Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 24

Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 24
Sumarið er tíminn til að neyta grænmetisrétta, hvort sem um er að ræða sem meðlæti eða aðalrétti. Á sumrin hafa margir gaman af því að grilla, en margir dagar í röð með kjötneyslu geta haft svo- lítið slen í för með sér og þá er ráð að borða eitthvað léttara og ferskara. Á vefsíðunni www. islenskt.is, sem Sölufélag garð- yrkjumanna heldur úti er að finna ótal margar góðar og gagnlegar upplýsingar um íslenskt græn- meti í allri sinni dýrð, bæði upp- skriftir, grænmetisdagatal, fróð- leik um meðhöndlun grænmetis og margt fleira. Eftirfarandi upp- skrift er spánný og kemur frá Nönnu Rögnvaldardóttur sem léði Sölufélagi garðyrkjumanna krafta sína á dögunum. Paprikan hentar vel sem forréttur eða meðlæti. Ofninn hitaður í 180°C. Paprik- urnar skornar í tvennt eftir endi- löngu, stilkur, kjarni og fræ fjar- lægt og þær síðan penslaðar með 1 msk. af olíu og þeim raðað í eld- fast mót. Kúskúsið sett í skál, sjóðandi vatni hellt yfir sam- kvæmt leiðbeiningum á umbúð- um og látið standa í um 5 mínútur. Þá er sítrónusafa, 2 msk. af olíu, pipar og salti hrært saman við. Tómatarnir, vorlaukurinn og steinseljan söxuð smátt og bland- að saman við. Paprikurnar fylltar með kúskúsblöndunni og síðan er ostarúllan skorin í sneiðar og 1-2 sneiðar settar ofan á hvern papr- ikuhelming. Sett í ofninn og bakað í 20-25 mínútur. Borið fram með grænu salati (t.d. grand-salati) og góðu brauði. Brakandi ferskt og fagurt Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbítskinnar og bita Sími: 466 1016 ektafiskur@emax.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.