Fréttablaðið - 02.06.2007, Side 28
Hinn árlegi Blómadagur Skólavörðustígsins verður haldinn
í dag, laugardaginn 2. júní. Dagurinn er haldinn hátíðlegur
í tilefni sumarkomu en einnig til að undirstrika sérstöðu
fyrirtækjanna á Skólavörðustíg.
Mörg þeirra versla með handverk, nytjalist og ýmiss
konar hönnun og því skemmtilegt að gera sér ferð niður
stíginn.
Á Blómadaginn verður ríkjandi útimarkaðsstemning, til
dæmis mun Jói byssusmiður sýna handgerða hnífa.
Börn úr Austurbæjarskóla hefja daginn á skrúðgöngu
klukkan hálf ellefu með því að ganga niður Laugaveginn
og upp Skólavörðustíginn. Þá munu nemendurnir dreifa
blómum og ávöxtum í boði Blómabænda og Banana hf.
Stígurinn mun iða af lífi þar sem lifandi tónlist, dans og
önnur skemmtiatriði verða í boði fram eftir degi. Þess má
geta að Menningarganga Birnu Þórðardóttur hefst við Hall-
grímskirkju klukkan 11.30 og aftur klukkan 15.30.
Blómstrað á Skólavörðustíg
„Mick er ómögulegur í að
leysa eigin vandamál en
mjög góður í að hjálpa öðrum
með þeirra vandamál.“
Hrafnista vígð í Reykjavík
Samtök um kvennaathvarf bjóða til
afmælisfundar í Iðnó í dag, laugardag
2. júní klukkan 14.00, í tilefni þess að
25 ár eru liðin frá stofnun samtak-
anna.
„Þetta verður bæði gleðskapur og
baráttufundur til að hrista aðeins upp
í okkur,“ segir Sigþrúður Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastýra samtak-
anna.
Að sögn Sigþrúðar er enn full þörf
fyrir kvennaathvarfið og of lítið hefur
breyst á þessum árum. „Aðsóknin
eykst með hverju ári sem líður. Það
er gleðilegt að því leytinu til að það
er orðið auðveldara fyrir konur sem
lifa við ofbeldi að taka þetta skref út
úr ofbeldissambúð. En sorglegt að
því leytinu til að upprunalega mark-
miðið var að setja á stofn athvarf sem
myndi smátt og smátt missa tilgang
sinn,“ segir Sigþrúður, sem segir eitt
það besta við starfið að hitta ungt
heilsteypt fólk sem hefur eytt tíma í
athvarfinu sem börn og snýr aftur til
að láta gott af sér leiða.
Í tilefni dagsins verður boðið upp á
kaffi, kleinur og stuttar hugleiðingar
valinkunnra kvenna.
Auk þess mun Brynhildur Guðjóns-
dóttir flytja lög úr söngleiknum Edith
Piaf og tónlistarfólk úr Borgarfirð-
inum lög úr Saumastofunni. Ávarp
flytja Berglind Eyjólfsdóttir rann-
sóknarlögreglumaður, Drífa Snædal,
fyrrverandi framkvæmdastýra sam-
takanna, Una María Óskarsdóttir,
varaforseti Kvenfélagasambands
Íslands, Kristín Ástgeirsdóttir frá
Rannsóknarstofu í kvenna- og kynja-
fræðum, Margrét Pála Ólafsdóttir
leikskólastjóri, Tatjana Latinovic frá
Samtökum kvenna af erlendum upp-
runa og Þórunn Sveinbjörnsdóttir
frá Eflingu-stéttarfélagi. Fundar-
stjóri verður Þórhildur Þorleifsdóttir.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangs-
eyrir er enginn.
AFMÆLI
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Haukur Einarsson
vélfræðingur, Jöklafold 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn
30. maí. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju mánu-
daginn 11. júní kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans
er bent á líknarstofnanir.
Guðrún Kristjánsdóttir
Jóna Helga Hauksdóttir
Inga Guðný Hauksdóttir Bernharð Antoniussen
Einar Birgir Hauksson Kristín Óskarsdóttir
Edda Kristín Hauksdóttir
Anna Karen Hauksdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Axel Þórir Gestsson
Þórir frá Reykjahlíð, Karlagötu 4,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur vinsemd
og samúð. Sérstaklega viljum við þakka Þorsteini
Gíslasyni lækni og starfsfólki á 13D Landspítala við
Hringbraut fyrir einstaka aðhlynningu.
Svanhildur J. Ingimundardóttir
Guðrún Axelsdóttir Guðlaugur Jónasson
Ragnheiður Axelsdóttir Guðmundur Gunnarsson
Ingimundur Gestur Axelsson
Jónas, Þórir, Fannar, Sindri, Gunnar, Guðlaugur og Leó.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Guðna A. Ólafssonar
Núpalind 2, Kópavogi.
Valgerður Á. Blandon
Ingibjörg Unnur Guðnadóttir Ragnar Sigurðsson
Valgerður Selma Guðnadóttir Guðbjörn Björgólfsson
Þorbjörg Guðnadóttir Helgi S. Reimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.