Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 82
Króatísku leikmennirnir
Dario Cingel og Viego Svadomov-
ic eru mjög ánægðir í herbúðum
ÍA og geta vel hugsað sér að vera
áfram hjá félaginu, að því er
fram kemur á heimasíðu ÍA. Í
viðtali við heimasíðuna segjast
þeir sérstaklega ánægðir með
þjálfarann Guðjón Þórðarson.
„Hann er einn besti þjálfari
sem við höfum starfað með. Hann
leggur sig allan í þjálfunina og er
snjall og útsjónarsamur,“ er haft
eftir leikmönnunum, en þeir léku
sem atvinnumenn í heimalandi
sínu síðasta vetur.
Geta hugsað sér
að vera áfram
VINNINGAR ERU BÍ
ÓMIÐAR,
TÖLVULEIKIR, DVD M
YNDIR
OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA SMF
Á 1900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ MIÐA
!
11.
HVER
VINNUR
!
HEIMSFRUMSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Þýskaland og England
komust í gær í úrslitaleik Evrópu-
móts 19 ára kvenna sem fram fer
hér á landi. Úrslitaleikurinn fer
fram á sunnudaginn.
Evrópumeistarar Þýskalands
komust í hann krappan gegn
Frakklandi á Laugardalsvelli en
unnu 4-2 eftir framlengingu. Þýsku
stelpurnar komust í 2-0 í seinni
hálfleik en Frakkar náðu að jafna.
Þýska liðið gerði síðan út um
leikinn á síðustu sex mínútunum.
England vann 3-0 sigur á Noregi í
hinum leiknum sem fram fór á KR-
velli. Fyrirliðinn Ellen White
skoraði tvö marka liðsins.
Þýskaland og
England í úrslit
Skagamenn skoruðu fjög-
ur mörk og uppskáru þrjú stig í
leiknum gegn HK í gær. Tvö glæsi-
mörk í fyrri hálfleik komu þeim á
bragðið og eftir dapra byrjun á síð-
ari hálfleik afgreiddu þeir ráðvillta
HK-inga með tveimur mörkum til
viðbótar.
Jafnræði var með liðunum fram-
an af leik og náðu þau bæði að
skapa sér hálffæri, ef svo skyldi
kalla. ÍA komst yfir með stórbrotnu
marki Þórðar Guðjónssonar en
þrumufleygur hans af 30 metra
færi kom eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum. Ekkert virtist vera í
gangi þegar Þórður hamraði að
marki og boltinn flaug í slána og
inn, óverjandi fyrir Gunnleif í
markinu.
Þórður Birgisson var einn í fram-
línu HK og ekki í öfundsverðu hlut-
verki. Hann barðist fyrir sínu en
fékk ekki nægilega hjálp og sókn-
arlotur Kópavogspilta stöðvuðust
nánast allar á sterkum og þéttum
varnarmúr ÍA sem gaf fá færi á
sér.
Króatinn Vjekoslav Svadumovic
skoraði svo annað mark ÍA þegar
hann afgreiddi fallega sendingu
Jóns Vilhelms inn. Glæsilegt mark
en reyndar gerði Ásgrímur Alberts-
son sitt besta til að bjarga marki og
skaut boltanum í slána og inn um
leið og hann fór yfir línuna.
Bjarni Guðjónsson stjórnaði
sínum mönnum af miðju ÍA af
miklum myndarskap og dreifði
spili liðsins vel. Leikmenn ÍA voru
auk þess hreyfanlegir fram á við
en utan markanna sköpuðu þeir
ekki mörg opin færi. Það gerðu
leikmenn HK ekki heldur og vant-
aði nokkuð bit í sóknarleik þeirra
en staðan í hálfleik var 2-0 fyrir
ÍA.
Leikmenn HK komu snemma út
úr búningsherbergjum og byrjuðu
síðari hálfleik af miklum krafti.
Þeir héldu boltanum vel innan liðs-
ins og Skagamenn voru hreinlega
ekki með fyrstu fimmtán mínútur
hálfleiksins. HK gekk reyndar illa
að skapa sér færi en uppskáru gott
mark þegar Finnur Ólafsson fékk
sendingu inn í vítateig, komst
framhjá Páli Gísla og setti boltann
í netið.
Mark Finns var fyrsta mark HK
á útivelli í deildinni í sumar og biðu
þeir í alls 505 mínútur eftir mark-
inu. Skagamenn bitu frá sér eftir
mark HK og fengu nokkur úrvals
færi til að skora. Gunnleifur var
vel á verði í markinu og bjargaði
stórglæsilega bæði frá Dario Cing-
el og Þórði.
