Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 76
Hildigunnur Sigurðardóttir lauk
nýverið við BA í fatahönnun í skóla
í Bretlandi. Þar fékk hún hæstu
einkunn fyrir lokalínu sína og fékk
þann heiður að sýna á London Gradu-
ate Week ásamt útskriftarnemum úr
öðrum skólum.
„Skólinn heitir University College for the
Creative Arts og listadeildin er staðsett í
Rochester sem er um fjörutíu mínútum fyrir
utan London. Ég flutti út fyrir sjö og hálfu ári
síðan. Fyrst bjó ég í Brussel og kláraði þar
grunnskóla og menntaskóla og þaðan fór ég
beint til Englands,“ segir Hildigunnur sem var
mjög ánægð með námið í Rochester.
„Fyrsta árið snýst að miklu leyti um að kynna
okkur fyrir tískuheiminum. Við gerðum litlar
línur, fórum í sníða- og saumatíma og þess
háttar. Á öðru ári var verkefnavinnan lengri
og um jólin sýndu allir einn alklæðnað auk
þess sem við lærðum markaðsfræði og
gerðum haust- og sumarlínur. Síðasta árið var
svo algjörlega undir okkur komið, þá unnum
við okkar heildarhugmynd og þróuðum
lokalínuna okkar áfram,“ segir Hildigunnur.
„Ég valdi að gera vetrarlínu og sótti áhrif í
Ísland og íslensk sjómannaklæði frá nítjándu
öld. Sniðin voru að sjálfsögðu frekar karl-
mannleg, stór og víð og ég tók þau og setti í
kvenlegan stíl sem var mikil áskorun fyrir
mig. Svo var haldin tískusýning þar sem þekkt
fólk úr tískuheiminum sat í dómnefnd og var
þar meðal annars hin fræga fyrirsæta Erin
O‘Connor. 27 af 72 nemendum fengu svo að
sýna á London Graduate Fashion Week og ég
var svo heppin að vera þar á meðal. Það var
mikil upplifun og alveg rosalega gaman.“
Hinn frægi tískublaðamaður Hilary
Alexander fjallaði um sýninguna í The Daily
Telegraph og sagði meðal annars: „Hönnun
Hildigunnar samanstóð af vestum úr fiskinet-
um, íslenskum lopapeysum, víðum vaðbuxum
og jökkum úr fiskiroði í indælli línu sem er
gerð fyrir sjóarastelpur.“
Aðspurð hvers vegna hún hafi valið fatahönn-
un segir hún: „Áhuginn byrjaði í níunda bekk
og þá fór ég að búa til mín eigin föt og fór á
teikninámskeið. Ég fékk allt í einu gríðarlegan
áhuga á að skapa og vinna með efni og safnaði
saman í möppu sem ég skilaði svo inn í
skólann. Það var ekki svo erfitt að komast inn
enda eru ráðamenn skólans mjög opnir fyrir
að fá inn ólíkt fólk með mismunandi bak-
grunn,“ segir Hildigunnur sem á sér nokkra
uppáhaldshönnuði í bransanum.
„Vivienne Westwood er í algjöru uppáhaldi.
Hún skarar fram úr á þessu sviði, er alltaf
með eitthvað nýtt spennandi án þess að tapa
sínum stíl. Svo er ég mjög hrifin af Dries Van
Noten og Martin Margiela.“ Hildigunnur á
ekki í vandræðum með að lýsa stílnum sem
einkennir eigin hönnun. „Hann er mest
tengdur efnum og er eiginlega blanda af ýmis
konar efnum. Ég er mjög hrifin af því að
vinna með leður, mér líkar vel að nota
náttúruleg efni og nýti mér þau á óvenjulegan
hátt.“
Íslendingar fá tækifæri til að sjá hönnun
Hildigunnar á Menningarnótt en hún heldur
þá tvær sýningar klukkan fjögur og fimm í
Sjóminjasafninu Grandagarði 8. „Allur minn
tími fer í að undirbúa sýninguna núna og svo
ætla ég að safna mér pening og reyna að
komast inn í lífið hérna heima. Það væri
gaman að fá vinnu hjá einhverjum hönnuði,
prófa mig áfram og reyna að lokum að koma
sjálf einhverju í framleiðslu. Svo langar mig
svolítið í meira nám en það kemur bara í ljós,“
segir þessi ungi og upprennandi fatahönnuður
sem eflaust á eftir að láta að sér kveða í
hinum harða heimi tískunnar.
Söngkonan Beyoncé Knowles varð fyrir
því óláni að hrynja niður stiga á tón-
leikum sínum í Florida fyrr í vikunni.
Hún virðist þó hafa sloppið með
skrekkinn því hún stóð snöggt á
fætur og hélt áfram að syngja eins
og ekkert hefði í skorist. Sumir áhorf-
enda voru meira að segja á því að söng-
konan hefði ekki misst úr eitt ein-
asta orð.
Beyoncé er nú á tónleikaferð
um Bandaríkin og hefur lagt
það í vana sinn að sveifla hár-
inu ofsafengið meðan á flutn-
ingi stendur. Hún hafði rétt
nýlokið við góða sveiflu
þegar hún tók til við að
ganga niður tröppur á svið-
inu í síðum, rauðum silki-
frakka. Ekki vildi betur til en
svo að hún festi hælinn í frakkanum og
féll niður einar tólf tröppur. Beyoncé
missti hljóðnemann en greip hann hið
snarasta eftir fallið og hélt áfram að
syngja.
Áður en hún hóf flutning á næsta lagi
sínu bað hún áhorfendur náðarsamleg-
ast að setja ekki myndir eða myndbönd
af atvikinu á netið. Henni varð ekki að
ósk sinni því myndbandið hefur farið
eins og eldur í sinu um netheima. Það er
meðal annars að finna í nokkrum útgáf-
um á vefsíðunni YouTube.
Beyoncé dettur kylliflöt
Leikarinn Matt
Damon fékk
nýverið stjörnu
sína á frægðar-
stétt Hollywood.
Damon segist
hafa ungur að
árum horft á stétt-
ina og dreymt um
að komast þangað
einn daginn.
„Nokkrum sinnum í lífinu hef
ég upplifað stundir sem eru
ótrúlegri en orð fá lýst og þetta
virðist vera ein af þeim,“ sagði
Damon við athöfnina. Damon sló
í gegn árið 1998 þegar hann
samdi handritið að myndinni
Good Will Hunting ásamt vini
sínum Ben Affleck.
Næsta mynd hans er fram-
haldshasarinn The Bourne
Ultimatum.
Damon á
frægðarstétt
Serbneska sígaunasveitin KAL
ætlar að spila í annað sinn hér á
landi á Nasa hinn 22. september.
KAL vakti mikla lukku á Vorblóti í
fyrra og því ákvað Hr. Örlygur að
verða við fjölda áskorana um að fá
sveitina hingað á nýjan leik.
Sveitin var stofnuð snemma á
þessari öld af bræðrunum Dushan
og Dragan Ristic, að þeirra sögn til
þess að hjálpa þeim að yfirstíga þá
fordóma og hindranir sem sígaun-
ar mæta hvarvetna. Miðasala á
tónleikana hefst um miðjan ágúst.
KAL aftur til Íslands
Grillveislur
Steikarhlaðborð
Aðeins það besta
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Komdu við í næstu Vodafone verslun og nældu þér í gæðabolta.
Almennt verð 1.990 kr.
Þú færð bestu kjörin með því að vera með allt hjá okkur í Og1.
Meistaradeildarboltar á aðeins 990 kr.
fyrir Og1 viðskiptavini.
Hittu í mark