Fréttablaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 66
KSÍ sendir ekki eftir-
litsmenn á leiki í Landsbanka-
deild kvenna. Hlutverk eftirlits-
dómara er að fylgjast með fram-
kvæmd leiksins og gefa skýrslu
um frammistöðu dómarans. Þar
með er ekkert eftirlit eftir dóm-
urum á meðal bestu kvenna-
liða landsins en aftur á móti
fara menn á leiki í Landsbank-
deild karla, sem og í 1. og 2. deild
karla.
„Við höfum fengið óskir um
að skipa eftirlitsmenn á kvenna-
leiki. Það stendur til að gera
eitthvað í málinu á þessu tíma-
bili,“ sagði Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ, þegar Fréttablað-
ið leitaði svara.
„Þetta eftirlit snýst ekki um
kynferði. Eftirlitsmenn fylgjast
með hvað er að gerast, hvernig
framkoma áhorfenda auk dóm-
aranna en þetta helst í hend-
ur með stærri leikjum á Íslandi
þar sem er mikið um áhorfend-
ur,“ sagði Geir. Hann sagði jafn-
framt að enginn eftirlitsmaður
hefði verið skipaður á kvenna-
leik á þessu ári, að sinni vitn-
eskju, en ekki hefði borið á mik-
illi óánægju vegna þessa.
„Það hefur verið umræða um að
vinna í þessa átt en það er engin
mótstaða við KSÍ vegna málsins.
En við höfum fengið óskir um að
vinna í þessu. Kannski þurfum
við bara að fjölga eftirlitsmönn-
um,“ sagði Geir.
„Það stendur til að
gera eitthvað í þessu“
Í gær var dregið í 16-liða
úrslit VISA-bikars karla í knatt-
spyrnu. Tvær viðureignir standa
upp úr, leikir KR og Vals og
Breiðabliks og HK. Leikirnir fara
fram 10. og 11. júlí.
Grannaslagir í
bikarkeppninni
Verða vonandi skemmtilegri tímar en síðast
Það eru mörkin sem telja
í fótbolta og því hafa KR-ingar
fengið að kynnast í sumar. Þeir
hafa oft leikið ágætan fótbolta
og fengið fjölda færa sem þeir
klúðruðu á ótrúlegan hátt. Á móti
hafa komið mörk sem urðu KR að
falli. KR skapaði lítið sem ekkert í
leiknum gegn Fram í gær en hlut-
irnir féllu í fyrsta skipti með lið-
inu og það vann loksins leik og það
frekar óverðskuldað en að slíku er
ekki spurt í fótbolta.
Teitur Þórðarson gerði athygl-
isverðar breytingar á KR-liðinu
og kom þar mest á óvart að hann
skyldi taka Kristján Finnboga-
son úr markinu og í hans stað kom
Stefán Logi Magnússon. Ungur
Breiðhyltingur, Guðmundur Pét-
ursson að nafni, var síðan kominn
í framlínuna.
Fyrri hálfleikur í gær var í einu
orði sagt hrútleiðinlegur og einn sá
slakasti í sumar ef ekki sá slakasti.
Knattspyrnan var ekki boðleg hjá
hvorugu liðinu. Hjálmar Þórarins-
son kom Fram yfir með frábæru
skoti í teignum eftir að KR hafði
mistekist að hreinsa en þess utan
gerðist nánast ekki neitt.
Síðari hálfleikur byrjaði ekki
með miklum látum og í raun hafði
ekkert gerst þegar Pétur Mart-
einsson togaði Kristján Hauks-
son niður í teignum og Eyjólfur
dæmdi víti. Stefán Logi gerði sér
lítið fyrir og varði spyrnu Hjálm-
ars glæsilega og hélt KR því inn
í leiknum. Þetta reyndist vendi-
punktur leiksins. KR lifnaði mikið
við eftir vítið og leikmönnum liðs-
ins óx ásmegin eftir því sem leið á
hálfleikinn. Þeim gekk samt bölv-
anlega að skapa sér færi sem fyrr
í leiknum.
Fáséð lukka kom í Vesturbæinn
rúmum tíu mínútum fyrir leikslok
þegar Jóhann Þórhallsson kastaði
sér á Hannes markvörð sem virt-
ist hafa boltann en gerði það ekki
því hann lak á einhvern furðuleg-
an hátt í netið. Guðmundur Péturs-
son bjargaði síðan KR-ingum með
góðum skalla eftir hornspyrnu á
lokamínútu leiksins.
Sigurinn var ekki fallegur og
leikurinn var klárlega með þeim
lélegri hjá KR í sumar. Liðið skap-
aði sér lítið sem ekki neitt, sókn-
arleikurinn var í molum og varn-
arleikurinn vafasamur sem fyrr.
Leikmenn sýndu aftur á móti
þrautseigju og karakter sem skil-
aði þeim loksins einhverju.
Fyrsti sigurinn hlýtur að létta
svakalegri pressu og andlegu álagi
af leikmönnum sem voru eflaust
búnir að gleyma sigurtilfinning-
unni. Hefði KR tapað væri staða
liðsins skelfileg en sigurinn breyt-
ir öllu landslagi í Vesturbænum.
Framarar voru betra liðið í gær,
vörnin var fín, sóknin ágæt og
liðið átti hættulegar skyndisókn-
ir. Lukkan var aftur á móti á bandi
KR í gær og breytingar Teits, sem
ekki voru allir sáttir við, skiluðu
KR miklu en skoraði Guðmundur
sigurmarkið og Stefán varði vítið
frábærlega.
Teiti Þórðarsyni var vitanlega
gríðarlega létt í leikslok. „Tilfinn-
ingin er frábær. Þetta er mikill
léttir enda búið að vera ansi þungt
og óskiljanlegt ástand í raun og
veru.“
Hann viðurkenndi að það var
farið að fara um hann í upphafi
seinni hálfleiks. „Við urðum þó
að halda rónni og vinna vel fyrir
liðið. Það gekk eftir. En við áttum
erfitt uppdráttar í leiknum og í
enn eina skiptið vorum við ekki að
nýta færin okkar. En nú náðum við
að klára þetta, loksins.“
Teitur sagði að hann hafi aldrei
óttast að hann væri kominn í öng-
stræti með liðið. „Aldrei. Við erum
búnir að vinna vel saman, leik-
menn og stjórnin, og aldrei verið
neitt vesen á því samstarfi. Ég
vona að þessi sigur veiti okkur
aukið sjálfstraust til að halda
þessu áfram.”
Maður leiksins og markahetjan
Guðmundur Pétursson var ánægð-
ur með að hafa fengið tækifærið
í byrjunarliðinu. „Ég hef verið að
vinna að því að komast í þetta lið
í átta mánuði. Þegar tækifærið
kom loksins varð ég að standa mig
og ég reyndi mitt allra besta. Við
allir vorum staðráðnir í að vera já-
kvæðir allan tímann og þetta verð-
ur varla betra en í dag.“
Það hafði allt gengið á afturfótunum hjá KR í fyrstu sjö leikjum sumarsins en gæfan var hliðholl Vestur-
bæingum í gær þegar KR spilaði einn sinn slakasta leik í sumar en vann samt sinn fyrsta leik gegn Fram,
2-1. Róttækar breytingar Teits Þórðarsonar, þjálfara KR, reyndust réttar þegar upp var staðið.