Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 67

Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 67
Mér var bent á grein í Fréttablaðinu 16. júlí síðastliðinn (bls. 18), sem bar yfirskriftina „Við- heldur fáfræði kristn- inni?“ Ég ætla ekki að mæla því bót að menn verji eða vinni að framgangi mál- staðar með því að forðast tilteknar staðreyndir, eða með því að lifa gegn eigin sannfæringu. Enginn ætti að predika það sem hann trúir ekki innst inni. Þess finnast dæmi að fáfræði hafi viðhaldið kristni. Ég er hins vegar ósammála því að svo sé enn í dag fyrir hugsandi fólk sem kynnir sér málið. Það þarf einnig að hafa í huga að rök með blekk- ingum merkja ekki endilega að það sem er rökstutt sé rangt. Steindór vitnar í þrjár bækur eftir Bart D. Ehrman. 28 mars 2006 áttu sér stað rökræður á milli Ehrmans og Williams Lane Craig um spurn- inguna „Eru sagnfræðileg rök fyrir upprisu Jesú?“ Handrit af rökræðunum má finna á http:// www.holycross.edu/departments/ crec/website/resurrdebate.htm. Það sem raunverulega er tekist á um í rökræðum Ehrmans og Cra- igs er spurningin um tilvist Guðs. Þeir sem afneita tilvist Guðs geta ekki samþykkt kraftaverk sem útskýringu á sögulegum atburði. Þegar Ehrman segir að engin sagnfræðileg rök séu til um upp- risuna, er hann í raun að segja að upprisan sé ekki besta skýringin á þeim ummerkjum (e. evidence) sem við höfum, en ekki að það séu engin ummerki. Ehrman afneitar tilvist Guðs (eða efast stórlega) og getur því ekki samþykkt krafta- verk sem sögulegan atburð. Nið- urstaða Ehrmans er því sú að það séu engin söguleg rök fyrir upp- risu Jesú. A.m.k. fjögur sagnfræðileg rök blasa hins vegar við þeim sem samþykkir tilvist Guðs, nefnilega (1) greftrun Jesú, (2) tóm gröf, (3) Jesú birtist lærisveinum sínum upprisinn og loks (4) útskýring á sannfæringu lærisveina Jesú um upprisuna. Steindór vitnar í orð Ehrmans um að Jesús hafi verið heimsendaspá- maður og því hafi Hann ekkert kært sig um hefðbundin fjöl- skyldugildi og að alla síðustu öld hafi þetta verið sú mynd af Jesú sem meirihluti fræðimanna aðhylltist. Jesús sagði fyrir um endi þess heims sem við lifum í nú og umbreytingu yfir í annarsskonar heim. Hann er því vissu- lega „heimsendaspámað- ur“ að mínu viti. Hvort Hann kærði sig ekkert um hefðbundin fjöl- skyldugildi fer bæði eftir því hvernig við skiljum boðskap Jesú og svo því hvað við flokkum sem hefðbundin fjöl- skyldugildi. Guðleysingi spyr Guð vitaskuld ekki að því hvaða fjölskyldugildi Guð hefur heldur leitar annað. Upphafspunktur guðleysingjans er ekki hjá Guði. Sá sem raunverulega trúir á til- vist Guðs skilur hins vegar að skil- greining á góðum fjölskyldugild- um er ekki að finna í eigin ranni heldur hjá Guði, sem í upphafi hannaði bæði heiminn, hjónaband- ið og fjölskylduna. Kristinn maður reynir því að skilja fjölskyldugildi Guðs eftir bestu getu, að gera Guðs gildi að sínum eigin. Það er því við því að búast að ókristnir menn álíti Jesú hafa kært sig kollóttan um það sem þeir kalla hefðbundin fjölskyldu- gildi. Ef fjölskyldulíf fræðimanna eins og Paul Tillich bar að ein- hverju leyti vitni um hvað þeir álitu hefðbundin fjölskyldugildi er gott að þeir sáu Jesú ekki undir- strika þau. Þó að meirihluti fræðimanna sé á tiltekinni skoðun sannar það ekki að þeir hafi rétt fyrir sér eins og Ehrman bendir sjálfur á í rök- ræðum sínum við Craig (sjá bls. 19). Steindór vitnar svo í aðra bók eftir Ehrman þar sem segir „biblíu- handritunum var breytt.“ Þetta er einfaldlega ekki rétt, sjá http:// www.agust.org/dvcisl.pdf. Það er tvennt sem er til umræðu hér. Annars vegar ásakanir um að einstökum bókum Biblíunnar hafi verið breytt, hins vegar það ferli að ákvarða hvaða bækur yrðu „inni“ og hverjar „úti“ þegar Nýja Testamentið var sett saman. Heim- ildir sýna að á fjórðu öld var ein- faldlega staðfest það sem þegar hafði verið venja í yfir 200 ár hjá heilbrigðum kirkjum og leiðtogum þeirra. Það er tekið fram í íslensku biblíunni að seinustu vers Mark- úsarguðspjalls vantar í sum hand- rit. Það er enginn feluleikur hér. Ekkert mikilvægt í kristinni trú stendur né fellur með þessum versum né öðrum versum sem vantar í sum handrit. Höfundur er tölvunarfræðingur. Kristni stendur á traustum grunni Gerum gott úr flessu Árlega berst miki› af prentu›um pappír inn á heimilin í landinu en kosturinn er sá a› hann má endurn‡ta. Leggjum okkar af mörkum fyrir náttúruna og skilum honum í næsta pappírsgám e›a endurvinnslutunnu. S am tö k ið na ða rin s og S V Þ -S am tö k ve rs lu na r og þ jó nu st u / S já n án ar u m e nd ur vi nn sl u p re nt m ið la á w w w .s i.i s – H ön nu n H ví ta h ús ið / S ÍA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.