Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 2
Valdimar, biður Jónas að
heilsa?
Fjárfestirinn Ingunn
Wernersdóttir hefur keypt eitt fal-
legasta húsið í Reykjavík, Esju-
berg, sem stendur á Þingholts-
stræti 29a.
Seljandi hússins er einkahlutafé-
lag norska listmálarans Odds Ner-
drum, sem á árinu 2002 keypti
húsið af félaginu Frumkvöðlaað-
stöðunni, sem var í eigu Guðjóns
Más Guðmundssonar sem kenndur
er við hugbúnaðarfyrirtækið OZ.
Nerdrum mun vera fluttur frá
Íslandi til býlis í firði í heimalandi
hans, Noregi.
Guðjón átti hæsta tilboðið þegar
Reykjavíkurborg auglýsti húsið til
sölu í tengslum við flutninga Borg-
arbókasafnsins í Grófina. Guðjón
keypti húsið í nóvember árið 2000
og sagðist mundu reka þar frum-
kvöðlasetur fyrir ungt fólk. Ekkert
varð úr þeim fyrirætlunum og við
söluna til Nerdrums aflétti borgin
öllum kvöðum og heimilaði að húsið
yrði nýtt sem íbúðarhúsnæði.
Guðjón greiddi 70 milljónir króna
fyrir húsið en seldi Nerdrum það
tæpum tveimur árum síðar á 100
milljónir króna.
Viðskiptin með Þingholtsstræti
29a eru enn ekki að fullu frágengin
og ekki fæst gefið upp hvað Ingunn
Wernersdóttir greiddi Odd Ner-
drum fyrir húsið en talið er víst að
það sé alls ekki undir 200 milljón-
um króna og sennilega mun hærra.
Nerdrum mun hafa endurnýjað
húsið að innan að nokkru leyti þann
tíma sem það var í hans eigu.
Ekki náðist í Ingunni Werners-
dóttur í gær. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins mun notkun
hússins enn ekki endanlega ákveð-
in.
Ingunn hefur sagst mundu fjár-
festa í listum og menningu. Fyrir
skemmstu keypti hún svokallað
Alliance-hús að Grandagarði sem
hún hyggst nýta undir listastarf-
semi. Um bæði þessi hús gildir að
ytra byrði þeirra er friðað.
Nerdrum selur Ingunni
Borgarbókasafnshúsið
Listmálarinn Odd Nerdrum er fluttur heim til Noregs og hefur selt milljarða-
mæringnum Ingunni Wernersdóttur húsið að Þingholtstræti 29a. Nerdrum
greiddi 100 milljónir fyrir húsið en söluverðið fæst ekki gefið upp.
„Við ætluðum að líta
á byssuna í fyrradag og sjá hvort
ekki væri hægt að létta þjáningun-
um af bæjarbúum en þá hafði
einhver annar orðið fyrri til og
byssan var á bak og burt,“ segir
Hörður Blöndal, hafnarstjóri á
Akureyri, en gasbyssu var stolið
af athafnasvæði hafnarinnar í
fyrradag.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að nokkrir bæjarbúar hefðu
kvartað undan hávaða frá
byssunni sem notuð var til að fæla
í burt fugla við höfnina. Hörð
grunar að þjófurinn hafi verið
búinn að fá sig fullsaddan á
hávaðanum og jafnvel verið svefn-
vana í þokkabót.
Svefnþjófi stolið
af hafnarbakka
Fjórar konur
slösuðust í fjallaskálanum
Sörlastöðum í Fnjóskadal laust
eftir miðnætti aðfaranótt fimmtu-
dagsins þegar gassprenging varð í
húsinu.
Gas lak úr gasskút sem skrúfað-
ur hafði verið af litlum prímus.
Kertalogi tendraði gasið og
blossaði upp eldur. Um tuttugu
konur voru inni í skálanum þegar
eldurinn kviknaði. Konurnar voru
í hestaferð á svæðinu.
Konurnar fjórar voru fluttar á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Meiðsli þeirra voru ekki mikil og
voru þær útskrifaðar af sjúkra-
húsinu síðar um nóttina.
Fjórar konur
slösuðust í eldi
Ekki er búið að ákveða
endanlega hvaða hlutverk
Byggðastofnun mun taka að sér í
mótvægisað-
gerðum
ríkisstjórnar-
innar vegna
skerðingar
aflaheimilda,
sem kynntar
voru í byrjun
mánaðarins.
