Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 2

Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 2
Ólafur, voruð þið með Val- kvíða? Búast má við svipaðri umferð út á land um þessa helgi og um síðustu helgi. Þá skapaðist mikil umferðarteppa á leið inn og út úr Reykjavík. Einar Magnússon hjá Umferðarstofu segir svo lengi sem veðrið sé gott verði umferð jafn mikil og hún var um síðustu helgi. „Eftirvagnar hafa stórauk- ist og því meira um að menn leggi í ferðalög,“ segir Einar. Til að umferð gangi hraðar fyrir sig er mælt með því að nota tann- hjólaaðferðina. Hún gengur þannig fyrir sig að hleypt er einum bíl í einu að aðliggjandi götum eða vegum. Hún hafi ekki nýst sem skyldi um síðustu helgi á mótum Þingvallavegar og Vesturlands- vegar. „Með því að nota tannhjóla- aðferðina þarna verður flæði umferðarinnar mun betra,“ segir Einar. Borið hefur á því á tvíbreiðum vegum eins og á Suðurlandsvegi hjá Rauðavatni að bílar haldi sig hægra megin en síðan keyri nokkr- ir bílar vinstra megin og þröngvi sér svo inn á hægri helminginn. Þeir komast því framar í röðina en þeir hægra megin sitja eftir. Einar mælir með því að tannhjólaaðferð- in sé líka notuð á svona stöðum. Báðar akreinarnar verði notaðar til jafns og bílarnir fái forgang á víxl þar sem vegurinn breytist í einbreiðan. Ferðir út á land hafa stóraukist Eigandi hunds sem týndist á Akureyri um hvítasunn- una hefur nú kært hrottalega mis- þyrmingu á hundinum til lögreglu. Að sögn eigandans urðu grimmdar- legar aðfarir hundinum að bana. Hundurinn Lúkas, sem er hrein- ræktaður af tegundinni Chinese crested, strauk að heiman um hvíta- sunnuna. „Hann var nýkominn úr gelding- araðgerð og því gat ég ekki haft hann með mér í vinnuna eins og ég er vön,“ segir eigandinn, Kristjana Margrét Svansdóttir. Meðan hún skaust frá, í um klukkustund, vakn- aði Lúkas, enn hálfvankaður af svæfingunni, og gat kraflað sig upp að glugga þar sem hann komst út. Hópur fólks leitaði hans vikum saman, auk þess sem Kristjana hengdi upp auglýsingar um allan bæ þar sem háum fundarlaunum var heitið. Af og til spurðist til Lúk- asar en hann var eldstyggur og allt- af þotinn í burtu þegar Kristjana kom á staðinn. „Á bíladögum sem haldnir voru í bænum 15.-17. júní hafði ég svo spurnir af því að hópur stráka hefði fundið Lúkas. Ég vissi ekki hverjir þetta voru en varð mjög glöð, því ég hélt þeir myndu koma honum til mín, þar sem auglýsingarnar mínar voru svo víða.“ En á því varð bið. Hins vegar fór að berast orðrómur um afdrif Lúk- asar, þess efnis að sést hafi til hóps pilta um og undir tvítugt með hann. Einn þeirra hafi sett hundinn í íþróttatösku og þeir síðan sparkað töskunni á milli sín þar til hundur- inn var hættur að veina. Kristjana kveðst hafa fengið staðfest sann- leiksgildi þessa. Í gær fór hún og kærði athæfið til lögreglunnar á Akureyri. Þá hafði hún safnað gögn- um sem hún lagði fram. „Nú vil ég bara fá Lúkas til að geta jarðað hann,“ segir Kristjana. „Ég get ekki hugsað mér að hann liggi einhvers staðar í reiðileysi.“ Einn meintra þátttakenda í mis- þyrmingunum, sem býr í Reykja- vík, er með opna bloggsíðu þar sem hótunum um aðför og líkamsmeið- ingar og fúkyrðum af verstu tegund rigndi inn í gær. „Ég er persónulega búinn að setja menn á þig… ég veit hvar þú ert og hvert þú ferð,“ mátti meðal annars lesa á síðunni. Og einnig: „Vona að þeir sem hafa hótað þér standi við hótanir sínar.“ Ekki náðist í umræddan pilt í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Faðir hans vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið. Hrottaleg misþyrm- ing á hundi kærð Eigandi hunds hefur kært til lögreglunnar á Akureyri hrottalega meðferð, sem dró hundinn til dauða. Grunur leikur á að honum hafi verið sparkað fram og tilbaka í íþróttatösku. Hótunarabréf send á einn af meintum gerendum. Lögreglan á Spáni handtók í gær ítalskan mann og portúgalska konu, sem talin eru tengjast máli Madeleine McCann, fjögurra ára breskrar stúlku, sem hvarf spor- laust í Portú- gal fyrir tæpum tveimur mánuðum. Ekki er vitað hvort þau handteknu hafi átt þátt í hvarfi stúlkunnar. Spænsk fréttastofa hélt því fram að maðurinn hafi reynt að kúga fé út úr foreldrum stúlkunnar í skiptum fyrir upplýsingar. Fjöldi ábendinga hefur borist lögreglu undanfarna mánuði, en enginn hefur verið handtekinn fyrr en nú. Grunuð um að- ild að hvarfinu Útsölur hófust í Kringlunni og Smáralind í gær. Rólegt var í Kringlunni fram eftir degi en þegar leið á daginn fór að fjölga í búðunum. Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir ástæðu þess að útsölur hefjist í lok júní, en ekki í lok sumars eins og áður fyrr, vera breytt umhverfi verslunar. „Í útlöndum eru útsölu- tímabilin ekki ólík þessum hefð- bundnu sumar- og vetrarútsölum á Íslandi en þar eru þær þó hugs- anlega fleiri á ári en hérna heima.“ Breytt umhverfi flýtir útsölum „Ég er búinn að tala við lögfræðing út af þessu máli,“ segir Ófeigur Friðriksson, stuðn- ingsmaður FH. Sex lögreglumenn voru kallaðir í áhorfendastúkur Laugardalsvallar í fyrrakvöld þegar leikur FH og Vals fór fram. Ófeigi og öðrum manni var vísað burt en hann segist engar skýringar hafa fengið á því. Hermann Valgarðsson, stjórnar- maður stuðningsmannafélags FH, svokallaðrar Mafíu, segir tildrög ólátanna hafa verið þau að vallar- stjórinn hafi kvartað undan áfengis- drykkju stuðningsmanna FH. Hann hafi því næst gert tösku upptæka án þess að gefa skýringar á því. Jóhannes Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, vildi ekki tjá sig um málið. Rúnar Árnason, eigandi töskunn- ar sem var gerð upptæk, segist undrandi á framgöngu vallarstjór- ans. Kveðst hann hafa boðið honum að leita í henni en því hafi ekki verið tekið. Taskan hafi einfaldlega verið tekin án útskýringa. Kalla hafi þurft eftir aðstoð lögreglu til að fá hana afhenta eftir leikinn. Hann segist íhuga að tala við lögfræðing vegna málsins. Hermann segir málið undarlegt og virðist mörgum FH-mönnum sem vallarstjóri hafi verið að ögra hópnum. Viðbrögð sem þessi vegna bjórdrykkju skjóti einnig skökku við þar sem KSÍ bjóði sjálft upp á bjór í svokölluðu VIP-rými vallar- ins. Hvorki Geir Þorsteinsson, for- maður KSÍ, né Þórir Björnsson, framkvæmdastjóri KSÍ, sögðust geta tjáð sig um málið. Lögreglan verður með aukinn viðbúnað á þeim stöðum þar sem bæjarhátíðir verða haldnar um helgina. Sérstakt eftirlit verður með ölvun og fíkniefnum. Búist er við mikilli umferð í umdæmi lögreglunnar á Höfn í Hornafirði, ekki einungis vegna Humarhátíðar- innar þar heldur einnig vegna Fjórðungsmóts hestamanna sem verður haldið á Egilsstöðum um helgina. Hamingjudagar verða haldnir á Hólmavík og verður aukin löggæsla með umferð og gestum á svæðinu. Hátíðin hefur farið vel fram í þau skipti sem hún hefur verið haldin að sögn lögreglunnar á Hólmavík. Lögreglan með viðbúnað Óráðlegt er að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samning um raforkusölu til álvers í Helguvík á meðan ekki liggur fyrir hvort fyrirtækið er bundið af samningum vegna stækkunar álversins í Straumsvík, að mati borgarráðsfulltrúa Samfylkingar. Tekist var á um málið í borgarráði í gær. Fulltrúar meirihlutans sögðu OR hafa fleiri virkjunarkosti en þurfi fyrir álver í Helguvík og stækkun í Straumsvík. Fulltrúi Vinstri grænna sagði tillögu um samning um orkusölu óviðunandi, hann sé hluti af ríkjandi stóriðjustefnu sem VG hafi barist gegn. OR semji ekki um Helguvík Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í Laugardalnum aðfaranótt fimmtudags með talsvert magn fíkniefna. Mennirnir voru á gangi en tóku á rás þegar lögregla reyndi að hafa afskipti af þeim. Þá kom í ljós að þeir höfðu á sér fíkniefni sem líkast til voru ætluð til sölu. Þá var maður á fertugsaldri handtekinn í miðborginni sömu nótt. Sá var í annarlegu ástandi og bisaði við að spenna upp glugga á húsi þegar lögreglu bar að. Á honum fannst lítið magn fíkniefna. Tóku á rás þeg- ar lögregla kom

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.