Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 28

Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 28
BLS. 2 | sirkus | 27. JÚLÍ 2007 Heyrst hefur GUNNLAUGUR ÓLAFSSON, EINN AF LEIKMÖNNUM NÖRDANNA, STARFAR SEM ÖRYGGISVÖRÐUR Í KRINGLUNNI. HANN TÓK Á HONUM STÓRA SÍNUM FYRIR G unnlaugur Ólafsson lenti í kröppum dansi í Kringlunni fyrir skömmu þegar hann þurfti að vísa mótmælendum Saving Iceland-hópsins út fyrir hússins dyr fyrir ólæti. Gunnlaugur, sem starfar sem öryggisvörður í Kringlunni, er einn af liðsmönnum FC Nörd sem slógu eftirminnilega í gegn á sjón- varpsstöðinni Sýn í fyrra og gerðu gott betur í ár þegar þeir völtuðu yfir FC Z, nördalið Svíþjóðar, í opnunar- leiknum á Landsmóti ungmennafé- laganna. Gunnlaugur sýndi mikla ákveðni og þrautseigju þegar hann átti við mótmælendurna. Reyndi meðal ann- ars að koma í veg fyrir að mótmælin væru mynduð og hrópaði til mót- mælenda setningar á borð við: „Stop filming!“, „This is private property! You have no right to be here!“ og „You will have to leave now!“ Gunnlaugi tókst ágætlega til eins og myndirnar hér til hliðar sýna. Gunnlaugur gat vegna starfs síns ekki tjáð sig um atvikið eða starfið sjálft. Sirkus leitað því til Loga Ólafs- sonar sem þekkir vel til Gunnlaugs enda er Logi þjálfari Nördanna. „Gunnlaugur er ákveðinn drengur og stendur sig vel í þessu starfi. Í Nör- daþættinum sem við gerðum í kring- um leikinn á móti Svíum spurði ég hann, fyrir framan myndavélina, hvort hann hefði orðið var við ein- hverja frægð vegna þátttöku sinnar í þáttunum. Hann sagði svo vera og viðurkenndi það meðal annars að hann hefði verið beðinn um eigin- handaráritanir af þjófunum sem hann stóð að verki,“ segir Logi hlæj- andi. En hvernig skyldi þjálfarinn lýsa þessum harðduglega og ákveðna dreng? „Gunnlaugur er að stórum hluta alinn upp í Noregi og er mikið snyrtimenni. Stundum er hann klæddur eins og hann sé rifinn út úr auglýsingum frá Dressman. Hann var til dæmis ekki hrifinn af því að fara í make-over þáttinn hjá okkur þar sem tískufrík völdu föt á hann,“ segir Logi. „Gunnlaugur er mikill sjálfstæðismaður og vill svolítið vera þannig í útliti. Hann er annars vænn piltur og skemmtilegur. Mér þótti gaman að sjá hann í sjónvarpinu og hann sýndi mikla röggsemi þegar hann bað fólkið að yfirgefa bygging- una. Sagði meðal annars að þetta væri „private property“,“ segir Logi og skellir upp úr. Meðal þess sem Gunnlaugur gekk í gegnum í sjónvarpsþáttunum um Nördana var að bregða sér í líki líf- varðar sem þurfti að snúa niður meintan óþokka. „Við fengum Eirík Beck sem rekur lífvarðafyrirtæki til að hjálpa okkur og Gunnlaugur fékk það verkefni að snúa þrjótinn niður. Ég sá það greinilega á öllu hans yfir- bragði í sjónvarpinu að hann hefur lært mikið af þeim þætti. Ég legg til að hann fái kauphækkun sem gæslu- maður í Kringlunni,“ segir Logi Ólafs- son, þjálfari Nördanna. Nörd í kröppum dansi ALLT UNDIR STJÓRN Gunnlaugur Ólafsson hafði fulla stjórn á mótmælendum og sýndi hvers hann er megnugur. MYNDIR/GABRIE Útgáfufélag 365 prentmiðlar Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm. Ritstjórn Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is, Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@frettabladid.is Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir, kristina@frettabladid.is, Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Rvk, sími 550 5000 Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir 550 5864 gretakaren@frett.is sirkus Simbi í siglingu Simbi klippari, oft kenndur við Jóa og félaga, og Ingibjörg Pálmadóttir, unnusta Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eru góðir vinir. Vinátta þeirra er víst svo góð að Simbi siglir nú um strendur Suður- Frakklands í glæsilegri snekkju ásamt þeim hjónum og fimm öðrum gestum. Glamúrinn er allsráðandi um borð í snekkjunni, svona eins og oftast þegar þau hjónakorn eiga hlut að máli, og hermir sagan að gestirnir séu átta en þjónustufólkið sextán talsins. Kalli í knattspyrnu Lítið hefur farið fyrir Idol-stjörnunni Kalla Bjarna síðan hann var tekinn með kókaín í Leifsstöð fyrir nokkru. Kalli Bjarni situr nú inni á Litla-Hrauni og þykir öðrum föngum til fyrirmyndar. Kalli lék knattspyrnuleik með Hrottunum, knattspyrnufélagi fanga á Litla-Hrauni, síðastliðinn sunnudag og þótti standa sig nokkuð vel. Hann klúðraði að vísu nokkrum dauðafærum en það virtist ekki fara fyrir brjóstið á erlendum samföng- um hans sem studdu við bakið á Hrottunum því þeir kölluðu: „It´s alright. He´s a great singer.“ Barinn í ruglið Arnar Þór Gíslason og félagar sem standa að Café Oliver hafa selt hlut sinn í Barnum við Laugaveg og hommastaðn- um Q-bar. Kaupendur eru Ragnar nokkur úr Hafnarfirði og Baddi sem áður var kenndur við Rugl.is. Ekki er vitað til þess að þeir félagar hafi áður komið að veitingabransanum en þeir hafa hins vegar verið tíðir gestir á slíkum stöðum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.