Fréttablaðið - 29.06.2007, Síða 17

Fréttablaðið - 29.06.2007, Síða 17
Lögreglan á Íslandi hefur ekki lagaheimildir til þess að taka með sama hætti á skipulagðri glæpastarfsemi og lögreglan á hinum Norður- löndunum. Danska og norska lögregl- an, svo dæmi sé tekið, hafa lagaheimildir til þess að athuga hvort það geti tengst ólögmætri starfsemi ef tiltekinn einstaklingur ekur um á margra milljóna króna glæsikerru, og stendur í tíðum utanlandsferðum, en býr í félagslegu húsnæði og er hvergi skráður í vinnu. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir ýmis einkenni skipulagðrar glæpastarf- semi vera að finna á Íslandi. „Það hefur algjörlega lykilþýðingu fyrir lögregluna að hafa heimildir sem eru sambærilegar þeim sem hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa til þess að hefja athugun á málum þegar hún telur ástæðu vera til. Takmark- anirnar eru alltaf þær að nauðsyn- legt er að hafa rökstuddan grun um alvarleg brot svo hægt sé að beita ýmsum mikilvægum aðgerðum, til dæmis hlerunum og húsleitum, gegn hópum eða einstaklingum. Þetta er viðkvæmt,“ segir Stefán og leggur áherslu á að mikilvægt sé að eftirlit sé með því að öllu sé að farið með gát. „Það verður að vega og meta hlutina, meðal annars út frá mannréttindasjónarmiðum. Lögreglan þarf alltaf að fá heimildir frá dómstólum og er undir eftirliti þeirra. Á Norður- löndunum er sérstök nefnd sem hefur eftirlit með því að lögreglan fari eftir lögum og reglum þegar farið er út í forvirkar aðgerðir, eins og við viljum geta beitt hér ef þannig aðstæður skapast.“ Greiningardeild ríkislögreglu- stjóra hefur það á sínum snærum að taka á skipulagðri glæpastarf- semi en getur ekki beitt sömu aðferðum og lögreglan á Norður- löndunum. „Það er ákaflega slæmt ef við getum ekki tekið á málum vegna ónægra lagaheimilda. Það skal þó tekið fram að lögreglan hefur ýmsa möguleika til að beita gegn skipulagðri glæpastarfsemi, en betur má ef duga skal og vegna þeirra þróunar sem lögreglan skynjar að sé í gangi hér á landi, hvað varðar sífellt betur skipu- lagða glæpastarfsemi, þarf að skoða heimildir lögreglunnar í takt við þá þróun,“ segir Stefán. Þrengri en á Norðurlöndum f l Vörður er í eigu Byrs-sparisjóðs, Landsbankans og SP-Fjármögnunar. Klikkaður í Cocoa Puffs! ÍS L E N S K A S IA .I S / N A T 3 77 14 0 5/ 20 07

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.