Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 58
BLS. 12 | sirkus | 27. JÚLÍ 2007
„Þessi bisness er voðalegt hark.
Maður þarf alltaf að vera á
tánum,“ segir Heiða Eiríksdóttir
fatahönnuður sem er að gefa frá
sér sína aðra línu undir merkj-
um Orginal Clothing. Sumarlína
Heiðu hefur verið til sölu í Verk-
smiðjunni á Skólavörðustígnum
og í verslunum í Finnlandi,
Þýskalandi og Danmörku en
vetrarlínan fer einnig í Bláa
lónið og Kraum í Aðalstrætinu
auk þess sem Heiða hefur ráðist
inn í Bretland og Belgíu. Heiða
lærði fatahönnun í Danmörku
þar sem hún útskrifaðist árið
2005. Hún hefur því náð langt á
þeim tveimur árum sem hún
hefur starfað sem fatahönnuður.
Hún segir erfitt að lifa af hönn-
uninni en að þetta sé allt í rétta
átt. „Ég er enn þá að koma mér á
framfæri og er búin að vera mjög
dugleg enda fór ég alveg á fullt
strax eftir útskriftina. Þetta er
búinn að vera töff tími en er allt
að komast í réttan farveg. Nú veit
ég hvar ég finn hlutina og þarf til
dæmis ekki að eyða mörgum
dögum í leit að tölum heldur veit
hvar ég fæ þær,“ segir Heiða sem
er þriggja barna móðir svo það
er í nógu að snúast. Hún segir oft
snúið að blanda saman móður-
hlutverkinu við starfsferilinn en
að sé viljinn fyrir hendi sé allt
hægt. „Þetta er oft mikið mál og
sérstaklega þar sem maðurinn
minn er einnig með sjálfstæðan
rekstur. Þetta snýst mikið um
skipulagningu og mikla vinnu og
svo get ég unnið mikið heima. Ég
er á leið á mína aðra sýningu úti
og hef farið í nokkrar söluferðir
og hef þá tekið minnsta barnið
með mér. Það er ekkert sem
stoppar mig.“ Aðspurð um ráð
handa konum sem vilji starta
sínum eigin bisness segir hún
um að gera að láta slag standa.
„Við verðum bara að vera trúar
okkar sannfæringu, ef við ætlum
okkur eitthvað tekst það. Það
tekur allt tíma svo við megum
ekki gefast upp. Að mínu mati er
líka mikilvægt að eyða pening-
um í markaðssetningu því hún
skilar sér. Ég valdi allavega þá
leið því mér finnst hún trúverð-
ugri.“
Heiða segist ekki horfa upp til
neinna ákveðinna fatahönnuða.
Áhrifavaldarnir séu margir og
komi héðan og þaðan. Vetrarlín-
una segir hún bæði fína og grófa
með pínu dúkkulísufönki en
samt töffaralega. „Þessi lína er
fyrir konur á besta aldri,“ segir
hún brosandi og bætir við að erf-
itt sé að flokka konur eftir aldri.
„Þetta er svo breytt, margar eldri
konur eru svo unglegar og marg-
ar þeirra yngri ellilegar, aldur er
afstæður.“ indiana@frettabladid.is
HEIÐA EIRÍKSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR ER TILBÚIN MEÐ VETRARLÍNU SÍNA. HEIÐA ER ÞRIGGJA BARNA
MÓÐIR OG SEGIR AÐ ÞÓTT OFT SÉ ERFITT AÐ BLANDA MÓÐURHLUTVERKINU VIÐ STARFSFERILINN SÉ
ALLT HÆGT EF VILJINN ER FYRIR HENDI.
Það er ekkert sem stoppar mig
HEIÐA EIRÍKSDÓTTIR „Við verðum bara að
vera trúar okkar sannfæringu, ef við
ætlum okkur eitthvað tekst það. Það
tekur allt tíma svo við megum ekki
gefast upp.“ MYND / ANTON
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, eigandi Ice
Model Management, hefur tekið við
umboðinu fyrir Hawaiian Tropic
keppnina í Svíþjóð. Eins og kunnugt
er fer Ásdís Rán einnig með umboðið
fyrir Hawaiian Tropic hér á landi.
