Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 72

Fréttablaðið - 29.06.2007, Side 72
Þýðandi sem ég þekki sagði mér á dögunum frá bandarískum reyfara sem hann las og gerðist í olíuhreinsunarstöð. Hann taldi ólíklegt að hægt væri að snara henni yfir á íslensku; alltof mörg orð sem lutu að þessum iðnaði væri ekki að finna í okkar tungu- máli. Það myndi þó lagast ef reist yrði olíuhreinsunarstöð vestur á fjörðum og eftir aðeins örfá ár væri hægt að gefa reyfarann út í íslenskri þýðingu. Þetta er enn sem komið er skásta röksemdin ég hef heyrt fyrir olíuhreinsunar- stöð á Vestfjörðum. er fyrir satt að olíuhreinsun- arstöð myndi skaffa fimm hundr- uð manns atvinnu. Sú tala hljómar skiljanlega vel þegar hvert áfallið á fætur öðru dynur yfir Vestfirði. Slíkar fréttir eru reyndar ekki ný- lunda en þó hefur atvinnuleysi á Íslandi ávallt mælst minnst fyrir vestan. Vestfirðingar eru með öðrum orðum manna duglegastir við að finna sér vinnu. Fólksfækk- unin þar skýrist ekki af atvinnu- leysi. Ungt fólk fer að heiman, menntar sig og sækist eftir at- vinnutækifærum sem það finnur ekki í heimahögunum. Olíuhreins- unarstöð breytir því ekki. Hún skapar ekki afleidd störf, heldur afleit. olíuhreinsunar- stöðvarinnar er í grunninn að fjölga fólki á Vestfjörðum, ekki störfum. Sem segir að ef búa á til fimm hundruð störf þarf að flytja litlu færra fólk þangað til að sinna þeim. Í ljósi þess að at- vinnuleysi á Íslandi er minna en hollt þykir gefur auga leið að vinnuaflið kæmi frá útlöndum. Gott og vel. Ef við ætlum á annað borð að flytja 500 til landsins á einu bretti til að manna heila at- vinnugrein, virðist olíuhreinsun- arstöð ekkert sérstaklega nærtæk starfsemi. Sagt hefur verið: „Ein- hvers staðar þarf að hreinsa olíu.“ Vissulega. En einhvers staðar þarf líka að búa til tannkrem, regnhlíf- ar eða skóreimar. Vissuð þið að á sjöttu hverri sekúndu slitnar skó- reim einhvers staðar í heiminum? (Ég veit reyndar ekkert um það, en það hljómar sennilega). vera að þessi hroðalegu mannvirki sem olíuhreinsunar- stöðvar eru láta kerskála líta út eins og Guggenheim-safnið í sam- anburði. Það koma hins vegar á mig vöflur þegar menn nota það hróðugir sem röksemd með starf- seminni að Vestfirðingar gætu þá státað af öflugasta slökkvi- liði landsins. Svona ef ske kynni að faktorían spryngi í loft upp, eins og í Noregi fyrir skemmstu, nú eða ef draga þyrfti einn olíu- kláfinn af strandstað. er farið að fjúka í Vestfirðinga eftir að hafa verið látnir sitja á hakanum áratugum saman. Vestfirðir eru ekki einu sinni partur af hringveginum í kringum landið! Enda kannski óábyrgt að vísa ferðamönnum á landshluta þar sem stjórnvöld hafa trassað að uppfylla lágmarks- öryggi á vegum. Knýjandi aðstæð- ur gera olíuhreinsunarstöð samt sem áður ekki að fýsilegum kosti. Vond hugmynd verður ekki betri við að breytast í örþrifaráð. Olía á eldinn 800-5555 Heimsend ingarþjónu sta Bæklingur fylgir blaðinu í dag! – um öryggi og handhægar upplýsingar STÓRÚTSALAN HEFST Í DAG Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 50-80% AFSLÁTTUR OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 30/6 10 – 18 SUNNUD. 1/7 13 – 17

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.