Gunnleifur kom þó engum vörn-
um við þegar varnarmaðurinn
Andri Júlíusson skoraði af mark-
teig eftir sendingu Svadumovic.
Leikmenn HK urðu æfir og hópuð-
ust að línuverðinum í mótmæla-
skyni en hlutu aðeins gul spjöld að
launum. Línuvörðurinn sýndi mik-
inn drengsskap þegar að hann við-
urkenndi að um rangstöðu hafi
verið að ræða og að markið hefði
aldrei átt að standa. Þórður Guð-
jónsson kórónaði svo stórleik sinn
þegar hann bætti við fjórða marki
Skagamanna skömmu síðar af mik-
illi yfirvegun eftir að hafa leikið á
varnarmann sem og Gunnleif
markmann.
Skagamenn eru þar með komnir
í 18 stig og harðnar baráttan á
toppnum því enn. ÍA hefur ekki
tapað frá því um miðjan júnímánuð
og eru á góðri siglingu. Liðið spil-
aði vel og er til alls líklegt í sumar
en ljóst er að Guðjón Þórðarson er
á réttri leið með liðið.
„Það gekk allt það sem við lögð-
um upp með fyrir leikinn. Við byrj-
uðum síðari hálfleik illa en unnum
okkur aftur inn og það sýnir styrk
liðsins. Það er líka að koma meiri
trú í liðið. Þó svo að við séum að
spila þétta vörn erum við líka að
sækja og sækja vel. Þetta hefur
gengið vel hjá okkur undanfarið og
það hefur gefið okkur meiri sjálfs-
traust. Með meiri sjálfstrausti
gengur allt betur,“ sagði Bjarni
Guðjónsson eftir leikinn sem jafn-
framt hrósaði línuverðinum fyrir
að viðurkenna að mark Andra hefði
verið ólöglegt.
Gunnleifur Gunnleifsson, fyrir-
liði HK, bar sig vel eftir leikinn.
„Þeir eru betra liðið í fyrri hálfleik
sem við buðum þeim svolítið upp á.
Við vorum eiginlega bara að bíða
eftir því að lenda undir. Við töluð-
um um það í hálfleik að gefa bara
allt í þetta og uppskárum mark.
Þeir voru alltaf hættulegir líka og
þriðja markið fór eiginlega bara
með okkur. Við urðum pirraðir og
misstum einbeitinguna við það,“
sagði Gunnleifur sem sagði að
sjálfstraustið í liðinu væri enn
mikið þrátt fyrir tapið.
ÍA fór með öruggan 4-1 sigur á HK af hólmi í leik liðanna í Landsbankadeild karla í gær. HK hefur aðeins
hlotið eitt stig á útivelli í sumar á meðan Skagamenn eru á fljúgandi siglingu og nálgast toppinn óðfluga.
Landsbankadeild karla
Frakkinn Thierry Henry
skoraði eina markið í sigri Barce-
lona á Dundee United í æfingaleik
í Skotlandi í gær. Þetta var fyrsti
leikur hans með spænska liðinu
síðan að hann var keyptur þangað
frá Arsenal í sumar og það er
óhætt að segja að kappinn hafi
byrjað vel.
Það var mikill áhugi fyrir leikn-
um í Dundee og uppselt var á
Tannadice Park völlinn í fyrsta
sinn í mörg ár þrátt fyrir að hér
hafi aðeins verið um æfingaleik að
ræða. Leikurinn var mjög opinn
og skemmtilegur þótt að aðeins
eitt mark hafði litið dagsins ljós.
Henry kom inn á sem varamað-
ur fyrir Kamerúnan Samuel Eto’o
í hálfleik og eftir aðeins 25 sek-
úndur var hann búinn að eiga skot
rétt framhjá stönginni. Henry
skoraði síðan sigurmarkið mínútu
fyrir leikslok þegar hann fylgdi á
eftir vítaspyrnu sem Grzegorz
Szamotulski pólski markvörður
Dundee United hafði varið frá
honum.
Giovani Dos Santos hafði fiskað
vítið en skömmu áður höfðu leik-
menn Barcelona bjargað tvisvar
sinnum á marklínu og þá var mark
dæmt af skoska liðinu sem þótti
mjög umdeild ákvöðrun hjá dóm-
ara leiksins.
Henry fékk ekki að spila með
Ronaldinho því Brasilíumaðurinn
fór út af í hálfleik alveg eins og
Eto´o. Þess í stað spilaði Henry
með Bojan Krkic og Giovani Dos
Santos í framlínu Barca í þessum
leik.
Henry skoraði sigurmarkið