Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 68

Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 68
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Ólafur H. Torfason er landsmönnum að góðu kunnur fyrir ritstörf sín og kvikmyndagagnrýni á Rás 2 síðast- liðin tuttugu ár. Í dag á Ólafur sex- tugsafmæli og ætlar að verja degin- um með vinum og vandamönnum. „Ég ætla nú bara að vera með fjöl- skyldumeðlimum og fáeinum vinum í dag. Það er engin stórveisla skipu- lögð í tilefni dagsins,“ segir Ólafur og bætir við að afmælisbörn í júlí gefi yfirleitt upp alla von um stór- ar afmælisveislur, þar sem vinir og vandamenn séu hvort eð er velflest- ir í fríi erlendis á sumrin. Hann viðurkennir þó að eftirvænt- ing hafi ríkt hjá flestum afmælis- börnum í gamla daga, þar sem há- punktarnir á árinu hafi verið heldur færri þá en nú. „Guðbergur Bergsson lýsti lífinu á Íslandi best í Grindavík þegar hann var að alast upp, en þar er sagt frá því hvernig börn biðu í of- væni eftir jólunum og afmælinu. Það lék stórt hlutverk bæði í lífi barna og fullorðinna.“ Ólafur segist persónulega hafa þótt lítið til afmælisdagsins koma í bernsku. Hann hafi ekki séð ástæðu til að gleðjast þótt hann væri búinn að fara einn hring til viðbótar í kring- um sólina. Þessi afstaða hafi breyst með aldrinum og nú finnist honum afmælið kjörið tækifæri til að hitta aðra og gleðjast. „Ég skal þó fúslega viðurkenna að skemmtilegustu afmælisdag- arnir eru yfirleitt einfaldir í snið- um og einlægir,“ segir Ólafur. „Yfir- leitt einhvers staðar í óbyggðunum, í fjöru eða lengst uppi á hálendi. Sem dæmi átti ég einu sinni afmæli í Flat- eyjardal, sem var rómantískt þar sem við elduðum eftir að skyggja tók. Svo átti ég góðan afmælis- dag á hrjóstrugu landsvæði Öskju í nístandi kulda, þótt það kunni að hljóma óspennandi.“ Þrátt fyrir að sextugsafmælið sé nú upp runnið segist Ólafur ekki finna fyrir vott af tilvistarkreppu. Þvert á móti líði honum svolítið eins og vini hans sem líkti því að verða sextugur og segja til aldurs, við það að koma út úr skápnum. „Í því samhengi er gaman að segja frá því að ég tók einu sinni viðtal við Jón Helgason, prófessor og skáld í Kaupmannahöfn, þegar hann var orðinn fjörgamall og spurði hvort hann væri enn að yrkja,“ segir Ól- afur. „Þá sagðist Jón hafa hætt að yrkja í kringum þrítugt, eða um það leyti þegar manni þætti sem lífið væri búið. Sjálfur lét ég mig ekki muna um að halda þrisvar sinnum upp á þrítugsafmælið og var því ekki að fela það.“ Það er auðheyrt að nóg verður að gera hjá Ólafi á komandi árum, en hann verður meðal annars upptekinn við ferðalög og skrif á næstunni. „Ég er nú nýkominn úr ferð með göngu- hóp sem ég er í, þar sem 76 ára gam- all maður tók ferðina með glæsibrag. Þannig að það er bara ekki annað hægt í stöðunni en að vera hress,“ segir hann og hlær. 80 ára afmæli Örn Friðriksson fyrrverandi prófastur á Skútustöðum er áttræður í dag. Hann verður ekki heima. Ástkær móðir, tengdamóðir og amma, Helga Ingibergsdóttir Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala þann 20. júlí. Útförin fór fram í Kristskirkju, Landakoti, þann 26. júlí. Snorri Snorrason Þórunn Snorradóttir Sigrún Hannesdóttir Helga Rut Snorradóttir Hannes Reynir Snorrason Snorri Snorrason Hildur Rakel Jóhannsdóttir 70 ára afmæli Guðbergur I. Guðbergsson framkvæmdastjóri verður sjötugur laugardaginn 28. júlí. Af því tilefni er öllum vinum og ætting jum boðið í kaffi í sal Sjálfsbjargar Hátúni 12 kl. 17.00-20.00. Okkar ástkæri, Sigurgeir Pétursson frá Ófeigsfirði, lést aðfaranótt mánudagsins 23. júlí á líknardeild Landspítalans Kópavogi. Jarðarför hans fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 2. ágúst kl. 15.00. Jenný Haraldsdóttir Arndís B. Sigurgeirsdóttir Bára K. Kristinsdóttir Guðbjörg Ásmundsdóttir Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, áður Borgarbraut 45, sem lést fimmtudaginn 19. júlí, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 28. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi. Sólveig Ólafsdóttir Þórður Ólafsson Jón R. Rósant Ásmundur Ólafsson Brynja Ólafsdóttir Einar Ólafsson Ólafur Ingi Ólafsson Ragnheiður Ólafsdóttir Guðmundur Ólafsson Hólmfríður Ólafsdóttir og fjölskyldur. 80 ára afmæli Gunnar Hallgrímsson Hvammsgötu 6, Vogum, varð áttræður 25. júlí sl. Hann tekur á móti gestum frá kl. 15.00 til 19.00 laugardaginn 28. júlí í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Amityville Horror frumsýnd„Mér finnst gaman að leika per- sónur með dökkar hliðar, sem vekja engu að síður samúð hjá áhorfendum. Maður vill að þeir hafi á tilfinningunni að þær eigi sér mýkri hliðar.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.