„Við vorum á
fundi í fjár-
málaráðuneyt-
inu í gær og
menn eru að reyna að vanda sig,
en flýta sér á sama tíma,“ segir
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar.
Aðalsteinn segir nær alveg
óákveðið hvað stofnunin muni
taka að sér. „Það hefur verið talað
um styrki til afmarkaðra atvinnu-
þróunar- og nýsköpunarverkefna
og það er bara það sem verið er
að skoða,“ segir Aðalsteinn.
Óákveðið hver
verkefnin eru
Sparisjóður Kópavogs gerir athugasemdir við
hávaða frá Tívolíinu sem rekið er ofan við Smáralind
í sumar.
Fulltrúar sparisjóðsins vildu ekki koma í viðtal
vegna málsins en upplýstu þó að þeir væru að velta
fyrir sér hvort ekki þyrfti samþykki hjá nágrönnum
tívolísins vegna hávaðamengunar og hvort hávaðinn
fari ekki hreinlega yfir leyfileg mörk. Sparisjóður-
inn sendi bæjaryfirvöldum í Kópavogi bréf fyrir
rúmum tveimur vikum vegna ónæðisins frá tívolíinu.
Tívolíið hefur hingað til verið á planinu hjá
Smáralind en í ár var það fært yfir á malarplan á
milli Smáralindar og Hlíðasmára. Þar á milli er
aðeins ein gata yfir að sparisjóðnum. Starfsmönnum
sparisjóðsins þykir gnýrinn frá tívolíinu orðinn
yfirþyrmandi og opna helst ekki glugga. Hávær hljóð
berist frá búnaðinum sjálfum og tónlistinni sem og
skrækjandi börnum sem öskra upp yfir sig í
tækjunum. Þetta stöðuga ónæði upphefjist á
hverjum degi klukkan eitt.
Bæjarráð Kópavogs hefur falið bæjarlögmanni að
útbúa svar til sparisjóðsins en það hefur enn ekki
verið sent út.
Ungi maðurinn sem féll ofan
í Laxárgljúfur í Hrunamanna-
hreppi á miðvikudagskvöld er á
batavegi. Hátt í níutíu manns tóku
þátt í björgunaraðgerðum við afar
erfiðar aðstæður. Fjórar klukku-
stundir liðu frá því þyrlan kom á
staðinn og þar til maðurinn var
kominn um borð.
Maðurinn sem slasaðist var í
gönguferð ásamt þremur félögum
sínum en varð fyrir því óláni að
falla fram af brúninni og niður í
gljúfrið. Fallið var á bilinu 60 og
70 metrar eða nálægt því sem
samsvarar hæð Hallgrímskirkju-
turns. Félagi mannsins gekk nokk-
urn spöl þar til hann komst í síma-
samband og náði sambandi við
neyðarlínu sem kallaði út þyrlu,
sjúkrabíl og fjölmargar björgun-
arsveitir.
Jón Ingi Sigvaldason, talsmað-
ur Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, segir að allt í allt hafi um
níutíu manns tekið þátt í björgun-
araðgerðunum og að björgunar-
menn hafi unnið þrekvirki við að
ná manninum upp. „Það var erfitt
að komast að manninum og björg-
unarmenn og læknir sigu niður í
gljúfrið til hans og gerðu að sárum
hans þar.
Hann var síðan hífður upp á
brúnina og þaðan um borð í
þyrluna,“ segir Jón Ingi en TF-
GNÁ kom með manninn til
Reykjavíkur undir morgun.
Maðurinn gekkst undir aðgerð
á Landspítalanum og að sögn
læknis á gjörgæsludeild er líðan
hans stöðug.
Hrapaði tæplega sjötíu metra
Sextíu menn úr
öryggisliði Mahmoud Abbas,
forseta Palestínu, verða líklega
ákærðir fyrir að hafa misst
völdin á Gaza-ströndinni í hendur
Hamas-liða. Rannsóknarnefnd um
fall Gaza lauk störfum sínum í
gær og verður lokaskýrsla birt í
dag.
Einn af leiðtogum Fatah á
Gaza-ströndinni, Mohammed
Dahlan, sagði af sér sem þjóðar-
öryggisrágjafi í gær, að eigin
sögn vegna heilsuleysis. Heimild-
ir telja þó að Abbas hafi beðið
hann um að segja af sér vegna
ábyrgðar hans á ósigrinum fyrir
Hamas-liðum á Gaza-ströndinni.
Verða ákærðir
fyrir vanrækslu