Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 8
Hver leikur Jónas Hall-
grímsson í nýrri kvikmynd um
þjóðskáldið?
Hvað kallast heræfingarnar
sem verða haldnar hér á landi
í ágúst?
Hver er fjárfestingargeta
Kaupþings talin vera?
Bindindissamtökin I.O-
.G.T. hafa selt Galtalækjarskóg
Vætti ehf., sem er í eigu Karls og
Ingunnar Werner. Ástæðan er fjár-
hagsörðugleikar, en samtökin hafa
tapað stórfé á bindindismótinu í
Galtalæk undanfarin ár. Engin
hátíð verður í sumar.
„Mótið var aðalfjáröflunin okkar
en á seinni árum snerist það í and-
hverfu sína og kostaði okkur mik-
inn pening,“ segir Einar Hannes-
son, formaður svæðisráðs I.O.G.T.
„Eftir að stórhátíðirnar fóru inn í
þéttbýlið dró verulega úr aðsókn á
mótið. Það er bara búið að dreifa
þessum hátíðum of mikið.“
Hann segir súrt að þurfa að selja
skóginn eftir svo langan tíma en
samtökin hafa verið með starfsemi
þar í fjörutíu ár, síðan 1967. „Þetta
er mjög sorglegt, þarna hafa marg-
ir unnið mikið sjálfboðastarf og
glæsileg aðstaða verið byggð upp.
Fasteignirnar einar eru meira en
hundrað milljóna króna virði sam-
kvæmt brunabótamati.“ Hann vildi
ekki gefa upp söluverðið, en kaup-
samningurinn hljóðar upp á 84
hektara lands ásamt tjaldsvæði og
þjónustumiðstöð.
Varðandi önnur verkefni I.O.G.T.
þegar Galtalækjarskógur hefur
verið seldur segir Einar ekkert
ákveðið en ýmislegt komi til greina.
„Nú eru skuldirnar að baki og við
getum horft björtum augum fram
á veginn.“
Seldu Galtalækjarskóg í fjárkröggum
Ert þú með
Vegabréf N1?
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
1
8
9
0
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
„Við erum nýbúin að
fara í mál og það er nýbúið að
dæma að þetta sé ekki þjóðlenda,“
segir Ásta Sverrisdóttir, íbúi í
Skaftártungu og ein af þeim land-
eigendum sem leigt hafa Græna-
lónsfélaginu rétt til að veiða í
Grænalóni.
Í Fréttablaðinu í gær var fjall-
að um framkvæmdir við Grænal-
ón við Skeiðarárjökul. Lónið er í
Skaftárhreppi og á þjóðlendu.
Sagt var að sveitarstjórinn end-
urbyggði veiðikofa á þjóðlend-
unni og gekkst hann við því.
Í kjölfar umfjöllunarinnar
hefur verið bent á að annað
Grænalón er í þessum sama
hreppi. Það er lítið veiðivatn í
Jökuldölum, nær Landmanna-
laugum. Þetta er lónið þar sem
Grænalónsfélag sveitarstjórans í
Mýrdalshreppi, Sveins Pálssonar,
endurbyggir veiðihúsið.
„Þeir eru ekki undanþegnir
skipulags- og byggingarlögum,
en þetta er ekki á þjóðlendu,“
segir Ásta. Hún telur líklegt að
sveitarstjórinn hafi ekki heyrt af
því, að dæmt hafi verið í málinu,
enda búi hann ekki í hreppnum.
Ríkið fékk ekki Grænalónið
Vatnajökull
Mýrdals-
jökull
Vel hefur tekist til með reykinga-
bannið, að mati heilbrigðiseftirlitsins og betur en á
horfðist, að mati Kormáks Geirharðssonar og Ólafs
S. Ólafssonar veitingamanna.
Hvorugum þeirra var þó kynnt fyllilega hver
færi með eftirlit með banninu né hverjar sektir
kunni að verða við brotum á því.
Við eftirgrennslan kom í ljós að eftirlitið er ekki á
könnu lögreglunnar, heldur Heilbrigðiseftirlitsins
og Vinnueftirlitsins, hvað starfsmenn veitingastaða
varðar.
Gunnar Kristinsson, heilbrigðisfulltrúi hjá
Reykjavíkurborg, segir að stofnunin hafi beint
tilmælum sínum til veitingamanna um að þeir virði
bannið og þeir hafi brugðist vel við því.
„Það hefur engin kvörtun borist vegna brota á
banninu, né vegna aukins hávaða reykingamanna á
götum úti,“ segir hann. Einungis einu sinni hafi
verið kvartað vegna sígarettustubba og rusls.
Ekki hefur þótt ástæða til að gera eftirlitsmenn út
af örkinni á kvöldin og ekki hefur verið ákveðið
hverjar yrðu sektir við brotum.
Fari svo að vertar verði uppvísir að því að brjóta
lögin væri ein tegund sektar að senda eftirlitsaðila
á staðinn, til dæmis á hverju kvöldi. Veitingamenn
bæru kostnaðinn af heimsókninni, en hann er
minnst fimmtán þúsund krónur í hvert sinn. „Þá
hæfist ákveðið þvingunarferli sem gæti farið út í að
staðurinn missti rekstrarleyfið,“ segir Gunnar.
Reykingabann tókst
betur en á horfðist
Vertar segja reykingabannið almennt séð hafa tekist betur en þeir bjuggust við.
Veltan var góð í júlí. Þeir kvíða þó vetrinum og útiloka ekki málarekstur svo
reykherbergi verði leyfð. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki undan neinu að kvarta.