurstöður sínar, því fyrst þyrfti
að fara yfir þær með portúgölsk-
um stjórnvöldum.
Félagsmálaráðherra hefur falið
Vinnueftirlitinu að gera úttekt á
meintri kynferðislegri áreitni á
svæðinu, í kjölfar ásakana
fyrrum starfsmanna.
Skylda ríkisins
að rannsaka