Fréttablaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 10
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
DRAUMASTAÐUR Á NESINU
Hrólfsskálamelur 2–8
Ítarlegar
upplýsingar
um eignirnar
á vefsíðu okkar
www.iav.is
www.iav.is
ÍBURÐARMIKLAR ÍBÚÐIR
ÍAV reisir þrjú fjölbýlishús við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi. Í fyrsta húsinu eru 26 íbúðir en alls verða
um 80 íbúðir í húsunum þremur.
Gæðastig íbúðanna er með því hæsta sem þekkist á markaðnum. Á það jafnt við um hönnun, efnis-
val, búnað og frágang. Lofthæð í stofum, eldhúsum og herbergjum er mun meiri en almennt gerist.
Gólfsíðir gluggar í stofum og herbergjum gefa mikla birtu. Tvöföld gólf tryggja mikla hljóðeinangrun.
Svalaskýli eru á svölum.
Við hönnun íbúðanna voru þægindi og öryggi íbúa höfð í öndvegi. Loft íbúða eru niðurtekin og með
innfelldri lýsingu með sérstakri ljósastýringu. Gólfhiti er með þráðlausum nemum. Á baðherbergjum
er borðplata úr graníti og í flestum íbúðanna eru bæði baðker og sturta. Í íbúðunum verður loft-
skiptakerfi.
Íbúðunum er skilað fullbúnum með fljótandi plankaparketi á gólfum. Í eldhúsi eru vandaðar
innréttingar með eldunareyju, og borðplötu úr graníti. Eldhústæki eru af Miele-gerð með burstaðri
stáláferð, eða sambærilegt.
Að utan eru húsin að mestu klædd með leirbrenndum flísum og að hluta með sléttri álklæðningu.
Allir gluggar eru álkæddir timburgluggar. Húsin þarfnast því lágmarksviðhalds.
Ert þú með
Vegabréf N1?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
1
8
9
0
Mikil tilfærsla á
aflaheimildum er fyrirsjáanleg
verði mikill samdráttur í þorskafla
á næsta fiskveiðiári. Áhrifin á land-
vinnslu eru mjög mismunandi eftir
landshlutum og útgerðarstöðum.
Stærstu útgerðirnar munu líklega
kaupa upp aflaheimildir þeirra
minnstu.
Í skýrslu sinni um þjóðhagsleg
áhrif aflareglu fjallar Hagfræði-
stofnun um hugsanlega þróun í
fiskveiðum og vinnslu á Íslandi ef
þorskafli verður skorinn verulega
niður. Talið er líklegt að helst muni
minnstu útgerðirnar selja afla-
hlutdeild sína til þeirra stærstu.
Stofnunin skoðar nokkur dæmi
þar sem 245 til 552 minnstu útgerð-
irnar selja tíu til 21 stærstu. Tíu
stærstu útgerðarfyrirtækin eru
öll staðsett í stærri útgerðarbæj-
um sem þýðir að tilfærsla afla-
heimilda er frá minnstu byggðar-
lögum til þeirra stærri, eins og
verið hefur undanfarin ár. Sam-
eining lítilla útgerða innan króka-
aflamarkskerfisins er þó einnig
mjög líkleg þar sem aflahlutdeild
verður ekki færð af báti undir
fimmtán tonnum að stærð nema til
báts í sama kerfi. Alvarlegustu
áföllin við niðurskurð þorskafla
yrðu við kvótasölu úr bæjarfélög-
um eða landshlutum. Vestfjörðum
er hætt við að missa hlutfallslega
flest störf en á Suðurnesjum er
hætt við búsefjum vegna mikil-
vægis þorsks í söltun. Mörg störf
eru líkleg til að tapast á Austur-
landi og Suðurnesjum þar sem um
sjötíu prósent af afla er unninn í
heimahöfn en hlutfallið er aðeins
um þrjátíu prósent á Vesturlandi.
Breytingar fyrirséðar
Hagfræðistofnun telur að minnstu útgerðir landsins muni fara verst út úr nið-
urskurði á þorski. Stærstu fyrirtækin kaupa kvóta minni útgerða í stórum stíl.