Fréttablaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 34
BLS. 6 | sirkus | 29. JÚNÍ 2007
É g er algjört kjólafrík miðað við það að ég er fótboltastelpa. Ef ég vil fara í eitthvað fínna fer ég
alltaf í kjól,“ segir Greta Mjöll Samú-
elsdóttir, landsliðskona í fótbolta.
„Ætli ég noti ekki kjólana til að fela
fótboltalærin. Kjólarnir eru líka þægi-
legir, þá þarf ég ekki að sitja eins og
einhver pía heldur get bara verið eins
og ég vil.“
Greta Mjöll segist aðallega klæðast
þægilegum fötum. Í vinnunni er hún
oftast í íþróttagalla en hún stjórnar
ævintýranámskeiði Breiðabliks. „Ég
fer líka oft í minna fína kjóla og legg-
ings við eða í boli og leggings við. Ég
klæðist líka stundum gallabuxum eða
taufötum, eða bara einhverjum þægi-
legum heimabuxum,“ segir knatt-
spyrnukonan. „Annars er ég mikið
litafrík og mér finnst eitthvað vanta ef
ég er bara í svörtu. Þess vegna lendi ég
í vandræðum ef ég þarf að fara í jarð-
arför.“
Greta Mjöll segist sjaldan kaupa föt
á Íslandi og er að eigin sögn ekki
merkjafrík. „Það skiptir ekki máli
hvað flíkurnar heita, ég kaupi bara
það sem mér finnst flott. Ég reyni að
kaupa mikið í útlöndum og finnst það
voða gaman og miklu ódýrara. Þá er
líka ólíklegt að fleiri eigi sömu flík.“
Greta Mjöll segir að landsliðskon-
urnar í knattspyrnu reyni að komast í
búðir á keppnisferðalögum en dag-
skráin sé oft þéttskipuð hjá þeim. „Við
fáum oft að fara í búðir en það fer
samt eftir þeim löndum sem við erum
í. Stundum förum við frekar og skoð-
um spennandi staði. En þótt dagskrá-
in sé þéttskipuð er það voða vel þegið
af stelpunum að fá að fara í búðir og
eyða dagpeningunum,“ segir Greta
Mjöll og hlær.
GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR VILL HELST KLÆÐAST EINHVERJU ÞÆGILEGU
LITRÍKT KJÓLAFRÍK
GLÆSILEGUR KJÓLL Fínasta kjólinn sinn
keypti Greta Mjöll á 1.500 kall í Oasis.
„Kjólinn er með hlýrum svo ég nota hann
miklu sjaldnar en önnur föt – aðallega ef
ég fer á árshátíðir eða þess háttar,“
segir Greta Mjöll. „Kjólinn gerir voða
mikið fyrir mig. Hann býr til mitti sem ég
hef ekki mikið af.“
ÍSLENSK HÖNNUN
Bleika kjólinn
keypti Greta Mjöll í
Uniform fyrir
útskrift sína frá MK.
Kjólinn er í miklu
uppáhaldi hjá
henni. „Þetta er
ekki hefðbundinn
kjóll en ég er voða
ánægð með hann.
Hann er í miklu
uppáhaldi hjá mér
og ég held að það
hafi bara verið
gerðir fjórir svona
kjólar.“
BLÁR OG VÍÐUR Bláa kjólinn keypti Greta Mjöll í
Top Shop í Danmörku. Greta Mjöll segir kjólinn
vera mjög þægilegan og að hann leggist ekki of
mjög upp að líkamanum. „Blár er líka uppáhalds-
liturinn minn,“ segir Greta Mjöll.
LITADÝRÐ Greta
Mjöll kaupir
litrík föt. Hér er
hún í Diesel-
gallabuxum
sem hún
heldur mikið
upp á og bol
sem hún keypti
í Mango.
BLÓMARÓS
Blómakjólinn fékk
Greta Mjöll í
útskriftargjöf frá
systur sinni og
kærastanum
hennar. Blóma-
kjóllinn er litríkur
og flottur.