Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 36
27. JÚLÍ 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið ferðahelgin
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er fæddur og
uppalinn í Vestmannaeyjum. Eins og sönnum eyjapeyja sæmir
fer hann á Þjóðhátíð nú í ár. „Þjóðhátíð var fastur liður á mínum
yngri árum alveg fram að unglingsárunum,“ segir Árni. „Svo
varð eitthvað hlé á þessu eftir að ég flutti frá Eyjum tólf ára
gamall en ég stefni sem sagt þangað nú í ár.“
Ef marka má þá hörðu baráttu er Árni hélt uppi gegn áfengis-
djöflinum á sínum yngri árum þá mega þeir sem ganga of hratt
um gleðinnar dyr vara sig. „Þegar ég var tíu ára polli blöskraði
mér og félaga mínum drykkjuskapurinn á Þjóðhátíð. Við fórum
eldsnemma um morgun á svæðið og sáum þá drukkna menn liggj-
andi í hlíðum Dalsfjallsins með flöskurnar sér við hlið,“ segir
Árni og glottir. „Til að forða þeim frá frekari drykkju helltum við
niður áfenginu og migum í flöskurnar.“
Þarna töldu drengirnir sig framkvæma hina mestu samfélags-
þjónustu. Annað kom á daginn og auðvitað fengu þeir orð í eyra
fyrir uppátækið. „Ég ráðlegg mönnum að hafa tappann vel fastan
á flöskunum,“ segir Árni og hlær. „Bara ef einhver skyldi vera að
gera þetta ennþá. Annars hef ég lagt af þessa iðju svo fólk þarf
ekki að óttast mig á Þjóðhátíð.“
Pissaði í brennivíns-
flöskur á Þjóðhátíð
HVÍTLAUKSHUMAR Á GRILLIÐ Þeir sem elska humar
þekkja líklega hve erfitt getur verið að borða hann án þess að verða
subbulegur á fingrunum. Með auðveldum hætti má gera humar-
máltíðina að ánægjulegri og hreinlegri athöfn.
Byrjað er á að taka humarhalann og klípa af honum stélið
og hreinsa þar með um leið svörtu röndina sem liggur með-
fram skelinni.
Næst eru tekin upp góð skæri og klippt sínum hvorum
megin við magann svo kjötið komi í ljós. Hölunum er
síðan raðað á álbakka með skelina niður og kjötið upp.
Smjör er brætt og hvítlauksrif eru kreist ofan í það. Hve
mörg fer eftir humarmagninu. Með pensli eða skeið er
smjörinu og hvítlauknum dreift yfir humarinn.
Þessu er síðan skellt á grillið í um tíu mínútur eða þar til
humarinn er orðinn fallega hvítur. Með því að matreiða
humarinn með þessum hætti er vel hægt að borða
hann með hníf og gaffli.
Árni Sigfússon
reyndi tíu ára
gamall að bjarga
dauðadrukknum
þjóðhátíðar-
gestum frá meiri
brennivíns-
drykkju með
afar nýstárlegri
aðferð.
Gönguhópurinn Krummafætur brá sér í
skemmtilega ferð á dögunum út í Flatey á
Skjálfanda. Birgir Ottósson var einn ferðalang-
anna og segir það mikla upplifun að koma út
í eyjuna þar sem er eins og tíminn hafi staðið í
stað.
„Þetta var mjög skemmtilegur dagur og mikil upp-
lifun fyrir okkur, borgarbörnin, að koma í svona
eyju. Þetta var eins og að vera kippt út úr nútím-
anum og inn í umhverfi sem hefur staðið í stað í
tugi ára. Það er ekki stress þarna og hjartað slær
rólega,“ segir Birgir en honum fannst þessi upplif-
un eitt af því eftirminnilegasta úr ferðinni. „Síðan
var líka mjög eftirminnileg stund í kirkjunni en þar
fengum við góðfúslegt leyfi til að syngja einn sálm
og ég spilaði undir á gamalt fótstigið orgel,“ bætir
hann við.
Birgir var einstaklega ánægður með leiðsögnina
sem hópurinn fékk um eyjuna. „Leiðsögumaðurinn
var Guðmundur A. Hólmgeirsson sem er innfædd-
ur þarna og þekkir þetta allt saman mjög vel,“ segir
Birgir sem hreifst mikið af eyjunni. „Það er gaman
að sjá að þarna er verið að gera upp gömul hús en
engu öðru bætt við. Það eru engar hugmyndir um að
breyta neinu þarna og það vorum við mjög ánægð
með enda hefur það mikið varðveislugildi að halda
öllu eins og það var.“
Birgir segir eyjuna mjög flatlenda, eins og nafnið
gefur til kynna, og að mikið og fjölbreytt fuglalíf sé
í eyjunni enda hafi minkurinn ekki komist þangað.
„Það tekur um hálftíma að sigla út í Flatey frá Húsa-
vík en það eru engar skipulagðar ferðir þangað. Við
sungum að sjálfsögðu gamla sjóaraslagara báðar
leiðir við harmóníkuundirleik og þótti það mjög við-
eigandi,“ segir Birgir hæstánægður með upplifun
sína af Flateyjarferðinni. sigridurh@frettabladid.is
Tíminn stendur í stað
Sími: 566 6303 - www.alafoss.is
Lopi Lopapeysur
Húfur Vettlingar
Sokkar Ullarnærföt
Treflar Ullarteppi
Síðan 1896
Laugavegur 1
Re
yk
ja
ví
k
Álafossvegur
23
M
os
fe
lls
bæ
r
LÁTTU ÞÉR
EKKI VERÐA
KALT!
H
ön
nu
n:
s
já
ld
ri
ð
L
jó
sm
: H
al
lg
rí
m
ur
K
ri
st
in
ss
on
Birgir segir það hafa verið mikla upplifun að koma í Flatey
enda sé eins og tíminn hafi staðið í stað í tugi ára.
Eyjan er flatlend og falleg og segir Birgir að fuglalífið þar sé einkar mikið og fjölbreytt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hópurinn var svo heppinn að hafa harmóníkuleikara um borð í
bátnum svo gömlu sjóaralögin voru sungin hástöfum meðan á
hálftíma siglingunni til og frá eyjunni stóð.