Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.06.2007, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 02.06.2007, Qupperneq 24
Fallegur dagur. Fórum í stúd- entsveislu til nágranna okkar á Bárugötunni, Jóhönnu og Ingólfs. Jónas sonur þeirra var að út- skrifast. Það hefur alltaf verið mikil birta kringum þennan góða dreng. Í stúdentsgjöf færðum við honum tvær bækur sem hann á vonandi eftir að hafa gaman af, „Moby Dick“ eftir Hermann Mel- ville, en ég held að betri skáldsaga hafi ekki ennþá verið skrifuð í veröldinni. Hin bókin var „Íslend- inga saga“ Sturlu Þórðarsonar sem mér finnst vera besta bók sem samin hefur verið á íslensku og Sturla fremsti rithöfundur þjóðar- innar, já, betri en Snorri frændi. Eftir samkvæmið fór frú Sól- veig á listahátíð að hlusta á menn- ingarlegan djass. Við Andri horfð- um á Köngulóarmanninn í sjónk- anum. Grillveisla í hesthúsun- um hjá Fanneyju, Líneyju, Óla og Finni og fólkinu sem er með okkur í hest- húsi. Nú fer að líða að því að hrossunum verði sleppt á græn grös og þess vegna var haldið vorblót. Sólin hamaðist við að skína. Það var fallegt úti. En kalt. Það er frú Sólveig sem hefur haldið uppi merkjum okkar í hestamennskunni í vetur. Hún hefur farið nokkrum sinnum í viku en ég hef verið heima með grislingana. Hestamennska er reyndar íþrótt sem hjón þurfa að iðka í sameiningu en við erum ung ennþá og höfum tímann fyrir okkur. Ástandið í höfuð- borginni er ekki vel gott. Í nótt var tilkynnt um sjö líkamsárásir „og voru 2 þeirra alvarlegar“ segir í blaðafrétt án þess að nánar sé útskýrt hvern- ig þær líkamsárásir eru sem ekki teljast alvarlegar. Ef einhver hefur áhuga á að fækka ofbeldisverkum í Reykja- vík væri hægt að byrja á því að fjölga í lögregluliði til að geta haft sýnilega löggæslu og stytta jafn- framt opnunartíma veitinga- húsa. Margir eru kannski þeirr- ar skoðunar að veitingahús eigi að vera opin allan sólarhring- inn og að allir eigi rétt á því að skemmta sér allan sól- arhringinn ef þeim svo sýnist. Þar í móti kemur að börn sem eiga foreldra sem koma heim af öldur- húsum rétt áður en barnatíminn hefst í sjónvarpinu á laug- ardags- og sunnu- dagsmorgnum eru einfaldlega munaðarlaus um helgar. Það hugsar enginn um rétt þessara barna til að eyða helg- um með foreldrum sínum en ekki í einsemd fyrir framan sjón- varp eða tölvu. Sömuleiðis væri ágætt að fara að pæla í rétti skikkanlegs fólks til að lifa án þess að eiga von á beinbrotum eða dauða af hálfu drukkins og dóp- aðs fólks á veitingastöðum, gangstéttum og akvegum. Rétturinn til að breyta sér í frávita skepnu hefur ótvíræð- an forgang í þeirri óábyrgu frjáls- hyggjumaníu sem er tískubólan nú um stundir. Fyrr eða síðar verður farið að hugsa um rétt þeirra sem eiga á hættu að verða fyrir barðinu á þeim sem misnota frelsið. Á mið- nætti aðfaranótt föstudags ganga í gildi lög sem eiga að vernda fólk sem ekki vill verða fyrir barðinu á reykingamönnum. Þá hlýtur að fara að verða tímabært að velta því fyrir sér hvernig hægt sé að takmarka tjón fólks af sjálfhverfri hegðun annarra sem er hættulegri en óbeinar reykingar. Í dag var afmælisdagur frú Sól- veigar. Í vetur hef ég lánað henni hestinn minn, hann Vin, með þeim afleiðingum að heitar ástir hafa tekist með þeim. Ég ákvað því að gefa henni klárinn í afmælis- gjöf. Hún ætlaði varla að trúa mér þegar ég afhenti henni gjöfina. En svona er þetta. Það er eitthvað gott í okkur öllum. Hesturinn hennar Sólveigar er alhliða gæðingur úr hinni frábæru ræktun Viðars á Kaldbak. Vinur er bleikálóttur undan Hilmi frá Sauð- árkróki syni Ófeigs frá Flugu- mýri og Vordísi frá Höskuldsstöðum undan Galdri frá Sauðárkróki. Hann er stór vexti og höfðingleg- ur, fallegur á tagl og fax, hefur mikl- ar hreyfingar og er rúmur á öllum gangi. Viljinn er ótakmarkaður og lundin létt og jákvæð eins og hjá nýskipuðum ráðherra. Nú þarf ég að fara að svipast um eftir snotrum klár handa sjálf- um mér. Hann þarf að hafa eitt- hvað við sig svo að ég verði