Fréttablaðið - 29.06.2007, Page 1

Fréttablaðið - 29.06.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 FÖSTUDAGUR 29. júní 2007 — 174. tölublað — 7. árgangur HVANNDALSBRÆÐUR Aldir á kind og hval • Matur • Tilboð Í MIÐJU BLAÐSINS 29. JÚNÍ 2007 Frægasta kona heims selur grimmt Eiður Smári fór með 2 tússpenna í áritanir Dagmar giftir sig í sérsaumuðum kjól Guðni slapp við sólbruna Alexander Petterson tryllir konurnar LÍT EKKI Á MIG SEMKYNTÁKN Hvanndalsbræður átu mest kind og hval í æsku en nú hafa þeir þróað rétt sem þeir kalla páfa gaukapaté. í fæðunni og svo rak einst khval í Varð til fyrir slysni Útsalan er hafi n30 - 70% afsláttur Laugavegi 53 • s. 552 3737Opið í dag 10-18 VEÐRIÐ Í DAG Sumartónleikar í Skálholti Það verður líf og fjör á sum- artónleikum í Skálholti sem hefjast í dag. MENNING 30 Takmörk „Vinna manna eykst skjótt við lægri skatta og öfugt,“ skrifar Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Í DAG 20 FER SIGURFÖR UM HEIMINN ELLEFU VERSALNIR OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLTUm 2000 vélar seldar á Íslandi SAMGÖNGUR Flugfélagið Iceland Express hefur sótt um leyfi til að byggja nýja 6.500 fermetra flug- stöð á núverandi flugvallarsvæði Reykjavíkur. Flugstöðin á bæði að þjóna innan- og utanlands- flugi. Þannig stefnir Iceland Express (IE) á að hefja innanlandsflug í beinni samkeppni við Flugfélag Íslands, sem er nær allsráðandi á markaðnum. Í umsókninni, sem send var borgarráði Reykjavíkur og Flug- stoðum í vikunni, er lóð fyrir flug- stöðvarbyggingu sögð forsenda slíkrar samkeppni. Samgöngu- ráðherra, Kristján Möller, fékk afrit af umsókninni. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins yrði millilandaflugið ein- skorðað við Lundúnir, í fyrstu. Svæðið sem IE hefur augastað á er við Hlíðarfót við Öskjuhlíð, syðst á flugvallarsvæðinu. Þar hefur Háskólinn í Reykjavík und- irbúið um nokkurt skeið að reisa framtíðarhúsnæði sitt. Til vara sækir IE um lóð væntanlegrar samgöngumiðstöðvar. Þorgeir Pálsson, forstjóri Flug- stoða, rekstraraðila Reykjavík- urflugvallar, hafði ekki fundað með forsvarsmönnum IE í gær, en sagðist telja að ný samgöngu- miðstöð ætti að nýtast IE, ekki síður en öðrum. „Við erum auðvitað jákvæðir gagnvart flugsamgöngum innan- lands og viljum gera allt til að styrkja þær og bæta. Við munum því taka þetta erindi af fullri alvöru og ræða við þá um þetta,“ segir hann. Þorgeir nefnir einnig að endurskoða mætti áætlun um samgöngumiðstöð svo hún rými alla sem hyggja á flug. „Það eru allir hlutir endurskoðaðir í ljósi eftirspurnar,“ segir Þorgeir. Kristján Möller samgönguráð- herra kveðst fagna öllum hug- myndum um samkeppni í innan- landsflugi. Hann hefur hins vegar ekki kynnt sér umsókn IE til hlít- ar og vill því lítt tjá sig. Aðstoðarmaður borgarstjóra, Jón Kristinn Snæhólm, segir að umsóknin sé ekki komin form- lega inn á borð borgarstjóra og því sé ótímabært að taka afstöðu til hennar. Ekki náðist í Matthías Imsland, forstjóra IE, í gær. - kóþ / sjá síðu 12 Vilja nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvöll Iceland Express boðar samkeppni í innanlandsflugi og beint flug til Lundúna frá Reykjavík. Forsenda þess sé ný flugstöð við Reykjavíkurflugvöll. Ráðherra fagnar hugmyndum um samkeppni og það gerir forstjóri Flugstoða einnig. BAUGSMÁL Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, var sýknaður af ákærum um ólögmætar lánveitingar frá Baugi til tengdra aðila í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, þegar dómur féll í Baugsmálinu. Sannað þótti að lög hafi verið brotin í fjórum tilvikum en ekki heimild í lögum til að refsa einstaklingum fyrir brotin. