Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 42

Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 42
BLS. 14 | sirkus | 29. JÚNÍ 2007 Drauma sumarfríið Útgáfufélag 365 prentmiðlar Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm. Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettabladid.is, Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@ frettabladid.is Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is, Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Rvk, sími 550 5000 Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir 550 5864 gretakaren@frett.is sirkus SPURNINGAKEPPNI Sirkuss Sv ör : 1 . G or do n Br ow n 2. In gi 3 . B ar ce lo na 4 .J ón Ka lm an S te fá ns so n 5. B jö rg vi n Ha lld ór ss on o g Ra gn ar Bj ar na so n 6. G uð m un du r Ár ni S te fá ns so n 7. R úm le ga 1, 7 m ill jó ni r kr ón a (1 .7 42 .2 97 ) 8 . G un na r Si gu rð ss on 9. M on te ví de ó 10 . Ó m ar B en ed ik ts so n Logi Bergmann Eiðsson 1. Brown, Gordon 2. Ingi 3. Barcelona 4. Jón Kalman Stefánsson 5. Björgvin Halldórsson og Ragnar Bjarnason 6. Guðmundur Árni Stefánsson 7. 1,7 milljónir 8. Gunnar Sigurðsson 9. Montevídeó 10. Kristín Edwald 9 RÉTT SVÖR Sóley Elíasdóttir 1. Gordon Brown 2. Gunnar „hustler“ Birgisson 3. Barcelona 4. Gyrði Elíasson 5. Bjöggi Halldórs og Helgi Björns 6. Svavar Gestsson 7. 1,7 milljónir 8. Gunnar Svavarsson 9. Veit ekki 10. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. 3 RÉTT SVÖR Sóley skorar á leikkonuna Hall- dóru Geirharðs- dóttur að mæta Loga í næstu viku. SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. HÉR MÆTAST SÓLEY ELÍASDÓTTIR LEIKKONA OG LOGI BERGMANN EIÐSSON SJÓNVARPSMAÐUR. 1. Hvað heitir nýr leiðtogi Verka- mannaflokksins í Bretlandi? 2. Hvert er millinafn Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópa- vogi? 3. Í raðir hvaða liðs gekk fram- herjinn Thierry Henry um síðustu helgi? 4. Eftir hvern er bókin Sumarljós, og svo kemur nóttin? 5. Hvaða tveir landsþekktu söngv- arar sungu saman í fyrsta sinn við upptökur á Íslandslögum 7? 6. Hver er sendiherra Íslands í Svíþjóð? 7. Hvað er Davíð Oddsson með í mánaðarlaun sem bankastjóri Seðlabankans eftir nýlega launa- hækkun? 8. Hvað heitir nýr forstjóri Baugs? 9. Hvað heitir höfuðborg Úrúgvæ? 10. Hvað heitir stjórnarformaður RÚV ohf.? Björk er að koma úr ári þar sem hefur verið töluvert álag á henni og hún hefur þurft að hafa fyrir hlutunum,“ segir Sigríður Klingenberg spákona um Björk Guðmundsdóttur söngkonu. „Hún er að fara yfir á fimm- una í talnaspeki sem kemur henni á léttan og kátan kafla og tónleikaferða- lag hennar á eftir að fara fram úr björt- ustu vonum. Þetta nýjasta „comeback“ hennar á eftir að slá rækilega í gegn og líka hjá nýjum aðdáendum svo annað eins hefur varla sést í tónlistargeiran- um. Björk er að komast yfir á frjósemis- árið 2008 svo það gæti verið að hún fái að sinna einhverju öðru upp úr því tímabili. Björk er 8 og þar af leiðandi þarf hún að hafa mikið að gera því ann- ars leiðist henni. Að vera 8 er eins og í olsen olsen, hún hefur þann mátt að geta alltaf breytt. Þar sem Björk hefur í gegnum tíðina alltaf verið fjörleg við að breyta hlutunum verður aldrei hjá henni þessi stöðnun sem hefur hrjáð margan lista- manninn.“ Á Björk von á barni? Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is F jölskyldudagur Eimskips var haldinn í Fjölskyldu- og hús-dýragarðinum síðastliðinn laugardag. Þar mættu starfsmenn fyrirtækisins með fjölskyldur sínar og áttu saman góða stund í rjómablíðu Laugardalsins. Alls mættu um 500 manns og er óhætt að segja Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður spænska stórliðsins Barcelona, hafi stolið senunni en hann var sérstakur gestur. Eiður Smári og Eimskip tengj- ast sterkum böndum en knattspyrnu- hetjan lék aðalhlutverkið í alþjóðlegri auglýsingaherferð fyrirtækisins. Eiður Smári kom færandi hendi því hann kom með gjafir handa börnunum á svæðinu. Hann afhenti bakpoka, bolta og síðast en ekki síst þá dreifði hann tvenns konar plakötum af sjálfum sér í leik. Annars vegar mynd af því þegar hann skoraði fyrir Barcelona fram hjá Reina, markverði Liverpool, í leik lið- anna í meistaradeildinni fyrr á þessu ári og hins vegar þegar hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona, gegn Celta Vigo á útivelli. Eiður Smári settist síðan niður og áritaði allt sem hönd var festandi á í samtals tvo tíma. „Ég held að ég hafi eytt tveimur tússpennum og ég var orðinn ansi þreyttur í hendinni. Þetta var hins vegar alveg æðislega gaman,“ segir Eiður Smári í samtali við Sirkus. Eftir áritunina fór Eiður Smári í vítaspyrnukeppni með krökkunum. Hann var í markinu og stóð sig að sögn sjónarvotta frekar illa. oskar@frettabladid.is EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN MÆTTI Á FJÖLSKYLDUDAG EIMSKIPS Í HÚSDÝRAGARÐINUM EYDDI TVEIMUR TÚSS- PENNUM VIÐ ÁRITANIR NETTUR Eiður Smári sýndi krökkunum alls kyns listir með boltann. ERFITT EN GAMAN Það er þreytandi að árita viðstöðulaust í tvo tíma en Eiður Smári virtist skemmta sér konunglega. BROSA Eiður Smári mætti með yngsta son sinn Daníel Tristan á fjölskyldudag Eimskips og stillir sér hér upp með einni ungri knattspyrnukonu. SIR K USM YN D /PJETUR OF SEINN Eiður Smári þótti ekki sýna mikla takta á milli stanganna í vítaspyrnukeppninni. Ég myndi segja að það væri að ferðast innanlands í góðu veðri með góðum vinum. Á sumrin er svo gott að vera á Íslandi og maður á frekar að fara út á veturna. Friðrik Ómar söngvari. „Ég myndi vilja fara aftur til Suður-Afríku og Svasílands eins og ég gerði í fyrra. Það var algjör snilldarferð, við fórum átta saman og það er eiginlega skylda fyrir alla að fara þangað.“ Jón Þór Þorleifsson, kvikmynda- gerðarmaður hjá Filmus. „Það er óskaplega margt sem heillar en ég hugsa að mér þætti skemmtilegast að fara með vinum og fjölskyldu eitthvert þar sem sólin skín og hitinn er temmilegur. Flatmaga í sólinni og gera sem minnst. En ef ég myndi fara í fjörugt sumarfrí þá hugsa ég að ég myndi fara í ferðalag um Bandaríkin eða Suður- Ameríku með vinkonunum og gera einhverjar gloríur.“ Ína Valgerður Pétursdóttir söngkona.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.