Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 30
Ari Magnússon, einn heitasti tísku-
og auglýsingaljósmyndari landsins,
hefur keypt tvær íbúðir við Ásvalla-
götu 24 í Reykjavík. Íbúðirnar, sem
eru hæð og ris, eru tæpir tvö hundruð
fermetrar að flatarmáli en auk þess
fylgir 27 fermetra bílskúr með.
Ari vildi ekki tjá sig um íbúðakaup-
in þegar Sirkus hafði samband við
hann en samkvæmt heimildum blaðs-
ins er kaupverðið um 60 milljónir
króna.
Ásvallagatan, sem og aðrar götur í
gamla Vesturbænum, eru einn eftir-
sóttasti staður höfuðborgarsvæðisins
og því er fermetrinn dýr eftir því. Ari
reiðir fram rúmar 280 þúsund krónur
fyrir fermetrann og þá er bílskúrinn
innifalinn. Ari Magg lætur verðið þó
ekki aftra sér frá kaupunum enda er
nóg að gera hjá honum sem eftirsótt-
asti auglýsinga- og tískuljósmyndari
landsins.
Íbúðirnar sem Ari keypti eru frá árinu
1947. Samkvæmt heimildum Sirkuss
ætlar hann að taka íbúðirnar í gegn
enda margrómaður fagurkeri. Ari hefur
meðal annars komið sér upp glæsilegu
ljósmyndastúdíói á Hverfisgötu, ásamt
Magnúsi föður sínum og Silju systur
sinni, sem þau starfrækja undir nafninu
Magg. Silja mun að vísu kveðja fjöl-
skyldufyrirtækið innan skamms þar
sem hún er á leið í nám við virtan ljós-
myndaskóla í New York. Ari hyggst búa í
annarri íbúðinni en leigja hina út.
Í sama húsi býr annar fagurkeri,
Börkur Arnarson, sem oft hefur verið
kenndur við Gallerí i8. Meðal
nágranna Ara og Barkar á Ásvallagöt-
unni má nefna Kristján Guy Burgess,
fyrrverandi blaðamann og fréttastjó-
ra á DV, sem og Skafta Jónsson og son
hans Jón. Skafti starfar í Malaví á
vegum Sameinuðu þjóðanna og er
bróðir Gests Jónssonar lögmanns.
ARI MAGNÚSSON HEFUR KEYPT SÉR GLÆSILEGA EIGN Á
ÁSVALLAGÖTU 24
Kaupir hæð og ris
fyrir 60 milljónir
GLÆSILEGT HÚS Íbúðirnar sem Ari keypti eru í þessu stórglæsilega húsi við Ásvallagötu.
ARI MAGG Ljósmyndarinn stækkar nú við
sig en hann hefur látið fara vel um sig í
miðbæ Reykjavíkur síðustu ár.
„Ég keypti mér þennan jeppa fyrir
mánuði síðan – fékk hann rétt áður
en ég fór í sumarfrí,“ segir veðurfrétta-
maðurinn Siggi stormur, sem hefur
keypt sér glænýjan Discovery-jeppa.
Og það engin smásmíði. Bíllinn, sem
er þriðja kynslóð Discovery-jeppa, er
tvö hundruð hestafla lúxustæki af
bestu gerð sem kostar um sjö milljón-
ir króna samkvæmt verðlista.
„Ég er mikill bíladellukall. Var að
skipta út ársgömlum Patrol fyrir
þennan. Þetta er skemmtilegasti jeppi
sem ég hef átt og samt hef ég átt fimm-
tíu bíla um ævina,“ segir Siggi sem vill
alltaf vera á jeppa. „Mér finnst ég vera
bíllaus ef ég er á fólksbíl. Svo finnst
mér óskaplega gott að komast út fyrir
malbikið en ég ber virðingu fyrir
umhverfinu. Fer bara leyfilega slóða,“
segir stormurinn sem hefur átt jeppa
síðan hann var sautján ára, eða í tut-
tugu og þrjú ár. „Ég vil bara original
jeppa, ekki breytta. Ég geri samt mikl-
ar kröfur til þeirra um þægindi og
akstureiginleika. Þessi bíll uppfyllir
þær kröfur og er ógeðslega góður.“
Stormurinn þeysist um
á sjö milljóna króna
SIGGI STORMUR OG JEPPINN GÓÐI Siggi
er hæstánægður með nýja jeppann sem
er hlaðinn lúxusbúnaði.
Ýmsir Í brekkunni: Eyjalögin 2cd
KK og Maggi Eiríks Langferðalög
Ýmsir 100 Íslensk 80’s lög
Hvanndalsbræður Skást of
Ljótu Hálfvitarnir Ljótu Hálfvitarnir
Amy Winehouse Back To Black
Mika Life in Cartoon Motion
Garðar T. Cortes Cortes 2007
Ýmsir Number 1 3CD
Jógvan Jógvan
Ýmsir Óskalög Sjómanna (2CD)
Gus Gus Forever
Ýmsir Gleðilegt sumar
Smashing Pumpkins Zeitgeist
Lay Low Please Don’t Hate Me
White Stripes Icky Thump
Björk Volta
Ýmsir Heimilistónar 2c
Chemical Brothers We Are The Night
Tríó B. Thor & A. Gylfa Vorvísur
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Amy Winehouse hin grindhoraða selur
plötuna sína Back To Black gríðarlega vel
þessa dagana. Hörku plata með fanta fínni
söngkonu.
Það fer að líða að því að Gus Gus fari að
verða aldursforsetar Skífulistans, búin að
vera ansi lengi á Topp 20 sem verður að
þykja nokkuð gott. Frábær plata.
Forever
Amy Winehouse
Nældu þér í eintak
Li
st
in
n
gi
ld
ir
vi
ku
na
2
6.
jú
ní
-
2
. á
gú
st
2
00
7
VINSÆLASTA TÓNLISTIN
N
A Aftur á lista N Nýtt á lista Lækka frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í stað
N
N
N
A
N
A
Verið velkomin
Rýmingarsala
10 til 50%
afsláttur af öllum
vörum í búðinni, nýjum og eldri
Ótrúlegt úrval af fallegum gjafavörum
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGI 86-94, S: 511-2007