Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 64
Munu verðandi risaríki á borð við Kína, Indland, Rússland og Brasilíu vinna saman gegn Bandaríkj- unum og koma á stöðugleika í heimin- um? Shan Subramaniam Áhyggjur af óstöðugleika í heiminum eru útbreiddar og tengj- ast andúð á núverandi stefnu Banda- ríkjanna, og þá eru „risaveldin“ fjög- ur stundum nefnd sem mótvægi við heimsyfirráð Bandaríkjanna. Vissulega er það rétt að samanlögð verg þjóðarframleiðsla Kína og Ind- lands – heildarverðmæti allrar vöru- framleiðslu og þjónustu sem er innt af hendi í tilteknu landi á tilteknu tíma- bili – er nú orðin meiri en verg þjóðar- framleiðsla Bandaríkjanna. Einnig er verg þjóðarframleiðsla Brasilíu, Rúss- lands, Indlands og Kína samtals nú orðin jafn mikil og verg þjóðarfram- leiðsla Evrópusambandsins: um það bil 13,7 trilljónir dala á síðasta ári. Það er óhjákvæmilegt að bæði efnahagsleg völd og pólitískt mikilvægi nýju heims- hlutaveldanna fjögurra, Brasilíu, Rúss- lands, Indlands og Kína – BRIC-land- anna svokölluðu – muni vaxa. Ekki er lengur hægt að ógna þessum fjórum ríkjum til hlýðni, „halda þeim á mottunni“ né koma fram við þau af yfirlæti sem minni háttar samstarfsað- ila í heimsmálunum. Þessi staðreynd er eitt helsta einkenni ástandsins í heim- inum um þessar mundir. Nauðsynlegt er að taka mið af því. Samt sem áður tel ég ekki að vax- andi styrkleiki þessara fjögurra ríkja verði til þess að þau muni í reynd sam- einast í einhvers konar bandalag. Til þess eru þau of ólík innbyrðis, hvert með sín sérstöku vandamál og hvert með sína sérstöku hagsmuni. Auk þess sýnist mér að þau hafi engan áhuga á að byggja upp stefnumál sín á grund- velli átaka. Afstaða þeirra til heims- málanna á margt sameiginlegt með þeirri nýju hugsun sem ég hef barist fyrir og sem átti sinn þátt í að binda enda á kalda stríðið. Engu að síður hljóta leiðtogar BRIC- landanna að hafa áhyggjur af tilraun- um Bandaríkjanna til að koma sér upp einokunarstjórn í heiminum og beita völdum sínum einkum með hernaði. Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur talað sérlega opinskátt um þess konar áhyggjur. Aðrir hafa einnig andmælt einhliða stefnu Bandaríkanna, og það með réttu. Bandaríkin halda áfram að koma sér upp stríðsvopnum, hafa framlengt her- skyldudvöl hermanna sinna í Írak og eru að leggja af stað með ný hernað- aráform. Í Washington verður næstum því hvert einasta vandamál á alþjóðvett- vangi kveikja að tali um hernaðarlega lausn: Hugsanleg kjarnorkuhætta af Íran og samskiptin við Norður-Kóreu koma upp í hugann nánast samstund- is. Geta Bandaríkin nokkurn tímann lært af afleiðingum þess að ráðast inn í Írak? Liggur það ekki í augum uppi að síðustu fimmtán árin hafa vopnuð átök ekki leyst eitt einasta vandamál? Geta bandarískir stjórnmálamenn ekki áttað sig á því að þessar sýningar á hernaðarmætti hafa í mörgum tilvik- um gert illt verra? Það er eins og Winston Churchill sagði einhverju sinni: „Þú getur alltaf treyst því að Bandaríkjamenn gera það sem rétt er – eftir að þeir hafa reynt allt annað.