Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 67
Mér var bent á grein í Fréttablaðinu 16. júlí
síðastliðinn (bls. 18), sem
bar yfirskriftina „Við-
heldur fáfræði kristn-
inni?“
Ég ætla ekki að mæla
því bót að menn verji eða
vinni að framgangi mál-
staðar með því að forðast
tilteknar staðreyndir, eða með því
að lifa gegn eigin sannfæringu.
Enginn ætti að predika það sem
hann trúir ekki innst inni.
Þess finnast dæmi að fáfræði
hafi viðhaldið kristni. Ég er hins
vegar ósammála því að svo sé enn
í dag fyrir hugsandi fólk sem
kynnir sér málið. Það þarf einnig
að hafa í huga að rök með blekk-
ingum merkja ekki endilega að
það sem er rökstutt sé rangt.
Steindór vitnar í þrjár bækur eftir
Bart D. Ehrman. 28 mars 2006 áttu
sér stað rökræður á milli Ehrmans
og Williams Lane Craig um spurn-
inguna „Eru sagnfræðileg rök
fyrir upprisu Jesú?“ Handrit af
rökræðunum má finna á http://
www.holycross.edu/departments/
crec/website/resurrdebate.htm.
Það sem raunverulega er tekist
á um í rökræðum Ehrmans og Cra-
igs er spurningin um tilvist Guðs.
Þeir sem afneita tilvist Guðs geta
ekki samþykkt kraftaverk sem
útskýringu á sögulegum atburði.
Þegar Ehrman segir að engin
sagnfræðileg rök séu til um upp-
risuna, er hann í raun að segja að
upprisan sé ekki besta skýringin á
þeim ummerkjum (e. evidence)
sem við höfum, en ekki að það séu
engin ummerki. Ehrman afneitar
tilvist Guðs (eða efast stórlega) og
getur því ekki samþykkt krafta-
verk sem sögulegan atburð. Nið-
urstaða Ehrmans er því sú að það
séu engin söguleg rök fyrir upp-
risu Jesú.
A.m.k. fjögur sagnfræðileg rök
blasa hins vegar við þeim sem
samþykkir tilvist Guðs, nefnilega
(1) greftrun Jesú, (2) tóm gröf, (3)
Jesú birtist lærisveinum sínum
upprisinn og loks (4) útskýring á
sannfæringu lærisveina Jesú um
upprisuna.
Steindór vitnar í orð Ehrmans um
að Jesús hafi verið heimsendaspá-
maður og því hafi Hann ekkert
kært sig um hefðbundin fjöl-
skyldugildi og að alla síðustu öld
hafi þetta verið sú mynd af Jesú
sem meirihluti fræðimanna
aðhylltist.
Jesús sagði fyrir um endi þess
heims sem við lifum í nú og
umbreytingu yfir í annarsskonar
heim. Hann er því vissu-
lega „heimsendaspámað-
ur“ að mínu viti. Hvort
Hann kærði sig ekkert
um hefðbundin fjöl-
skyldugildi fer bæði
eftir því hvernig við
skiljum boðskap Jesú og
svo því hvað við flokkum
sem hefðbundin fjöl-
skyldugildi.
Guðleysingi spyr Guð
vitaskuld ekki að því
hvaða fjölskyldugildi
Guð hefur heldur leitar annað.
Upphafspunktur guðleysingjans
er ekki hjá Guði.
Sá sem raunverulega trúir á til-
vist Guðs skilur hins vegar að skil-
greining á góðum fjölskyldugild-
um er ekki að finna í eigin ranni
heldur hjá Guði, sem í upphafi
hannaði bæði heiminn, hjónaband-
ið og fjölskylduna. Kristinn maður
reynir því að skilja fjölskyldugildi
Guðs eftir bestu getu, að gera
Guðs gildi að sínum eigin.
Það er því við því að búast að
ókristnir menn álíti Jesú hafa
kært sig kollóttan um það sem
þeir kalla hefðbundin fjölskyldu-
gildi. Ef fjölskyldulíf fræðimanna
eins og Paul Tillich bar að ein-
hverju leyti vitni um hvað þeir
álitu hefðbundin fjölskyldugildi
er gott að þeir sáu Jesú ekki undir-
strika þau.
Þó að meirihluti fræðimanna sé
á tiltekinni skoðun sannar það
ekki að þeir hafi rétt fyrir sér eins
og Ehrman bendir sjálfur á í rök-
ræðum sínum við Craig (sjá bls.
19).
Steindór vitnar svo í aðra bók eftir
Ehrman þar sem segir „biblíu-
handritunum var breytt.“ Þetta er
einfaldlega ekki rétt, sjá http://
www.agust.org/dvcisl.pdf.
Það er tvennt sem er til umræðu
hér. Annars vegar ásakanir um að
einstökum bókum Biblíunnar hafi
verið breytt, hins vegar það ferli
að ákvarða hvaða bækur yrðu
„inni“ og hverjar „úti“ þegar Nýja
Testamentið var sett saman. Heim-
ildir sýna að á fjórðu öld var ein-
faldlega staðfest það sem þegar
hafði verið venja í yfir 200 ár hjá
heilbrigðum kirkjum og leiðtogum
þeirra.
Það er tekið fram í íslensku
biblíunni að seinustu vers Mark-
úsarguðspjalls vantar í sum hand-
rit. Það er enginn feluleikur hér.
Ekkert mikilvægt í kristinni trú
stendur né fellur með þessum
versum né öðrum versum sem
vantar í sum handrit.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
Kristni stendur á traustum grunni
Gerum gott úr flessu
Árlega berst miki› af prentu›um pappír inn á heimilin í landinu
en kosturinn er sá a› hann má endurn‡ta. Leggjum okkar af
mörkum fyrir náttúruna og skilum honum í næsta pappírsgám
e›a endurvinnslutunnu.
S
am
tö
k
ið
na
ða
rin
s
og
S
V
Þ
-S
am
tö
k
ve
rs
lu
na
r
og
þ
jó
nu
st
u
/
S
já
n
án
ar
u
m
e
nd
ur
vi
nn
sl
u
p
re
nt
m
ið
la
á
w
w
w
.s
i.i
s
–
H
ön
nu
n
H
ví
ta
h
ús
ið
/
S
ÍA