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, var sakfelldur fyrir fjárdrátt Jón Gerald Sullenberger, eigandi Nordica Inc., var sakfelldur fyrir að útbúa tilhæfulausan kreditreikn- ing og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. - bj / sjá síðu 6 Dómur féll í Baugsmáli í gær: Ekki heimilt að refsa fyrir brot DÓMUR FALLINN Arngrímur Ísberg héraðsdómari (til hægri) kvað í gær upp dóm í Baugsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON GLÆPIR Lögreglan og Tollgæslan hafa fengið vísbendingar um að þýfi sé skipulega flutt úr landi. Þetta staðfestu nokkrir heimildar- menn Fréttablaðsins, bæði innan lögreglunnar og hjá Tollgæslunni. „Hvert fer allt þetta þýfi? Ef það er selt hér á landi, þá er svartur mark- aður á Íslandi undarlega stór, í ljósi fámennisins,“ segir heimildarmað- ur Fréttablaðsins innan lögreglunn- ar. Lagaheimildir lögreglunnar til þess að taka á skipulagðri glæpa- starfsemi eru þrengri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. - sjá síðu 16 Skipulögð glæpastarfsemi: Vísbendingar um að þýfi sé flutt úr landi Þurrt að mestu: Hæg breytileg átt um allt land, hlýjast á Vestur- landi og á Vestfjörðum. Þurrt að mestu en þó má búast við smá súldar- eða þokulofti við suður- og austurströndina VEÐUR 4  HALLBJÖRN HJARTARSON Slær ekki slöku við á Útvarpi Kántríbæ Útvarpar bæði í Kína og Belgíu FÓLK 42 Gladdi góðvin sinn Björgvin Halldórsson afhenti Ladda glataða gullplötu. FÓLK 36 FÓLK „Ég, mamma og amma byrj- uðum allar mjög ungar að eiga börn og það útskýrir þennan mikla fjölda,“ segir Sunna Mary Vals- dóttir, móðir Hafsteins Snæs Ævarssonar, rúmlega mánaðar- gamals snáða sem á mörg skyld- menni. Sunna Mary er á sautjánda ári en faðir Hafsteins, Ævar Mart- einsson, er nýorðinn sautján ára. Í móðurætt á Hafsteinn ömmu og afa, tvær langömmur, tvo lang- afa, þrjár langalangömmur og einn langalangafa. Í föðurætt á Haf- steinn ömmu og afa, eina lang- ömmu, einn langafa og eina langa- langömmu. Það verður svo ekki annað sagt en drengurinn sé Húnvetningur því stór hluti skyldmennanna býr á Hvammstanga. Sunna segir algengt að konur eignist snemma börn í fjölskyld- unni. „Þetta er mikill fjöldi og menn monta sig af því að vera orðnir langafabræður, ömmusyst- ur eða langömmusystur og þar fram eftir götunum,“ segir Íris Fjóla Bjarnadóttir, tæplega 36 ára amma. - to / kdk /sjá síðu 12 Hafsteinn Snær Ævarsson á sextán forfeður og formæður á lífi: Ungur, vinsæll og ríkur Húnvetningur ALEXANDER PETERSSON: Lítur ekki á sig sem kyntákn. FYLGIR FRÉTTA- BLAÐINU Í DAG NEISTINN OG PRJÓNAKONURNAR Á AUSTURVELLI „Prjónaðu til styrktar hjartveikum börnum“ er slagorð stúlknanna í hönnun- arhópnum Títu frá Hinu húsinu. Í veðurblíðunni í gær virkjuðu þær vegfarendur til að prjóna með sér og fyrirtæki til að heita á sig en markmið þeirra er að búa til þrjú þúsund búta í teppi í sumar. Ágóði áheitanna á svo að renna til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Loksins sigur hjá KR KR vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið vann Fram, 2-1, eftir að hafa lent marki undir. ÍÞRÓTTIR 38

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.