“ Ég er hræddur um að þeir séu enn að reyna. Svo virðist sem ekki sé nóg að hafa hundruð bandarískra herstöðva úti um allan heim. Nú á að staðsetja eld- flaugavarnarkerfi í hjarta Evrópu: í Tékklandi og Póllandi. En hvar eru sannanir þess að það sé nauðsynlegt? (Seint og um síðir hófust samráðsviðræður við bandamenn í Atl- antshafsbandalaginu og við Rússland í viðleitni til að svara þeirri spurningu eftir á.) Og hvað með afstöðu íbúanna í gistiríkjunum: Eru þeir hrifnir af þess- um hættulegu tækjum? Maður gæti haldið að bandarískir stjórnmálamenn væru haldnir ótta, að Bandaríkjamenn væru alltaf hræddir: Við hryðjuverkamenn, við „óstýrilátu ríkin eða við óútreiknanleika Rúss- lands eða Kína. En þess háttar vanda- mál á alþjóðavettvangi – hvort heldur raunveruleg, ímynduð eða ýkt – kynda einungis undir lítt dulbúnum mark- miðum. Þau þjóna einkum hagsmunum þeirra sem hagnast á himinháum út- gjöldum til hernaðarmála. Á bak við þá sem hvetja til stríðs leynast alltaf hinir sem græða á stríði. Stjórnmál sem byggð eru á slíkum grunni geta hvorki fært okkur stöð- ugleika né öryggi. Þau verða að breyt- ast. Bæði nýju valdamiðjurnar og bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu geta gert margt til að leiða þau á rétta braut. Þau ættu ekki að standa aðgerð- arlaus hjá og horfa á Bandaríkin og samstarfsríki þeirra hlaða nýjum mis- tökum ofan á gömul. Á endanum þurfa allir að greiða gjaldið: Bandaríkin, Evrópa og önnur ríki í heiminum. Við þurfum nýja aðgerðaáætlun sem stefnir að því að lækna heiminn af þeirri stríðsveiki sem hamlar lausnum raunverulegra vandamála. Frumkvæði af því tagi þarf ekki að vera nein ógn fyrir Bandaríkin. Ég þekki Bandaríkin nógu vel til að geta fullyrt að innan pólitískra stofn- ana þar eru margir sem líta svo á að þessi einhliða stefna muni enda í ógöngum og eru að leita að útgöngu- leið. Alþjóðamálefni verða vafalaust í brennidepli í kosningabaráttunni sem nú er hafin fyrir forsetakosning- arnar. Það er ekki rétt, sem sumir halda fram, að allar tilraunir til að hafa áhrif á framferði Bandaríkjanna séu dæmdar til að mistakast. Sú stað- reynd, að ríki heimsins eru hvert öðru háð og að valdahlutföllin eru að breyt- ast, mun óhjákvæmilega verða sterk rök við alþjóðlega samningaborðið. Ekkert eitt ríki eða hópur ríkja getur þröngvað sínum vilja, sínum markmið- um eða sínum grundvallarreglum upp á önnur ríki. Brasilía, Rússland, Indland og Kína eru nú þegar mikilvægir leikend- ur á alþjóðasviðinu. Þau ættu ekki að vera neitt feimin við að beita áhrifum sínum, sem eru töluverð. Þær grund- vallarreglur, sem nú eru í gildi, eink- um á sviði alþjóðaviðskipta, hygla þeim sem fyrirfram standa betur að vígi. Þetta er ekki jafn leikur. Margar alþjóðastofnanir, svo sem Heimsviðskiptastofnunin, Alþjóða- bankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn, eru hluti af þessu kerfi. Ég er ekki að halda því fram að nú þurfi að koll- varpa því, en það er fyrir löngu kom- inn tími á að gera miklar breytingar. Með því að starfa saman, og með öðrum, geta Kína, Indland og Bras- ilía, sem öll eru á uppleið, ásamt Rússlandi, sem nú hefur öðlast nýjan styrk, gert mikið til að snúa við hinni neikvæðu þróun sem við höfum séð á síðustu árum. Þau geta náð árangri með því að hafa frumkvæði í þróun nýstárlegrar stefnumörkunar og skynsamlegra leiða að þeim mark- miðum. Bandalag gegn Bandaríkjunum er hvorki nauðsynlegt né æskilegt. En samhæfðar aðgerðir á alþjóðavett- vangi geta verið í þágu sameiginlegs öryggis okkar og stöðugleika. Á bak við þá sem hvetja til stríðs leyn- ast alltaf hinir sem græða á stríði. Stjórnmál sem byggð eru á slík- um grunni geta hvorki fært okkur stöðugleika né öryggi. Þau verða að breytast. Mótvægi við Bandaríkin Í fjórðu grein sinni í Fréttablaðinu veltir Mikhaíl Gorbatsjov því fyrir sér hvort nýju „risaríkin“ fjögur, Brasilía, Rússland, Indland og Kína, geti haft taumhald á Bandaríkjunum á alþjóðavettvangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.