Fréttablaðið - 02.06.2007, Side 72
Hvað heldur fyrir þér vöku á nót-
unni? Það að ég þurfi að vakna
snemma næsta dag.
Hvaða orð eða frasa ofnot-
arðu? Ég man hreinlega ekki eftir
neinu.
Hvað er skemmtilegast að gera
í öllum heiminum? Dansa.
Nefndu þrjú áhugamál/tóm-
stundagaman sem þú gætir hugs-
að þér að sinna í ellinni: Ferðalög,
læra frönsku almennilega, byrja
að spila aftur á píanóið.
Til hvaða staðar í heiminum
langar þig mest af öllu til að ferð-
ast? Það breytist eftir skapi. Ný-
lega var ég næstum farin til Ind-
lands og er þar af leiðandi heit
fyrir því núna.
Hvert er mesta orkuvandamál
heimsins? Það er tvískipt. Í fyrsta
lagi hefur um þriðjungur heims-
búa ekki aðgang að rafmagni en
það mun breytast í þá átt að fleiri
og fleiri munu njóta rafmagns.
Hitt er svo að brennsla jarðefna-
eldsneytis til rafmagnsfram-
leiðslu er ein helsta orsök lofts-
lagsbreytinga. Því þarf að breyta
orkunotkun heimsins á hraðan og
markvissan hátt.
Hvernig getur Ísland tekið þátt
í lausninni?
Við erum í kjöraðstæðum til
að miðla þekkingu okkur til ann-
arra landa, sérstaklega hvað jarð-
hitaþekkingu okkar varðar. Í dag
er nýting á jarðvarmaafli heims-
ins aðeins örfáar prósentur og er
það vegna skorts á þekkingu og
fjármagni. Hér á Íslandi höfum
við haft þekkingu í áratugi og nú
nýlega fórum við að eignast ein-
hverja aura líka og getum þar
með tekið þátt í fjárfestingum
og í þeim breytingum sem fram
undan eru í heiminum.
Býr Ísland yfir miklum jarðhita
samanborið við önnur lönd? Ísland
er eitt af þeim 55 löndum sem eru
á jarðhitasvæði og lukka okkar er
sú að háhitasvæði eru víða á land-
inu. Hins vegar erum við lítið land,
og stærri lönd, svo sem Indónesía
og Bandaríkin, búa yfir margfalt
meiri jarðhita en við. Bandaríkin
framleiða mun meira rafmagn úr
jarðvarma en við en Indónesíu-
menn eru að stíga fyrstu skref í
að nýta sín svæði almennilega. Þó
eru þeir nú þegar farnir að fram-
leiða meira rafmagn úr jarðhita
en Ísland. Enn sem fyrr er Ísland
þó með allra þjóða hæst hlutfall
endurnýjanlegrar orku.
Hver er mesta hetja mannkyns-
sögunnar að þínu mati? Gandhi.
Eftirlætisskyndibitinn þinn:
Stór Sicilian-sneið frá Sal’s Pizza
á Manhattan.
Hvað gerir þú til að slappa af?
Syndi nokkrar ferðir og fer í heita
pottinn.
Hver er ofmetnasta bíómynd
sem þú hefur séð?
Ætlaði að vera voða menningar-
leg og horfa á Easy Rider um dag-
inn. Ég neyddist til að slökkva á
henni, hún var algjör brandari.
Hver er þín mesta nautn? Get
ekki valið milli matar og tónlist-
ar.
Tekurðu þátt í getraunum eða
happadrætti? Alls ekki.
Eftirlætismálsháttur: Meira
vinnur vit en strit.
Á hvaða tímabili í lífinu varstu
hallærislegust? Þegar mamma
var hætt að klæða mig en sjálf var
ég ekki komin með vit á samsetn-
ingu fata eða klæðaburði. Man
til dæmis alveg eftir því að hafa
verið í kuldaskóm og stuttbuxum
svona 12 ára og fundist það vera
bara allt í lagi. Kannski er það
ágætt að hafa verið upptekin af
öðru á þessum tíma.
Hver er skemmtilegasti bíl-
túr sem þú hefur farið í? Ég er
svo mikið orkunörd að ég fer allt-
af með erlenda gesti á Nesja-
velli. Mér finnst leiðin sem
liggur sunnan við Úlfarsfell með-
fram Hafravatni alveg svakalega
skemmtileg keyrsla. Og svo endar
maður á þessum yndislega útsýnis-
stað þar sem sést yfir virkjunina.
Hefurðu lamið einhvern? Mig
hefur oft langað til þess en aldrei
gert það. Ja, fyrir utan eldri
bróður minn sem átti það senni-
lega skilið.
Nefndu þrjár frægar persón-
ur sem þú myndir fá til að skipu-
leggja brúðkaupið þitt: Ólaf Elías-
son, Donatellu Versace og mömmu
(ekki fræg).
Nefndu þrjú orð úr mesta leynd-
armáli þínu. Og, en og þá.
Hvaða draum dreymir þig
aftur og aftur? Mig hefur oft
dreymt að ég sé að missa ung-
barn úr fanginu sem er ýmist
frænka eða barn vinkonu eða það
ungbarn sem er mest náið mér á
þeim tíma. Sama hvernig ég held
á barninu, það nær alltaf að renna
úr greipum mér. Svo dettur það á
gólfið og ég tek það upp og reyni
að breyta gripinu en það dettur
aftur. Hræðilegur draumur sem
mig hefur sem betur fer ekki
dreymt lengi.
Hvers konar myndlist höfðar
til þín? Ég hef ávallt haft frek-
ar sterkar skoðanir á mynd-
list, en hef einhvern veginn ekki
orðaforðann til að útskýra þær
kenndir.
Geysir Green Energy er nýtt íslenskt fjárfestingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í að fjármagna jarðvarma-
verkefni víðs vegar um heiminn. Auður Nanna Baldvinsdóttir er forstöðumaður markaðsmála
fyrirtækisins og segir hún að Íslendingar eigi mikla möguleika á að nýta áratuga þekkingu sína á
heimsvísu. Auði Nönnu var skellt í þriðju gráðu yfirheyrslu.
Orkunörd með ást á
Nesjavöllum