Vini og Sólveigu ekki til skammar. Ég ætla að vanda valið. Sá hestur á að endast mér þar til ég verð átt- ræður og verður sennilega síðasti reiðhesturinn minn. Þegar maður er ekki alveg heill heilsu gefst góður tími til að velta fyrir sér alls konar spurningum sem ekki eru áleitnar svo lengi sem maður hamast frá morgni til kvölds við að taka þátt í lífsbarátt- unni og þjóðfélaginu. Ég var að velta því fyrir mér hvort það líf sem ég lifi er skemmtilegt og fullnægjandi. Það væri leiðinlegt eftir dauðann að híma í gröfinni og naga sig í handarbökin fyrir að hafa ekki gengið á tindana sjö, safnað auði, átt fjallajeppa, verið á móti virkj- un fallvatna og bjargað heilum þjóðum frá hungursneyð. Það sem ég geri er að ég starfa við heim- ilisstörf, einkum að- drætti til búsins og eldamennsku, ég sinni barna- uppeldi og vinn við ritstörf. Allt þetta finnst mér frem- ur skemmtilegt, nema kannski helst að kaupa inn til heimilisins. Hér í eina tíð voru einokunarkaupmenn frægir fyrir að selja Íslending- um maðkað mjöl. Nú um stund- ir er mjölið ætt en í staðinn er sí- fellt verið að pranga inn á mann mygluðum og skemmdum ávöxt- um og lífvana grænmæti. Maður á að geta gert þá lágmarkskröfu til matvöru sem er á boðstólum í verslunum að hún sé æt. Væri ekki hægt að fela einhverjum góðum aðila að fylgjast með því? Heimilisstörfin mín mestan part í eldhúsinu þykja mér skemmtileg. Ekkert sem ég hef tekið mér fyrir hendur um dagana hefur upp- skorið jafnmikið lof og matseldin. Þegar ég er að elda hlusta ég á út- varpið og fylgist með fréttum. Þar fyrir utan er hugurinn frjáls, ég get upphugsað útsmognar lausnir á vandamálum eða látið hugann reika frjálsan og glaðan. Barnauppeldi er ábyrgðarhlut- verk. Það á víst að vera innprent- að í eðli hverrar manneskju að hugsa um afkvæmi sín og koma þeim á legg og vissulega hjálp- ar eðlisávísunin eða brjóstvitið langt á leið. En stundum koma upp flóknar spurningar sem maður kann engin svör við. Þá er þrauta- lendingin að láta umhyggju og kærleika ráða þegar skynsemina þrýtur. Þá er eftir að nefna brauðstritið. Ég valdi mér sjálfur að eyða starfsævinni í kvikmyndagerð og ritstörf. Í kvikmyndagerðinni var ég orðinn leiður á að þurfa að eyða mestöllum vökutíma mínum í að hugsa um peninga. Ritstörf eru ekki eins kostnaðarsöm. Ég setti mér það markmið að samlag- ast ekki staðalímynd rithöfund- ar með tilheyrandi orðagjálfri um yfirskilvitlega náttúru bókmennta og lista og guðdómlegan innblást- ur. Allt vel um slíka staðalhöfunda en mig langar ekki til að vera í þeim hópi. Maður sem sem aflar sér lífsviðurværis (félaga og and- stæðinga) með penna, það vil ég vera. Hér og nú. Þar með er lokið þessum tilvi- starpælingum mínum á þriðju- degi. Niðurstaðan er sú að á hverj- um degi gerist eitthvað skemmti- legt. Er hægt að fara fram á meira í þessum besta heimi allra heima? Það virðast vera lítil takmörk fyrir því ofbeldi sem kraumar undir sléttfeitu yfirborði þjóðfé- lagsins. Ég var að lesa á blogginu hans Ómars Ragnarssonar að ein- hver ofbeldismaður reyndi að ráð- ast á hann og lemja hann um dag- inn. Þetta er eins og að lumbra á Fjallkonunni! Alþingi kom saman í dag. Í kvöld var Geir Haarde í sjónvarp- inu. Hann sagði meðal annars um nýju stjórnina: „Þessir flokkar hafa einsett sér að mynda frjálslynda umbóta- stjórn um kraftmikið efnahags- líf, öfluga velferðarþjónustu, bættan hag heimilanna og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins.“ Þetta ætla ég að leggja á minnið og vona að Geir geri það líka. Svona munnsöfnuður um frjálslyndi og vel- ferð hefði ekki alls fyrir löngu verið kallað- ur hreinn og klár kommún- ismi. Að lumbra á Fjallkonunni! Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá stúdentsveislu, grillveislu, ofbeldi, heimilishaldi, hrossaættum, möðkuðu mjöli, skemmdum ávöxtum og lífvana grænmeti. Einnig er minnst á tilganginn í lífinu og skuggalegan munnsöfnuð forsætisráðherrans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.