Fréttablaðið - 29.06.2007, Page 53

Fréttablaðið - 29.06.2007, Page 53
[Hlutabréf] Sameinaður sparisjóður Byrs og Sparisjóðs Kópavogs (SPK) er metinn á um 45 milljarða króna miðað við síðasta viðskiptagengi í Byr. Stjórnir sparisjóðanna hafa skrifað undir samrunaáætlun sem miðast við 1. janúar 2007. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórn- arformaður Byrs, segir að góðum áfanga sé náð. „Nú erum við búnir að dekka útibúanetið á höf- uðborgarsvæðinu. Við erum ekki með neina starfsemi í Kópavogi þannig að þessi fyrirtæki smell- passa saman.“ Byr er annar stærsti sparisjóður landsins en SPK sá fimmti stærsti. Aðeins SPRON er stærri spari- sjóður í eignum talið en heildar- eignir sjóðanna tveggja nema nú um 140 milljörðum króna. Reka þeir alls níu útibú á höfuðborgar- svæðinu og sjá stjórnendur fyrir sér þrjú kjarnaútibú: Í Borgar- túni, við Strandgötu í Hafnarfirði og í Kópavogi. Umsvif sjóðanna liggja einnig víða á sviði fjárfest- inga en þeir eru stórir í Icebank, SP Fjármögnun og fjárfestingar- bönkunum MP og VBS. „Stóra tækifærið liggur í því að sameiginlegur sparisjóður hefur miklu meiri sóknargetu en sjóð- irnir höfðu áður út af stærð og styrkleika. Miðað við þann kostn- að sem sjóðirnir hafa núna þá getur hann sótt miklu meiri tekj- ur,“ segir Birgir Ómar Haralds- son, stjórnarformaður SPK. Og bætir við: „Það verður sótt fram af ákveðni og fagmennsku.“ Stjórnendur sjóðanna ætla að taka sér góðan tíma til að fara vel yfir alla þætti starfseminnar, enda er það heilmikið verkefni að sameina sparisjóði. Þeir telja að til að byrja með verði starfsemi hins nýja sjóðs óbreytt. Stofnfjáreigendur í Byr munu fá 87 prósent í sameinuðum sjóði á móti þrettán prósentum stofn- fjáreigenda í SPK. Til þess að mæta skiptihlutföllum verður stofnfé Byrs aukið um tæpa 2,8 milljarða króna og fer sú aukning að öllum líkindum fram í haust. Mikið ferli er fram undan en bæði FME og Samkeppnisstofn- un þurfa að taka málið til með- ferðar auk þess sem gera þarf áreiðanleikakönnun. Forsvars- menn Byrs þekkja vel til þess- ara mála frá sameiningu SPH og SPV í fyrra. Ef allt gengur eftir reikna stjórnarformennirnir með að samruninn gangi í gegn í sept- ember. Reiknað er með að tillaga um samruna verði þá lögð fyrir stofnfjáreigendur í báðum sjóð- um. Stofnfjáreigendur í Byr eru um sex hundruð en hundrað færri í SPK. Sameinaður sparisjóður Byrs og SPK er metinn á 45 milljarða króna. Sóknarsamruni, segja stjórnarfor- menn sparisjóðanna. Árdegi, félag í eigu Sverris Berg Steinarssonar, hefur keypt Baug Group út úr dönsku raftækjakeðj- unni Merlin. Eftir kaupin verður Árdegi eigandi 65 prósenta hlut- ar í félaginu og Milestone 35 pró- senta. Árið 2005 keyptu Árdegi, Baug- ur Group og Milestone Merlin. Þá hafði keðjan verið rekin með tapi um nokkurra ára skeið. Hafist var handa við að snúa við rekstrinum. „Nú erum við farin að sjá til lands í viðsnúningnum og því tímabært að fara að huga að meiri samlegð milli verslananna, sérstaklega í innkaupum og markaðssetningu,“ segir Sverrir. Hann fór því þess á leit við stjórnendur Baugs að kaupa hlut félagsins í raftækja- keðjunni. Kaupverð er ekki gefið upp. Árdegi og Milestone reka nú 48 verslanir í Danmörku og er hún önnur stærsta raftækjakeðj- an þar. „Við eigum töluverð færi eftir í Danmörku. Við ætlum því að halda áfram að vaxa og verða stærstir,“ segir Sverrir. Þá segir hann töluverða möguleika í útrás keðjunnar til annarra Norður- landa. Auk Merlin á og rekur Árdegi tíu BT-verslanir, fimm Skífu- verslanir, Sony Center, auk tísku- verslananna Nova Nova og Next. Í heild starfa hjá samstæðunni um átta hundruð starfsmenn. Árdegi kaupir hlut Baugs í Merlin Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.