Fréttablaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 8
Hvaða svæðisstöð ætlar
Ríkisútvarpið að hætta með um
mánaðamótin?
Hvaða þekkti sparkskýrandi
var viðstaddur kynningu á Sýn
2 á dögunum?
Hver mun mögulega gera
brúður fyrir sjónvarpsþætti
eftir barnabókunum um Einar
Áskel?
Fjárframlög til emb-
ættis ríkislögreglustjóra jukust
um 173 prósent árin 2000 til 2006,
að því er fram kemur í grein eftir
hæstaréttarlögmanninn Ragnar
H. Hall, sem birtist í Morgunblað-
inu í gær undir yfirskriftinni
„Saksóknarinn í eyðimörkinni“. Á
sama tíma hefur neysluvísitala
einungis hækkað um þrjátíu pró-
sent.
Ragnar segist í greininni draga
það stórlega í efa að önnur ríkis-
stofnun hafi fengið viðlíka aukn-
ingu í fjárframlögum og efast
jafnframt um að fjármununum
sé vel varið.
Tilefni skrifa Ragnars eru
ummæli Helga Magnúsar Gunn-
arssonar, saksóknara efnahags-
brota, í fjölmiðlum upp á síðkast-
ið, þar sem hann hefur gagnrýnt
þröngan kost embættis hans sem
geri honum erfitt um vik að sinna
málum með viðunandi hætti. Það
hefur haft það í för með sér að
rannsókn mála hefur tafist óeðli-
lega mikið. Minni mál þurfa oft
að bíða fyrir stærri málum eins
og olíuverðsamráð og málverka-
fölsunarmál til dæmis.
„Umfjöllun saksóknarans er
með hreinum ólíkindum,“ segir
Ragnar. „Hvað þarf mikið fé í
þetta apparat til að það geti þjón-
að hlutverki sínu?“ Hann spyr
hvort allir séu sammála um að
fjármagninu hafi verið vel varið.
„Ég hef efasemdir um það,
miðað við þá útreið sem þetta
embætti hefur fengið í nánast
öllum þeim málum sem kallast
geta alvöru efnahagsbrot.“
Frá og með 1. júlí
þarf Reykjavíkurborg að greiða
fjárfestingarfélaginu Valsmönnum
hf. tíu milljónir á mánuði vegna tafa
á gildistöku nýs deiliskipulags fyrir
Hlíðarendasvæðið svokallaða.
Árið 2002 gerði íþróttafélagið
Valur samning við borgina um að
borgin fengi afhent tæplega níu
hektara erfðafestuland Vals að Hlíð-
arenda, íþróttasvæðið yrði minnkað
í tæpa fjóra hektara og að umfram-
landið yrði selt sem byggingarland.
Borgin myndi síðan nýta þá fjár-
muni sem fengjust fyrir svæðið upp
í kostnað við ný íþróttamannvirki
Vals, sem voru formlega kynnt í
fyrradag.
Það voru síðan Valsmenn hf. sem
keyptu svæðið. Í kaupsamningi
þeirra við borgina er kveðið á um að
verði deiluskipulag byggingarsvæð-
isins ekki tilbúið 1. júlí í ár, eigi Vals-
menn heimtingu á tíu milljóna króna
sektargreiðslum á mánuði frá borg-
inni, þar til unnt verður að hefja þar
framkvæmdir.
Brynjar Harðarson, stjórnarfor-
maður Valsmanna, segir að ef allt
gangi að óskum verði deiliskipulag
og lóðaskipulag tilbúið í byrjun okt-
óber. Hann segist hins vegar ekki
fagna sektargreiðslunum. „Vals-
menn hafa þegar greitt 600 milljón-
ir af 1,6 til 1,7 milljörðum fyrir land-
ið, þannig að þessar 10 milljónir á
mánuði eru enginn gróði, heldur
bara til að mæta vaxtakostnaði.“
Brynjar segir tafirnar hafa verið
fyrirséðar og ástæður þeirra eðli-
legar. Hann segir þá ákvörðun að
Háskólinn í Reykjavík skyldi færast
í suðurhlíðar Öskjuhlíðar hafa
breytt miklu. Í kjölfarið hafi þurft
að ráðast í breytingar á gatnaskipu-
lagi og staðsetningu gangamunna
Öskjuhlíðarganga á aðalskipulagi.
