Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 23
Veitingastaðurinn Gló verður opnaður í Listhús-
inu við Laugardal um helgina, en þar er boðið
upp á lífrænt hráefni.
„Við munum leggja mikið upp úr lífrænu hráefni og
komum til með að bjóða upp á ferska safa, hveitigras
og súpur frá Örlygi Ólafssyni hjá Súpubarnum,“
segir Guðlaug Pétursdóttir, eigandi og rekstrarstjóri
Gló, sem einnig rekur Rope Yoga-setrið í sama hús-
næði ásamt eiginmanni sínum, Guðna Gunnarssyni.
Guðlaug segir hugmyndina að staðnum hafa kvikn-
að þegar þau hjónin fluttu heim til Íslands eftir
fimmtán ára búsetu í Los Angeles, þar sem Guðni
lagði grunninn að rope yoga, sem er nú útbreitt um
allan heim. Þeim fannst vanta veitingastað sem byði
upp á mat úr lífrænum hráefnum, sem væri jafn-
framt hægt að taka heim, og þannig varð Gló til.
„Okkur langaði líka til að opna stað með mat sem
fólk býr að öllu jöfnu ekki til heima í eldhúsi og mikil
alúð og kærleikur er lagður í,“ bendir Guðlaug á. „Við
gerum þetta út frá hjartanu og höfum fengið til liðs
við okkur brasilíska listakokkinn Inacio Pacas da
Silva Filko, sem er á sömu bylgjulengd.“
Að sögn Guðlaugar verður áhersla lögð á grænmet-
isrétti, fisk og kjöt að einhverju marki, rétt dagsins,
ásamt tveimur súpum til að velja á milli, salat, heima-
bakað spelt-brauð, hummus og lífrænt chutney.
Auk þess sem boðið verður upp á alls kyns girni-
lega rétti á Gló er viðbúið að viðskiptavinum eigi
eftir að finnast staðurinn glæsilegur umhorfs, þar
sem hann var hannaður af Guðlaugu Jónsdóttur arki-
tekt. Guðlaug hefur starfað hjá Dodd Mitchell Design
í Los Angeles og átt mikilli velgengni að fagna. Á hún
meðal annars heiðurinn að endurhönnun Rosewelt-
hótelsins í Hollywood, hönnun Hótels Þingholts við
Þingholtsstræti og Rope Yoga-setursins.
Ákveðin tenging verður því á milli Gló og Rope
Yoga-setursins, auk þess sem Guðlaug segir tilval-
ið að fá sér hollan morgunmat eftir jógatíma í
vetur þegar veitingastaðurinn verður opnaður
klukkan hálfátta.
Hæfilegur skammtur
af ást og kærleik
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið