Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 81
Sammy Lee, knatt-
spyrnustjóri Bolton, var mjög
ánægður með frammistöðu
íslenska framherjans Heiðars
Helgusonar í fyrsta leik hans
fyrir félagið. Heiðar lék fyrri
hálfleikinn í 3-0 tapi liðsins í
æfingaleik gegn Hibernian frá
Skotlandi og þótti einn af ljósu
punktunum í leik Bolton.
„Heiðar var magnaður. Hann
gerði allt sem honum var ætlað að
gera og átti nokkra frábæra
spretti. Hann er mikill atvinnu-
maður og á köflum leit út fyrir að
hann væri búinn að vera með
okkur í mörg ár. Ég er mjög
ánægður með leik hans og
frammistaðan gefur góð fyrir-
heit,“ bætti Lee við.
Heiðar var
magnaður
Enska úrvalsdeildar-
félagið Liverpool er búið að
opinbera teikningar af nýja
leikvangi sínum, nýja Anfield,
sem verður tekinn í notkun árið
2010. Nýir eigendur félagsins,
Bandaríkjamennirnir Tom Hicks
og George Gillett, hafa ásamt
arkitektum hjá fyrirtækinu HKS
gjörbreytt fyrri áætlunum um
leikvanginn og útkoman er engu
öðru lík, risaleikvangur einstakur
í hönnun og útliti.
„Við erum að byggja leikvang
sem ekki aðeins félagið og
stuðningsmenn geta verið stoltir
af heldur einnig öll borgin.
Arkitektarnir blönduðu saman
nýtísku útliti og þeim gildum sem
Liverpool FC stendur fyrir,“ sagði
Rick Parry, framkvæmdastjóri
Liverpool.
Stærsta stúkan á vellinum
verður Kop-stúkan við annan enda
vallarins. Hún er hönnuð með
gamla leikvanginn í huga og setur
mjög sterka mynd á allan
leikvanginn. „Við gerðum okkur
vel grein fyrir mikilvægi Kop-
stúkunnnar. Við jukum áhorfenda-
fjöldann í stúkunni með því að
skipta henni ekkert niður og fyrir
vikið mun hún taka 18 þúsund
manns og vera hjartsláttur nýja
leikvangsins,“ segir Parry.
Parry talaði líka um hversu vel
nýi leikvangurinn fellur að
umhverfinu þrátt fyrir að vera
risastór. Hann er hluti af endur-
skipulagi svæðisins og mun að
mati Parrys vera lykillinn að end-
urfæðingu allrar Norður-Liver-
pool.
„Teikningarnar af nýja vellinum
eru alveg frábærar. Þessi leik-
vangur er öðruvísi en aðrir vellir
sem ég hef séð, allir gluggarnir
setja skemmtilegan svip á hann
og ég er viss um að hann kemst í
hóp bestu valla í Evrópu,“ sagði
Rafa Benitez, stjóri Liverpool.
Fyrirliðinn Steven Gerrard var
einnig í skýjunum. „Ég þurfti bara
að skoða teikningarnar í fimm
mínútur til að vera dolfallinn.
Þetta verður frábær völlur og það
besta við hann er að hann er ekki
líkur neinum öðrum. Við vitum
allir hvaða stemningu 40 þúsund
Liverpool-áhorfendur geta búið
til og ég held að það verði
ólýsanlegt hvernig það verður að
spila fyrir 60 þúsund Liverpool-
áhorfendur á nýja leikvanginum.
Ég get ekki beðið eftir því að leiða
mitt lið út á völlinn,“ sagði Steven
Gerrard.
Völlurinn mun kosta um 300
milljónir enskra punda eða um 37
milljarða íslenskra króna og
Liverpool-menn hafa sett stefnuna
á að fá um 100 milljónir pund fyrir
að selja nafn nýja leikvangsins en
það mun líklega taka félagið
marga áratugi að borga fyrir
leikvanginn.
Nýi Anfield verður engu öðru líkur
„Ég er algjörlega nið-
urbrotinn. Mig langar mest til að
gráta,“ segir danski hjólreið-
akappinn Michael Rasmussen,
sem var rekinn úr Tour de France
hjólreiðakeppinni seint á miðvik-
udagskvöld af liði sínu Rabobank.
Rasmussen átti sigurinn vísan og
var með yfir þriggja mínútna for-
ystu þegar forráðamenn Rabobank
ákváðu að sparka honum úr keppni
vegna gruns um lyfjamisferli.
Rasmussen er sagður hafa logið
til um staðsetningu æfingabúða
sinna fyrir mótið og þannig slopp-
ið við mörg lyfjapróf. Rasmussen
segist hins vegar alsaklaus. „Ég
var ekki á Ítalíu eins og haldið er
fram. Alls ekki. Það er saga eins
manns sem segist hafa þekkt mig.
Það er engin sönnun fyrir því að
ég hafi verið þar,“ segir Rasm-
ussen. Sá danski segist hafa æft í
Mexíkó og hvergi annars staðar
og að umrætt „vitni“ hafi ein-
faldlega
ruglað sér saman við einhvern
annan. „Ferill minn er ónýtur. Ég
hef ekki hugmynd um hvað ég geri
úr þessu,“ bætti Rasmussen við.
Ljóst er að ákvörðun Rabobank
um að sparka Rasmussen úr
keppni á eftir að draga frekari
dilk á eftir sér því í 17. áfanga
hjólreiðanna í gær hætti Denis
Menchov keppni í miðjum klíðum,
en hann var fremsti keppandi liðs-
ins af þeim sem eftir stóðu.
Menchov hætti skyndilega að
hjóla og gekk út af brautinni og
lýsti þannig stuðningi sínum við
Rasmussen í verki.
Daniele Bennati frá Ítalíu vann
17. áfanga hjólreiðanna í gær,
188,5 km langa leið frá Pau til
Castelsarrasin. Hinn spænski
Alberto Contador hefur fengið
gulu treyjuna í kjölfar brotthvarfs
Rasmussen og hefur tæplega
tveggja mínútna forystu á Cadel
Evans frá Ástralíu.
Niðurbrotinn Rasmussen
segir ferilinn á enda
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Birgir Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, er
einu höggi á eftir forustumönn-
unum á Íslandsmótinu í höggleik
eftir að hafa spilað á tveimur
höggum undir pari í gær.
Birgir Leifur vann upp mjög
slæma byrjun þar sem hann
tapaði fjórum höggum á fyrstu
fjórum holunum.
Birgir Leifur þarf nú að gera
nokkuð sem hann hefur aldrei
gert áður ætli hann sér titilinn.
Hann hefur nefnilega aldrei
orðið Íslandsmeistari nema hann
hafi verið í forustu eftir fyrsta
dag.
Birgir Leifur var með eins
höggs forustu árin 1996, 2003 og
2004 þegar hann tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn en fyrstu
fjögur Íslandsmótin sín, sem og
á því fyrir tveimur árum, var
hann tveimur til fimm höggum á
eftir efsta manni og náði ekki að
vinna titilinn í þau skipti.
Fyrstu holurnar
voru dýrkeyptar