Fréttablaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 62
Kryddpíurnar hafa snú-
ið aftur úr áralangri pásu
og ætla í tónleikaferð um
heiminn í desember og
janúar. Allir upprunaleg-
ir meðlimir verða með í
þetta sinn, þar á meðal Geri
Halliwell sem hætti í maí
1998.
Tónleikaferðin hefst í Los Angeles
og verða tónleikarnir ellefu tals-
ins. „Við vildum minnast góðra
tíma, skemmta okkur saman og
hitta aðdáendurna aftur. Þetta var
rétti tímapunkturinn,“ sagði Halli-
well. Aðeins einir tónleikar eru
fyrirhugaðir í London og kom það
mörgum aðdáendum sveitarinnar
á óvart.
Kryddpíurnar hafa selt yfir
55 milljónir platna úti um allan
heim og hafa meira að segja leik-
ið í sinni eigin kvikmynd, Spice
World. Árið 2001 lagði sveitin upp
laupana og í kjölfarið hófu þær
Emma, Mel B, Mel C og Victor-
ia Beckham sólóferil hver í sínu
horni. Gengu þær tilraunir upp og
ofan og vonast þær stöllur til að
endurvekja vinsældir sínar með
tónleikaferðinni.
Paris Hilton var læst í 10 fermetra
stórum fangaklefa í 23 klukkustund-
ir á dag í þær rúmu þrjár vikur sem
hún mátti dúsa í fangelsi í Los Ang-
eles. Stærstan hluta þess tíma eyddi
hún í að lesa Biblíuna, stunda hug-
leiðslu og ákveða hvernig hún gæti
notað reynsluna innan múranna til
að koma lífi sínu á réttan kjöl. Þetta
sagði Paris í viðtali við spjallþátta-
stjórnandann Larry King í gær, en
um var að ræða fyrsta viðtalið sem
hótelerfinginn veitti eftir að hafa
verið sleppt úr haldi fyrr í vikunni.
„Ég átti ekki skilið að fara í fang-
elsi en ég hef lært mína lexíu. Fram-
vegis mun ég framfylgja lögunum
og haga mér vel. Ég hef þroskast.
Ég er 26 ára gömul, orðin fullorðin
og ég vill vera ábyrgðarfull,“ sagði
Paris.
Hún segir það hafa verið „skelfi-
legt“ að þurfa að dúsa í fangelsi í
23 daga, sérstaklega í ljósi þess að
hún þjáist af innilokunarkennd og
kvíðaköstum. „Upphafið var erfið-
ast en síðan ákvað ég að reyna að
líta á björtu hliðarnar á málunum.
Og þá gekk þetta strax betur.“ Og
um mánudaginn þegar Paris var
sleppt sagði hún: „Þetta var besti
dagur lífs míns.“
París las Biblíuna og hugleiddi
Söngkonan Christina Ag-
uilera hefur mikinn
áhuga á að spreyta
sig í leiklist á kom-
andi árum og segist
hún þegar hafa þurft
að hafna nokkrum til-
boðum um stór hlutverk
í þáttum og kvikmynd-
um. Aguilera kom fram
í litlu hlutverki í sjón-
varpsþáttunum CSI: New
York fyrir skemmstu auk
þess sem hún talaði inn á
teiknimyndina Shark’s Tale
á sínum tíma.
Aguilera, sem komin er
rúma þrjá mánuði á leið með
sitt fyrsta barn, kveðst hafa
mjög gaman af leiklistinni
og hyggst hún breyta um
lífsstíl eftir að frumburður-
inn er fæddur.
„Leiklist er annað form
af sköpun en tónlist og eitt-
hvað sem ég hef mikinn
áhuga á að prófa. Ég vil
fá að spreyta mig í kvik-
myndahlutverki en þegar
að því kemur vil ég að
hlutverkið henti mér.
Það er því mikilvægt
að ég velji rétta hlut-
verkið,“ segir Aguil-
era.
Aguilera vill leika