„Ég ætla að leggja Svíþjóð undir
mig,“ sagði Ásdís Rán hlæjandi þegar
Sirkus sló á þráðinn til hennar. „Þetta
er skemmtilegt tækifæri fyrir mig og
gaman að glíma við meðan ég er
hérna úti í Svíþjóð. Þessi keppni er
rosalega fræg úti í heimi en hefur
kannski ekki enn náð að verða jafn
fræg á Íslandi.“
Ásdís Rán hefur verið með annan
fótinn í Svíþjóð undanfarna mánuði
þar sem eiginmaður hennar, Garðar
B. Gunnlaugsson, leikur knattspyrnu
með sænska liðinu Nörrköping. Eig-
endur Hawaiian Tropic fréttu af því
og báðu Ásdísi því að taka við umboð-
inu í Svíþjóð. „Mörg af frægustu bikin-
ímódelum heims koma úr þessari
keppni,“ segir Ásdís Rán sem mun
væntanlega eiga úr vöndu að ráða
þegar að sjálfri keppninni kemur enda
koma mörg frægustu bikinímódel
heims frá Svíþjóð, þar á meðal Ursula
Anderss, sem lék Honey Ryder í James
Bond myndinni Dr. No, og Victoria
Silverstedt. „Svíar hafa alltaf átt mjög
sterka keppendur í Hawaiian Tropic
og Victoria Silverstedt er algjört íkon
hér úti,“ segir Ásdís Rán en keppnin í
Svíþjóð fer fram í byrjun næsta árs. Þá
er Ásdís Rán einnig byrjuð að undir-
búa keppnina hér heima sem fer einn-
ig fram í byrjun næsta árs. „Ég er byrj-
uð að leita að stelpum í keppnina á
Íslandi og þær sem halda að þær hafi
það sem þarf geta farið inn á model.is
og sent mér tölvupóst,“ segir Ásdís
Rán Gunnarsdóttir.
Leitar að næstu Ursulu Andress
URSULA ANDRESS Frægasta bikinísena
kvikmyndanna, úr James Bond myndinni
Dr. No. Ursula sló í gegn í þessu atriði
en hún er einmitt sænsk.
„Við erum nú bara að reyna að búa til
eitthvað nýtt til að vera ekki alltaf með
þennan sama þurra texta,” segir Ingi-
mar Sigurðsson, eigandi Nýju bílahall-
arinnar, sem hefur farið heldur óvenju-
lega leið til að auglýsa bílana sem
hann hefur til sölu. Í Allt, fylgiblaði
Fréttablaðsins, í gær mátti sjá auglýs-
ingu frá Nýju bílahöllinni. Þar var
meðal annars auglýstur splunkunýr
Range Rover Supercharger á tæpar
sautján milljónir króna og Porsche
Cayenne Turbo á tæpar 15 milljónir.
Bílarnir eru báðir hlaðnir aukabúnaði
en í auglýsingu Nýju bílahallarinnar
eru þeir sagði vera „með öllu bullinu“.
Að sögn Ingimars er „bullið“ slang-
uryrði sem þeir félagarnir á bílasöl-
unni nota yfir aukabúnað. „Við ákváð-
um nú bara að skella því í
auglýsinguna,“ segir Ingimar hlæjandi
sem auk þess reynir að höfða til þeirra
sem seldu hlutabréf sín í Actavis í
fyrradag með því að óska þeim til
hamingju með söluna. Ingimar segist
þó ekki hafa orðið var við að fyrrum
hluthafar Actavis hafi komið til hans.
„Þeir seldu bréfin nú bara á miðviku-
daginn. En það er viðbúið að eitthvað
af þessum peningum fari aftur í neyslu
og þar á meðal í bíla. Einhvern tímann
verður fólk að gera sér glaðan dag,“
segir Ingimar sem er með fleiri hug-
myndir að auglýsingum í pokahorn-
inu. „Við vorum að spá í að kaupa TF-
SIF og setja hana á þakið með skilti
sem á stæði: „Við björgum bílamálun-
um fyrir þig”.”
Auglýsa margra millj-
óna króna bíla með
FULLUR AF BULLI Ingimar Sigurðsson í Nýju Bílahöllinni stendur hér við Range
Roverinn sem er fullur af bulli.