Brynjar segir alla fara vel út úr
málinu, Reykjavíkurborg einna
helst. „Þegar samningurinn var
gerður trúðu menn að þeir gætu
kannski fengið 150 milljónir fyrir
þetta land, en niðurstaðan varð einn
og hálfur til tveir milljarðar. Reykja-
víkurborg mun því að endingu ekki
þurfa að greiða neitt fyrir íþrótta-
mannvirkin. Ofan á það mun borgin
fá byggingargjald og fasteignagjald
af öllu saman. Þá eru þessar sektir
bara smáaurar í samanburði.“
Ekki náðist í Hönnu Birnu Kristj-
ánsdóttur, formann skipulagsráðs
Reykjavíkur, eða Birgi Hlyn Sig-
urðsson, sviðsstjóra skipulags- og
byggingarsviðs, vegna málsins.
Borgin greiðir
tíu milljónir á
mánuði í sekt
Reykjavíkurborg þarf að greiða Valsmönnum hf. tíu
milljónir á mánuði frá og með 1. júlí vegna tafa á
gildistöku deiliskipulags á Hlíðarendasvæðinu.
Kína þarf að taka á
spillingu og útdeila auði á
sanngjarnari hátt en pólitískar
umbætur munu fara stigvaxandi
en aðeins undir stjórn eins-
flokks-veldis Kommúnistaflokks-
ins. Þetta er
meðal þess sem
kom fram í
ræðu forseta
Kína, Hu
Jintao, um
framtíðarsýn
sína fyrir
forystu
kínverska
Kommúnista-
flokksins.
Hu sagði að flokkurinn þyrfti
að ná markmiðinu um að koma á
„í grundvallaratriðum vel settu
þjóðfélagi“ fyrir árið 2020 sem
hefur verið eitt meginstefið í
fimm ára valdatíð hans.
Hu kom aðeins lítillega inn á
aukið pólitískt frjálsræði þegar
hann hvatti til aukinnar þátttöku
fólks um leið og einsflokksstjórn
yrði tryggð.
Einsflokksstjórn
tryggð áfram
Vatnsforðinn í miðlunar-
lónum Landsvirkjunar er vel yfir
meðallagi þrátt fyrir þurrkatíð á
Suðurlandi undanfarnar vikur.
Ástæðan er gott veðurfar og
hlýindi undanfarna vetur.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
forðabúrið hafa verið um sjötíu
prósent fullt í síðustu viku, en að
meðaltali sé það um sextíu
prósent á þessum tíma. „Smáveg-
is þurrkatíð hefur voðalega lítið
að segja, við sjáum ekki annað en
að staðan sé mjög góð hjá okkur
núna,“ segir hann. „Það má
reikna með því að okkur takist að
fylla lónin yfir sumartímann.“
Áhrif þurrka á
vatnsforða lítil
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á
síðustu sætunum til Costa del Sol
þann 4. júlí í tvær vikur. Þú bókar
og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér
sumarfrí á frábærum kjörum á vin-
sælasta sumarleyfi sstað Íslendinga.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/
íbúð í 2 vikur.
Allra síðustu sætin
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 2 vikur.
4. júlí í 2 vikur
Taktu flátt í grillleik MS og flú gætir
unni› glæsilegt Weber grill. Kauptu dós af
s‡r›um rjóma frá MS, far›u á www.ms.is,
slá›u inn lukkunúmeri›
sem er í lokinu og flú
fær› strax a›
vita hvort
flú hefur
unni›.
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!